Fréttablaðið - 20.07.2019, Síða 54
LEIKVANGURINN
Ég ólst upp í fátækt. Hér er ég núna. Það er súrr-ealískt en hér stend ég,“ er lausleg þýðing á bæn sem Brasilíumaðurinn Dani Alves fer með fyrir
hvern einasta leik. Brasilíski bak-
vörðurinn, sem er sigursælasti leik-
maður allra tíma eftir að Brasilía
vann Copa America, er fæddur
6. maí 1983 í Juazeiro. Þar bjó hann
á bóndabæ og þurftu þrír bræður
hans að aðstoða pabba sinn fyrir
skóla. Sá sem væri duglegastur fengi
að hjóla í skólann. Hinir þurftu að
ganga. Alves hefur sagt að hann
hafi unnið mikið til að fá að fara á
hjólinu því skólinn væri langt frá
fótboltavellinum og hann hefði
þurft að hlaupa eftir skóla til að ná
æfingum.
Bræður hans hafa látið hafa eftir
sér að hann hafi æft sig að gefa
eiginhandaráritanir því hann vissi
að hann myndi slá í gegn sem fót-
boltamaður. Hann var vissulega
efnilegur en hver hefur ekki heyrt
um efnilegan Brassa. Hann byrjaði
á kantinum og var fljótur en skoraði
ekki mikið. Hann var því færður í
bakvörðinn og er af f lestum talinn
einn besti bakvörður síðari tíma.
Þrátt fyrir kröpp kjör segir Alves
að gleðin hafi verið við völd á heim-
ilinu. Fjölskyldan hafi tekið sér frí á
sunnudögum til að horfa á fótbolta
í svarthvítu sjónvarpi með stálull
vafða utan um loftnetið til að ná
útsendingunni betur. Að sögn Alves
var pabbi hans einnig liðtækur fót-
boltamaður en fékk ekki tækifæri
til að sýna sig og sanna. Hann hafi
ákveðið að synir hans myndu ekki
missa af tækifærinu og einn daginn
var komið að því að skutla drengn-
um á eldgömlum bíl til að sýna hvað
Alves yngri gæti.
Það tókst og 13 ára var drengur-
inn farinn að heiman til að búa
á heimavist ásamt 100 öðrum
drengjum. Heimavistin minnti
Alves á fangelsi að sögn hans sjálfs,
en hann hafi þó fengið nýja skó og
nýjan búning í kveðjugjöf frá pabba
sínum. Þessu var stolið daginn eftir
en Alves notaði það sem hvatningu
og notar enn. Það var æft allan
daginn en lítið var um næringu
á milli og var Alves oft svangur.
Hann saknaði fjölskyldu sinnar,
var búinn að missa nýja búninginn
sinn en ákvað að hann myndi ekki
gefast upp. Hann var ekki bestur á
heimavistinni en trúlega með mesta
viljann. Hann ætlaði að gera föður
sinn stoltan og ef hann yrði sendur
heim þá gæti hann sagt stoltur að
hann hefði allavega reynt.
Alves tókst ætlunarverkið og
þótti nokkuð góður hægri bak-
vörður. Esporte Clube Bahia tók
sénsinn á guttanum og árið 2001
vann liðið Campeonato Brasileiro
Série A bikarinn. Alves lagði upp
Með stórfjölskyldu sinni eftir úrslitaleikinn í
Copa America. Foreldrar hans eru við hlið hans.
mark og fiskaði víti í 3:0 sigri. Eftir
það var erfitt að halda honum utan
byrjunarliðsins. Hann var kominn á
bragðið að lyfta bikurum en í upp-
talningu á bikurunum 40 sem hann
hefur unnið eru ekki taldir bikar-
arnir sem hann lyfti með Bahia. Séu
þeir taldir með eru bikararnir 43.
Laug til um Sevilla
Spænska liðið Sevilla tók eftir Alves
og fékk hann að láni til að byrja með.
Hann var 18 ára og hefur sagt að það
sé eina lygin sem hann hafi nokkru
sinni sagt þegar hann sagðist vita
hvar Sevilla væri. „Auðvitað þekki
ég Sevilla. Ég elska Spán og borgina,“
sagði hann við umboðsmann sem
kynnti honum áhuga félagsins.
Fyrsta árið hans hjá Sevilla var
erfitt. Hann var yfirleitt utan liðsins
og talaði ekki tungumálið. Hann
vissi að HM 2003 væri handan við
hornið fyrir yngra landslið Brasilíu
og vildi komast í liðið. Hann hugs-
aði til föður síns og ákvað að læra
tungumálið, eignast nokkra vini
og eiga góðar minningar. Það gekk
ágætlega en hann var engu að síður í
liði sem varðist aftarlega á vellinum.
Þjálfarinn bannaði honum að fara
yfir miðlínu og nú þurfti guttinn
að venjast varnarlífinu. „Ég spilaði
nokkra leiki og horfði á línuna. Ég
var hræddur við að fara yfir hana.
Síðan í einum leik þá ákvað ég að
láta bara vaða. Ég fór yfir línuna og
sótti og sótti og sótti. Á portúgölsku
kallast það „agora“. Það virkaði sem
betur fer og þjálfarinn kom til mín
og sagði að nú mætti ég sækja. Á
örkotsstundu breyttist félagið úr
fallliði í að vinna Evrópudeildina
tvisvar,“ rifjaði hann upp.
Brasilía vann HM ungmenna árið
2003 og Alves var valinn þriðji besti
leikmaður keppninnar. Þeir unnu
Spán í úrslitaleik þar sem Andrés
Iniesta stjórnaði miðjunni. Alves
var eini leikmaður Brasilíu sem lék
utan heimalandsins. Með honum í
liði var meðal annars miðjumaður-
inn í Manchester City, Fernandinho,
sem skoraði einmitt sigurmarkið í
úrslitaleiknum. Sevilla keypti Alves
í kjölfarið.
