Fréttablaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 54
LEIKVANGURINN Ég ólst upp í fátækt. Hér er ég núna. Það er súrr-ealískt en hér stend ég,“ er lausleg þýðing á bæn sem Brasilíumaðurinn Dani Alves fer með fyrir hvern einasta leik. Brasilíski bak- vörðurinn, sem er sigursælasti leik- maður allra tíma eftir að Brasilía vann Copa America, er fæddur 6. maí 1983 í Juazeiro. Þar bjó hann á bóndabæ og þurftu þrír bræður hans að aðstoða pabba sinn fyrir skóla. Sá sem væri duglegastur fengi að hjóla í skólann. Hinir þurftu að ganga. Alves hefur sagt að hann hafi unnið mikið til að fá að fara á hjólinu því skólinn væri langt frá fótboltavellinum og hann hefði þurft að hlaupa eftir skóla til að ná æfingum. Bræður hans hafa látið hafa eftir sér að hann hafi æft sig að gefa eiginhandaráritanir því hann vissi að hann myndi slá í gegn sem fót- boltamaður. Hann var vissulega efnilegur en hver hefur ekki heyrt um efnilegan Brassa. Hann byrjaði á kantinum og var fljótur en skoraði ekki mikið. Hann var því færður í bakvörðinn og er af f lestum talinn einn besti bakvörður síðari tíma. Þrátt fyrir kröpp kjör segir Alves að gleðin hafi verið við völd á heim- ilinu. Fjölskyldan hafi tekið sér frí á sunnudögum til að horfa á fótbolta í svarthvítu sjónvarpi með stálull vafða utan um loftnetið til að ná útsendingunni betur. Að sögn Alves var pabbi hans einnig liðtækur fót- boltamaður en fékk ekki tækifæri til að sýna sig og sanna. Hann hafi ákveðið að synir hans myndu ekki missa af tækifærinu og einn daginn var komið að því að skutla drengn- um á eldgömlum bíl til að sýna hvað Alves yngri gæti. Það tókst og 13 ára var drengur- inn farinn að heiman til að búa á heimavist ásamt 100 öðrum drengjum. Heimavistin minnti Alves á fangelsi að sögn hans sjálfs, en hann hafi þó fengið nýja skó og nýjan búning í kveðjugjöf frá pabba sínum. Þessu var stolið daginn eftir en Alves notaði það sem hvatningu og notar enn. Það var æft allan daginn en lítið var um næringu á milli og var Alves oft svangur. Hann saknaði fjölskyldu sinnar, var búinn að missa nýja búninginn sinn en ákvað að hann myndi ekki gefast upp. Hann var ekki bestur á heimavistinni en trúlega með mesta viljann. Hann ætlaði að gera föður sinn stoltan og ef hann yrði sendur heim þá gæti hann sagt stoltur að hann hefði allavega reynt. Alves tókst ætlunarverkið og þótti nokkuð góður hægri bak- vörður. Esporte Clube Bahia tók sénsinn á guttanum og árið 2001 vann liðið Campeonato Brasileiro Série A bikarinn. Alves lagði upp Með stórfjölskyldu sinni eftir úrslitaleikinn í Copa America. Foreldrar hans eru við hlið hans. mark og fiskaði víti í 3:0 sigri. Eftir það var erfitt að halda honum utan byrjunarliðsins. Hann var kominn á bragðið að lyfta bikurum en í upp- talningu á bikurunum 40 sem hann hefur unnið eru ekki taldir bikar- arnir sem hann lyfti með Bahia. Séu þeir taldir með eru bikararnir 43. Laug til um Sevilla Spænska liðið Sevilla tók eftir Alves og fékk hann að láni til að byrja með. Hann var 18 ára og hefur sagt að það sé eina lygin sem hann hafi nokkru sinni sagt þegar hann sagðist vita hvar Sevilla væri. „Auðvitað þekki ég Sevilla. Ég elska Spán og borgina,“ sagði hann við umboðsmann sem kynnti honum áhuga félagsins. Fyrsta árið hans hjá Sevilla var erfitt. Hann var yfirleitt utan liðsins og talaði ekki tungumálið. Hann vissi að HM 2003 væri handan við hornið fyrir yngra landslið Brasilíu og vildi komast í liðið. Hann hugs- aði til föður síns og ákvað að læra tungumálið, eignast nokkra vini og eiga góðar minningar. Það gekk ágætlega en hann var engu að síður í liði sem varðist aftarlega á vellinum. Þjálfarinn bannaði honum að fara yfir miðlínu og nú þurfti guttinn að venjast varnarlífinu. „Ég spilaði nokkra leiki og horfði á línuna. Ég var hræddur við að fara yfir hana. Síðan í einum leik þá ákvað ég að láta bara vaða. Ég fór yfir línuna og sótti og sótti og sótti. Á portúgölsku kallast það „agora“. Það virkaði sem betur fer og þjálfarinn kom til mín og sagði að nú mætti ég sækja. Á örkotsstundu breyttist félagið úr fallliði í að vinna Evrópudeildina tvisvar,“ rifjaði hann upp. Brasilía vann HM ungmenna árið 2003 og Alves var valinn þriðji besti leikmaður keppninnar. Þeir unnu Spán í úrslitaleik þar sem Andrés Iniesta stjórnaði miðjunni. Alves