Hugrún - 01.08.1923, Page 30

Hugrún - 01.08.1923, Page 30
28 aðist, að hann væri farþegi á fyrsta farrými> Provence.* — Ef til vill var hann maðurinn, sem sat þarna afsíðis, eða ef til vill klefanautur minn. Ungfrú Nelly Undeivood, sem var indælasta veran um borð sagði við mig næsta dag: »Pað er skelfílegt að hugsa til þess, að maður skuli eigaeftir að vera fimm dægur á sama skipi og þessi hættulegi glæpamaður Pað er óþolandi! En haldið þér ekki, herra Andrezy, að hann finnist og verði handtekinn?* Ég hefði gjarnan viljað hughreysta ungfrú Nelly, því hún var ung, rík og fögur. Húti hafði eitthvað töfrandi við sig, er heill- aði alla er komu í nálægð hennar. Ungfrú Nelly Undervood hafði um tíma dvalið í Evrópu og var nú á leið til föður síns er var miljónaeigandi í Chicago. í fylgd með henni var frænka hennar, lávarðarfrú Jerland. Mér hafði virst að Nelly sýndi mér þýðara viðmót en öðrum af hinum mörgu meðbiðlum mínum. Sá eini, er ég óttaðist að gæti orðið mér hættulegur, var fríður, Ijóshærður maður, er einmitt þetta augnablik stóð við hlið okk- ar. Við stóðum öll uppi á þilfari. »Ég álít, ungfrú,« svaraði ég henrti, «að glæpamaðurinn hljóti að finnast. í skeytinu er skýrt frá ýmsum auðkennum. Hann ferðast undir nafni, sein byrjar á R., er ljóshærður og ferðast einn síns liðs. Við skulutn nú athuga, hvort þessi auðkenni finnast hjá nokkrum af farþegunum á fyrsta farrými, Hér er nafnaskráin og við sjáum, að nöfn 13 farþega byrja á R. Par af eru 9 með fjölskyldu sinni. 11. er Raverdan greifi.« Hann er sendiherraritati, sem ég þekki mjög vel,« greip ungfrú Nelly fram í. »Sá 11. er Rovson major.« »Pað er föðurbróðír minnn,« sagði einn af þeim, sem við- staddur var. »Nr. 12. er herta Rivolta.«

x

Hugrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugrún
https://timarit.is/publication/1335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.