Hugrún - 01.08.1923, Side 22

Hugrún - 01.08.1923, Side 22
20 Um haustið kom hún og ég fór þegar heim til hermar tii að heilsa henni, Litla hjjrtað mitt barðist, þegar ég gékk upp að húsinu. Ég veit ekki, hveinig á því stóð, en þá stundina Iangaði mig til að hlaupa heim aftur og fela mig. Ég barði að dyrum með hálfutn huga og hún kom einmitt sjálf ti! dyranna. En hvað hún var orðin stór og — falleg Og hún var ekki eins feimin og ég, hún vafði handleggjunum um hálsinn á mér og kallaði mig elsku besta iSonna sinn og svo kysti hún mig, — beint á miinninn. Og ég var ekki vitund feiminn letigur, alt þunglyndi sumars- ins var fokið út í veður og vind. Ég var svo glaður, að ég vissi hvorki í þennan heirn né annan. Þegar ég kom heim um kvöldið var ég eins og ölvað- ur maður. Ég bauð góðan daginn og þó var klukkan orðin átta og við kvöldborðið helti ég úr rjómakönnunni í bollann minn í staðinn fyrir te, og auðvitað gat ég ekkert borðað. En afi brosti og kinkaði kolli. Ég skaust inn til hans áður en ég fór að sofa, hann sat í hægindastólnum með pípuna. Ég kraup niður við hliðina á honum, — ég þuríti ekkert að segja, því afi skildi alt og vissi alt milli himins og jarðar. Hann klappaði ósköp hægt á kollinn á mér og sagði: »Guð blessi þig, litli vinur, þú ert ennþá svo hreinn og saklaus og ég vona að þú verðir altaf góður drengur. Síðar kemur lífið með nýjar tilfinningar, nýja gleði og nýjar freístingar. Pá verður afi gamli kominn upp í himininn og ég vona að þú látir hann aldrei sjá neitt til þín þaðan, sem getur valdið honum vonbrigða. Farðu nú að sofa vinur minn og guð gefi þér góða nótt.« Ég sofnaði fljótt og dreymdi að ég væri kominn upp í himna- ríki. Þar sat afi við hliðina á Föður vorum og báðir gömlu karlarnir kinkuðu til mín gráhærðum kollunum og brostu.

x

Hugrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugrún
https://timarit.is/publication/1335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.