var eini leikmaður Brasilíu sem lék utan heimalandsins. Með honum í liði var meðal annars miðjumaður- inn í Manchester City, Fernandinho, sem skoraði einmitt sigurmarkið í úrslitaleiknum. Sevilla keypti Alves í kjölfarið. Alves var nokkuð fljótur að láta til sín taka og stórlið fóru að taka eftir honum. Í júní 2006 var Alves orðaður við Liverpool fyrir átta milljónir punda. Það þótti Rafa Benitez of mikið og því var hann ekki keyptur. Alves vildi fara til Liverpool en leið vel í Sevilla og skrifaði í kjölfarið undir nýjan samning. Félagið var nýbúið að nið- urlægja Middles brough 4:0 í úrslita- leik Evrópudeildarinnar þar sem Alves var einn af mönnum leiksins. Ári síðar spilaði hann 47 leiki og skoraði fimm mörk þar sem Sevilla endurtók leikinn og vann Evrópu- deildina. Chelsea bankaði á dyrnar og vildi kaupa hann. Þrátt fyrir mikil læti og fjölmiðlastríð milli Grét með pabba sínum „Pabbi er ekki mikill tilfinningamaður. Hann var yfirleitt heima í Brasilíu og ég vissi aldrei hvort ég hafði gert hann stoltan eða ekki. En 2015 kom hann til Berlínar að horfa á úrslitaleikinn í Meistaradeildinni. Eftir verðlaunaafhendinguna hélt Barcelona partí fyrir fjölskyldur leikmanna og aðra sem höfðu lagt sitt af mörkum til að láta þennan draum rætast. Þá sagði pabbi þegar ég rétti honum bikarinn: Sonur minn er orðinn að manni. Hann hágrét. Ég líka. Þetta var ein af mínum stóru stundum, ekki bara á ferlinum heldur í lífinu,“ sagði Alves. Messi á óreimuðum skóm „Ég fékk að verða vitni að sannri snilli þegar ég æfði með Lionel Messi. Eitt sinn á æfingu var Messi í stuði. Æfingin var hörð, það voru engin vettlingatök en Messi fór fram hjá varnar- mönnum eins og að drekka vatn og skoraði nánast að vild. Hann kom á mig og sólaði mig. Og svo aftur. Í þriðja sinn leit ég á skóna hans. Þeir voru óreimaðir. Hann kom á mig, fíflaði mig upp úr skónum og geystist fram hjá mér. Hann leið þarna um völlinn og sólaði marga af bestu varnarmönnum heims og skoraði fram hjá einum besta markverði heims með skóna óreimaða. Eins og þetta væri einhver sunnudagsbolti. Ég mun trúlega aldrei spila með hans líka aftur,“ sagði Alves eitt sinn. Alves og þáverandi forseta Sevilla, José María del Nido, varð Alves um kyrrt. En aðeins eitt ár. Barce- lona kom og sótti drenginn sem var orðinn að manni. Hann varð einn dýrasti varnarmaður í sögunni og þriðji dýrasti leikmaður Barcelona frá upphafi. „Ég þurfti ekki að ljúga að þessu sinni. Ég vissi hvar Barcelona var,“ lét hann hafa eftir sér. Hjá Barcelona vann hann deildina sex sinnum, bikarinn fjórum sinnum, Meistara- deildina þrisvar og var Alves hluti af liði sem er talið vera eitt það besta í sögunni. Hann var í Barcelona í átta ár og skellti sér til Juventus í eitt ár áður en hann fór til PSG í brasilísku bylt- inguna. Henni er nú lokið. Alves er frjáls ferða sinna og óvíst með fram- haldið. Eitt er víst að hann er ekkert endilega hættur að lyfta bikurum enda orðinn því vanastur allra leik- manna. Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is Bikaróði Brassinn Dani Alves lyfti sínum fer- tugasta titli um síðustu helgi þegar Brasilía vann Copa Am- erica. Hann er þar með fyrsti knattspyrnumaðurinn sem hefur unnið 40 titla á ferlinum. 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Dani Alves Fæddur: 6. maí 1983 Hæð: 172 cm Félög: Bahia, Sevilla, Barcelona, Juventus, PSG. Landsleikir: 115 Mörk: 8 Bikararnir Sevilla 5 Evrópudeildarbikar 2 UEFA Super Cup 1 Bikartitlar 1 Supercopa 1 Barcelona 23 La Liga 6 Bikartitlar 4 Supercopa 4 Meistaradeild 3 HM félagsliða 3 UEFA Super Cup 3 Juventus 2 Seria A 1 Coppa Italia 1 PSG 6 Ligue 1 2 Bikartitlar 2 Deildabikar 1 Coupe de France 1 Brasilía 4 Copa America 2 Confederiation Cup 2 Sigursælustu leikmenn allra tíma 1. Dani Alves Brasilía 43 bikarar 2. Hossam Hassan Egyptaland 41 bikar 3. Andrés Iniesta Spánn 37 bikarar 3. Maxwell Brasilía 37 bikarar 3. Ibrahim Hassan Egyptaland 37 bikarar 4. Oleksandr Shoovkovskly Úkraína 36 bikarar 4. Wael Gomaa Egyptaland 36 bikarar 5. Essam El-Hadary Egyptaland 35 bikarar 5. Vitor Bala Portúgal 35 bikarar 5. Ryan Giggs Wales 35 bikarar 2 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 3 -F C F 4 2 3 7 3 -F B B 8 2 3 7 3 -F A 7 C 2 3 7 3 -F 9 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.