Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Page 16
16 SPORT 1. mars 2019
Kaffihlaðborð ýmsar útfærslur, Pinnamatur,
smurt brauð, tertur, o.fl. fyrir erfidrykkjuna
Afgreitt á einnota fötum
tilbúið á borðið
Erfidrykkja
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
SVONA HEFUR GYLFI ÞÓR
SKRIFAÐ SIG Í SÖGUBÆKURNAR
n Gylfi Þór Sigurðsson bætti met Eiðs Smára í vikunni n Stendur alltaf fyrir sínu á stærsta sviðinu
G
ylfi Þór Sigurðsson skráði
sig í sögubækurnar í
ensku úrvalsdeildinni
síðastliðin þriðjudag
þegar hann skoraði tvö mörk
í sigri Everton á Cardiff. Með
mörkunum varð Gylfi marka-
hæsti Íslendingurinn í sögu
ensku úrvalsdeildarinnar,
stærstu og vinsælustu íþrótta-
keppni í heimi, og þar er Gylfi nú
efstur á blaði meðal Íslendinga.
Gylfi hefur nú skorað 57 mörk í
deildinni en Eiður Smári skoraði
55 mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Mörk fyrir þrjú félög
Gylfi hefur skorað mörkin 57
fyrir þrjú félög, hann reið á vað-
ið með Swansea árið 2012 þegar
hann kom á láni til félagsins
frá Hoffenheim. Gylfi sló strax
í gegn í deildinni og skoraði 7
mörk í 18 leikjum fyrir Swansea.
Hann skoraði að meðaltali 0,39
mörk í leik sem er hans besti
árangur til þessa, að meðtöldu
þessu tímabili. Frammistaða
Gylfi vakti mikla athygli og var
hann eftirsóttur biti um sumar-
ið. Bæði Liverpool og Tottenham
vildu fá Gylfa sem ákvað á end-
anum að ganga í raðir Totten-
ham, stórs félags í Lundúnum
sem var reiðubúið að greiða tals-
vert hærri laun en hið sögufræga
félag í Bítlaborginni.
Erfið dvöl í Lundúnum
Gylfi lék í tvö tímabil með
Tottenham en þar fékk hann
aldrei að láta ljós sitt skína al-
mennilega og var oftar en ekki
að spila út úr stöðu. Fyrsta
tímabil Gylfa með Tottenham
er það slakasta sem hann hefur
átt í ensku úrvalsdeildinni þegar
kemur að markaskorun. Gylfi
skoraði að meðaltali 0,09 mörk
í leik, hann lék 33 leiki og skor-
aði í þeim þrjú mörk. Á seinna
tímabilinu, eða frá 2013 til 2014,
skoraði Gylfi fimm mörk í 25
leikjum. Hann hafði möguleika
á að halda áfram hjá Tottenham
en kaus að fara aftur til Swansea,
heim í sveitina þar sem honum
hafði liðið vel.
Þrjú frábær tímabil í Wales
Gylfi fór strax á flug í Wales
og átti fínasta fyrsta tímabil,
en annað tímabilið í endur-
komunni var það besta hjá
Swansea. Þar skoraði hann
ellefu deildarmörk, sem eru
jafn mörg mörk og á þessu
tímabili. Hann var leið-
togi Swansea innan vall-
ar, tímabilið á eftir var
ekki síðra og aftur fóru
stærri félög að banka
á dyrnar. Leicester
lagði mikið kapp á að
kaupa Gylfa, en Ev-
erton hafði betur.
Til þess þurfti fé-
lagið líka að greiða metfé, Gylfi
kostaði 45 milljónir punda og
er enn í dag dýrasti leikmaður í
sögu félagsins.
Ósanngjörn gagnrýni
Fyrsta tímabil Gylfa með Everton
var nokkuð erfitt. Hann missti af
undirbúningstímabilinu vegna
þess að langan tíma tók að semja
um kaupverðið. Gengi Everton
var síðan slakt og hafði Gylfi
þrjá knattspyrnustjóra í Bítla-
borginni á sínu fyrsta tímabili.
Swansea – 2012
Leikir – 18
Mörk – 7
Mark að meðaltali í leik – 0,39
Skallamörk – 1
Mörk með hægri fæti – 5
Mörk með vinstri fæti – 1
Mörk úr vítum – 0
Mörk úr aukaspyrnum – 1
Tottenham – 2012/2013
Leikir – 33
Mörk – 3
Mark að meðaltali í leik – 0,09
Skallamörk – 0
Mörk með hægri fæti – 3
Mörk með vinstri fæti – 0
Mörk úr vítum – 0
Mörk úr aukaspyrnum – 0
Tottenham – 2013/2014
Leikir – 25
Mörk – 5
Mark að meðaltali
í leik – 0,20
Skallamörk – 0
Mörk með hægri fæti – 3
Mörk með vinstri fæti – 2
Mörk úr vítum – 0
Mörk úr aukaspyrnum – 0
Swansea 2014/2015
Leikir – 32
Mörk – 7
Mark að meðaltali
í leik – 0,22
Skallamörk – 0
Mörk með hægri fæti – 5
Mörk með vinstri fæti – 2
Mörk úr vítum – 0
Mörk úr aukaspyrnum – 2
Swansea 2015/2016
Leikir – 36
Mörk – 11
Mark að meðaltali
í leik – 0,31
Skallamörk – 1
Mörk með hægri fæti – 9
Mörk með vinstri fæti – 1
Mörk úr vítum – 3
Mörk úr aukaspyrnum – 2
Swansea 2016/2017
Leikir – 38
Mörk – 9
Mark að meðaltali
í leik – 0,24
Skallamörk – 0
Mörk með hægri fæti – 5
Mörk með vinstri fæti – 4
Mörk úr vítum – 3
Mörk úr aukaspyrnum – 2
Everton 2017/2018
Leikir – 27
Mörk – 4
Mark að meðaltali
í leik – 0,15
Skallamörk – 0
Mörk með hægri fæti – 4
Mörk með vinstri fæti – 0
Mörk úr vítum – 0
Mörk úr aukaspyrnum – 0
Everton 2018/2019
Leikir – 28
Mörk – 11
Mark að meðaltali
í leik – 0,39
Skallamörk – 1
Mörk með hægri fæti – 7
Mörk með vinstri fæti – 3
Mörk úr vítum – 2
Mörk úr aukaspyrnum – 0
Svona hefur Gylfi bætt met Eiðs
Smára:
Mörk – 57
Mark að meðaltali í leik – 0,24
Skallamörk – 3
Mörk með hægri fæti – 41
Mörk með vinstri fæti – 13
Mörk úr vítum – 8
Mörk úr aukaspyrnum – 7
Skot að marki – 536
Skot á markið – 198
Skot í tréverkið – 19
Misnotuð dauðafæri – 25
Ferill Gylfa
í tölum
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Mörkin voru fjögur sem Gylfi
skoraði og slæm meiðsli í lok
tímabils voru lýsandi fyrir
erfiða leiktíð. Gengi Everton
á núverandi tímabili hefur svo
verið undir væntingum og hef-
ur Gylfi mátt þola hvað mesta
gagnrýni vegna þess. Hún er
að flestu leyti afar ósanngjörn.
Gylfi hefur lagt allt í sölurnar
í langflestum leikjum, skorað
ellefu mörk sem miðjumaður
og dregið vagninn. Mörkin tvö
gegn Cardiff hafa líka opnað
augu enskra blaðamanna og
stuðningsmanna Everton, þar
hefur fólk áttað sig á því hver
sé stjarnan í bláa hluta Bítla-
borgarinnar.