Hugrún - 01.08.1923, Side 15

Hugrún - 01.08.1923, Side 15
13 — — Koss! — Koss! — — — — Detta! — Deíta! — — — — Djúpt! — Djúpt! Ég hallaði mér langt út yfír borðstokkinn, breiddi faðminn út og................... Tvær litlar hendur gripu utan rnig, mjúkar og heitar. »í guðs nafni, varið þér yður. Hvað ætlið þér að gera?« Éað var gráthljóð í röddinni. »Ingeborg!« hvíslaði ég og greip hana í faðm mér í alsælu- æði. Varir okkar mættust aftur og aflur, heitar eins og raf- straumar. Kossar, — lengri en eilífðin, — styttri en andartakið. Hún skalf í faðmi mínum eins og lítið vorblóm við fyrsta vind- kastið. Ég kysti silkimjúka, ylmríka hárið hennar, — andaði kossi á augnalokin, mjúk eins og vængir fiðrildisins, er huldu augun hennar, — sál sakleysis og fegurðar. Alt í einu varð ég þess var að hún grét. Ég skyldi óðara orsökina...........»til dauðans,® hvíslaði ég. Óðara en ég hafði slept orðinu, fyrirleit ég sjálfan mig. — Ég slepti henni úr faðmi mínum, en andartaki síðar fann ég heitar titrandi varir hennar á vanga mínum. — — -— — Engill og djöfull! — — — — Skipið var nú komið að landganginum. Farþegarnir voru farnir að ryðjast í land. Eg sá íngeborg og stallsystur hennar búa sig undir landgöngu. Eigi fékk ég tækifæri til að tala við hana einslega, en heimilisfang hennar hafði eg og höfðum við ákveðið að hittast, þegar ég hefði komið mér fyrir og ákvarðað framtíðina. Ég sá þær stallsystur stíga inn í bifreið og uin leið og hún brunaði brott sendi Ingeborg mér hinstu kveðju sína með því að veifa til mín.

x

Hugrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugrún
https://timarit.is/publication/1335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.