Fréttablaðið - 20.07.2019, Qupperneq 62
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettablad id.is
20. JÚLÍ 2019
Tónleikar
Hvað? Tónleikar
Hvenær? 21.00
Hvar? Kaffi Norðurfjörður, Árnes-
hreppi á Ströndum.
Lay Low heldur tónleika.
Hvað? Sumarjazz á Jómfrúnni
Hvenær? 15.00-17.00
Hvar? Jómfrúin við Lækjargötu –
utandyra
Tómas R. Einarsson kontrabassi,
Óskar Guðjónsson tenórsaxó
fónn og Ómar Guðjónsson gítar,
Sigtryggur Baldursson konga
trommur, Samúel Jón Samúelsson
básúna og slagverk.
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar í Hall-
grímskirkju 2019
Hvenær? 12.00-12.30
Hvar? Hallgrímskirkja.
Yves Rechtsteiner, konsertorgan
isti frá Frakklandi f lytur verk eftir
J.S. Bach og J.P. Rameau. Miðaverð
2.500 kr.
Hátíðir
Hvað? Hátíðin Sápuboltinn 2019
Hvenær? 11.00-23.00
Hvar? Ólafsfjörður
Dagurinn hefst með mætingu
keppenda og lýkur með balli í
Tjarnarborg þar sem Stuðlabandið
sér um fjörið.
Hvað? Miðaldadagar
Hvenær? 11.00-17.00
Hvar? Gásar við Eyjafjörð
Fyrirlestur
Hvað? Konan og garðurinn
Hvenær? 15.00
Hvar? Hlaðan, Kvoslæk í Fljótshlíð.
Einar E. Sæmundsen landslags
arkitekt f lytur fyrirlestur.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettablad id.is
21. JÚLÍ 2019
Hátíðir
Hvað? Miðaldadagar
Hvenær? 11.00-17.00
Hvar? Gásar við Eyjafjörð
Hvað? Hani, krummi, hundur, svín
Hvenær? 13.00-16.00
Hvar? Árbæjarsafn
Hátíð tileinkuð húsdýrum. Börn
fá að klappa dýrum og bregða sér
á hestbak.
Tónleikar
Hvað? Englar og menn
Hvenær? 14.00
Hvar? Strandarkirkja, Selvogi
Auður Gunnarsdóttir sópran,
Ágúst Ólafsson baritón og Eva
Þyrí Hilmarsdóttir harmóníum
og píanó flytja sálma, þjóðlag a
útsetningar og íslensk sönglög,
Aðgangseyrir kr. 2.900.
Hvað? Stofutónleikar
Hvenær? 16.00
Hvar? Gljúfrasteinn
Schola cantorum flakkar um
lendur íslenskrar tónlistar. Miða
verð 2.500 kr..
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar í Hall-
grímskirkju
Hvenær? 17.00-18.00
Hvar? Hallgrímskirkja,
Yves Rechtsteiner, konsertorgan
isti frá Frakklandi f lytur verk eftir
Hector Berlioz, Mike Oldfield og
Jehan Alain. Miðaverð 3.000 kr.
Yves Rechtsteiner konsertorganisti
leikur í Hallgrímskirkju.
Tómas R. kemur fram á Jómfrúnni ásamt félögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Boðun Guðmundar er fyrsta skáldsaga Eiríks Stephensen. Hann er líffræðingur að mennt og ekki algjör nýgræðingur á ritvellinum.
„Ég hef skrifað alls konar texta í
gegnum tíðina, margt af því hefur
þó verið fyrir frekar þröngan hóp.
En ég hef líka skrifað eitthvað af
pistlum og greinum,“ segir hann.
„Upphaflega átti þessi saga ekki að
vera skáldsaga. Á tímabili var ég
að æfa mig í stuttmyndahandrita
skrifum og þessi hugmynd kom til
mín á þeim tíma en reyndist vera
nokkuð umfangsmikil. Ég hafði
aldrei prófað að skrifa skáldsögu
og ákvað að skella mér í það. Mér
fannst hugmyndin einfaldlega það
góð að ég vildi vinna hana betur.“
Hann segir bókina hafa verið
lengi í vinnslu. „Ég vann hana í
rispum með fullri vinnu í um sex
til sjö ár. Stundum var ég lúsiðinn
en svo komu tímabil þar sem ekkert
gerðist. Svo hafði ég reglulega sam
band við vin minn Guðmund Andra
Thorsson og bar skrifin undir hann.
Arndís Hrönn Egilsdóttir, konan
mín, sá svo um að ég gæfist ekki
upp.“
Vangaveltur um lífið
Boðun Guðmundar segir frá Guð
mundi, miðaldra tónlistarkennara,
sem stendur frammi fyrir óvæntri
áskorun. „Þótt þetta sé í sjálfu sér
furðusaga þá birtast í henni alls
konar vangaveltur mínar um lífið
og tilveruna eins og hvaða væntingar
maður hefur til lífsins og leitina að
réttu hillunni. Bókin fjallar líka um
vináttuna og þess vegna fannst mér
við hæfi að fá einn af mínu elstu og
bestu vinum, Magnús Sigurðarson
myndlistarmann, til að hanna káp
una sem ég er mjög ánægður með“
segir Eiríkur.
Bókin er skrifuð í gamansömum
stíl. „Ég hef reynt að skrifa í alls
konar stíl og hvað mig varðar er
minnsta mótstaðan í húmornum.
Húmor gerir mér líka auðveldara
að rýna í veikleika og breyskleika
mannsins.“
Gott að hlæja upphátt
Spurður hvort hann lesi mikið
af skáldskap segir hann: „Ég hef
alltaf lesið mjög mikið. Þessi saga
er kannski virðingarvottur við
suðuramerísku bókmenntirnar
sem ég las undir tvítugt, svona
hversdagsleg furðusaga. Sérstak
lega finnst mér gott að lesa bækur
sem koma mér til að hlæja upphátt
eins og til dæmis ýmislegt eftir
Hallgrím Helgason og Þórarin Eld
járn sem ég hef mikið dálæti á.“
Nú er fyrsta skáldsagan loks
komin út. „Það er mikill léttir en
ég hef ákveðið að hugsa ekki mikið
um viðtökur. Það er samt dálítið
eins og að ætla sér að hugsa ekki
um ísbjörn því þá getur maður
ekki annað en hugsað um ísbjörn.
Hingað til hef ég bara fengið góð
viðbrögð, aðrir láta allavega ekki
vita.“
Eiríkur segist síður en svo úti
loka að önnur skáldsaga líti
dagsins ljós, nú þegar Boðun Guð
mundar er komin út. „Ég er alltaf
að búa til eitthvað í hausnum en
veit ekki hvað gerist næst,“ segir
hann .
Að hugsa ekki um ísbjörn
Hingað til hef ég bara fengið góð viðbrögð, segir Eiríkur um fyrstu skáldsögu sína, Boðun Guðmundar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Boðun Guðmundar
er fyrsta skáldsaga
Eiríks Stephensen.
Furðusaga með
vangaveltum um
lífið og tilveruna.
HÚMOR GERIR MÉR
LÍKA AUÐVELDARA AÐ
RÝNA Í VEIKLEIKA OG BREYSK-
LEIKA MANNSINS.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
3
-C
B
9
4
2
3
7
3
-C
A
5
8
2
3
7
3
-C
9
1
C
2
3
7
3
-C
7
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K