Alves var nokkuð fljótur að láta
til sín taka og stórlið fóru að taka
eftir honum. Í júní 2006 var Alves
orðaður við Liverpool fyrir átta
milljónir punda. Það þótti Rafa
Benitez of mikið og því var hann
ekki keyptur. Alves vildi fara til
Liverpool en leið vel í Sevilla og
skrifaði í kjölfarið undir nýjan
samning. Félagið var nýbúið að nið-
urlægja Middles brough 4:0 í úrslita-
leik Evrópudeildarinnar þar sem
Alves var einn af mönnum leiksins.
Ári síðar spilaði hann 47 leiki og
skoraði fimm mörk þar sem Sevilla
endurtók leikinn og vann Evrópu-
deildina. Chelsea bankaði á dyrnar
og vildi kaupa hann. Þrátt fyrir
mikil læti og fjölmiðlastríð milli
Grét með pabba sínum
„Pabbi er ekki mikill tilfinningamaður. Hann
var yfirleitt heima í Brasilíu og ég vissi aldrei
hvort ég hafði gert hann stoltan eða ekki.
En 2015 kom hann til Berlínar að horfa á
úrslitaleikinn í Meistaradeildinni. Eftir
verðlaunaafhendinguna hélt Barcelona
partí fyrir fjölskyldur leikmanna og aðra
sem höfðu lagt sitt af mörkum til að láta
þennan draum rætast. Þá sagði pabbi þegar
ég rétti honum bikarinn: Sonur minn er
orðinn að manni. Hann hágrét. Ég líka. Þetta
var ein af mínum stóru stundum, ekki bara
á ferlinum heldur í lífinu,“ sagði Alves.
Messi á óreimuðum skóm
„Ég fékk að verða vitni að sannri snilli þegar ég æfði með
Lionel Messi. Eitt sinn á æfingu var Messi í stuði. Æfingin var
hörð, það voru engin vettlingatök en Messi fór fram hjá varnar-
mönnum eins og að drekka vatn og skoraði nánast að vild.
Hann kom á mig og sólaði mig. Og svo aftur. Í þriðja sinn leit
ég á skóna hans. Þeir voru óreimaðir. Hann kom á mig, fíflaði
mig upp úr skónum og geystist fram hjá mér. Hann leið þarna
um völlinn og sólaði marga af bestu varnarmönnum heims
og skoraði fram hjá einum besta markverði heims með skóna
óreimaða. Eins og þetta væri einhver sunnudagsbolti. Ég mun
trúlega aldrei spila með hans líka aftur,“ sagði Alves eitt sinn.
Alves og þáverandi forseta Sevilla,
José María del Nido, varð Alves
um kyrrt. En aðeins eitt ár. Barce-
lona kom og sótti drenginn sem var
orðinn að manni. Hann varð einn
dýrasti varnarmaður í sögunni og
þriðji dýrasti leikmaður Barcelona
frá upphafi.
„Ég þurfti ekki að ljúga að þessu
sinni. Ég vissi hvar Barcelona var,“
lét hann hafa eftir sér. Hjá Barcelona
vann hann deildina sex sinnum,
bikarinn fjórum sinnum, Meistara-
deildina þrisvar og var Alves hluti af
liði sem er talið vera eitt það besta í
sögunni.
Hann var í Barcelona í átta ár og
skellti sér til Juventus í eitt ár áður
en hann fór til PSG í brasilísku bylt-
inguna. Henni er nú lokið. Alves er
frjáls ferða sinna og óvíst með fram-
haldið. Eitt er víst að hann er ekkert
endilega hættur að lyfta bikurum
enda orðinn því vanastur allra leik-
manna.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Bikaróði
Brassinn
Dani Alves lyfti sínum fer-
tugasta titli um síðustu helgi
þegar Brasilía vann Copa Am-
erica. Hann er þar með fyrsti
knattspyrnumaðurinn sem
hefur unnið 40 titla á ferlinum.
2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Dani Alves
Fæddur: 6. maí 1983
Hæð: 172 cm
Félög: Bahia, Sevilla,
Barcelona, Juventus, PSG.
Landsleikir: 115
Mörk: 8
Bikararnir
Sevilla 5
Evrópudeildarbikar 2
UEFA Super Cup 1
Bikartitlar 1
Supercopa 1
Barcelona 23
La Liga 6
Bikartitlar 4
Supercopa 4
Meistaradeild 3
HM félagsliða 3
UEFA Super Cup 3
Juventus 2
Seria A 1
Coppa Italia 1
PSG 6
Ligue 1 2
Bikartitlar 2
Deildabikar 1
Coupe de France 1
Brasilía 4
Copa America 2
Confederiation Cup 2
Sigursælustu leikmenn allra tíma
1. Dani Alves Brasilía 43 bikarar
2. Hossam Hassan Egyptaland 41 bikar
3. Andrés Iniesta Spánn 37 bikarar
3. Maxwell Brasilía 37 bikarar
3. Ibrahim Hassan Egyptaland 37 bikarar
4. Oleksandr Shoovkovskly Úkraína 36 bikarar
4. Wael Gomaa Egyptaland 36 bikarar
5. Essam El-Hadary Egyptaland 35 bikarar
5. Vitor Bala Portúgal 35 bikarar
5. Ryan Giggs Wales 35 bikarar
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
3
-F
C
F
4
2
3
7
3
-F
B
B
8
2
3
7
3
-F
A
7
C
2
3
7
3
-F
9
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K