Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 26
1. mars 2019KYNNINGARBLAÐGott betra BEST
Allt fasteignir er framsækin hágæðafasteignasala sem leggur áherslu á ánægjuvog
bæði kaupenda og seljenda. Einnig
leggur fasteignasalan mikið upp úr
heiðarleika, öryggi og nákvæmni í
öllum vinnubrögðum.
Það er þess vegna sem fólk leitar
til okkar þegar það vill selja eða
kaupa. Það treystir okkur því við
veitum einfaldlega góða þjónustu,“
segir Kristinn Sigurbjörnsson, eða
Kiddi eins og hann er alltaf kallaður,
löggiltur fasteignasali hjá Allt fast-
eignum.
Þrátt fyrir ungan aldur er Kiddi
reynslubolti enda er hann einnig
löggiltur húsasmíða meistari,
byggingarstjóri, hefur leyfi til
eignaskipta samninga og er í námi í
byggingafræði í Háskóla Reykjavíkur.
„Frá unglingsaldri hef ég unnið við
byggingar og tekið að mér bæði smá
og stór verkefni.
Ég hef tekið að mér ástandsskoðun
fasteigna og er á skrá dómstóla
fyrir dómkvadda matsmenn í fast-
eignageiranum. Reynsla mín hefur
verið mér og viðskiptavinum mínum
ómetanleg við fasteignasölu og í öllu
því sem henni fylgir,“ segir Kiddi.
Starfstöðvar víða
„Við erum aðallega með fasteignir
til sölu en tökum þó að okkur leigu-
húsnæði víða um land. Okkar
starfstöðvar á Íslandi eru í Reykjavík,
Reykjanesbæ, Grindavík og Vest-
mannaeyjum. Hjá fasteignasölunni
starfa sex löggiltir fasteignasalar sem
allir sjá um sína starfstöð, og Elínborg
Ósk Jensdóttir sem starfar sem lög-
fræðingur hjá okkur.
Arndís María Kjartansdóttir sér þá
um starfstöðina í Vestmannaeyjum,
Páll Þorbjörnsson, löggiltur fast-
eignasali, fiskeldisfræðingur og með
réttindi til eignaskiptayfirlýsinga,
er í Grindavík og Þorbjörn Pálsson,
faðir Páls, er í Reykjanesbæ ásamt
Gunnari Ólafssyni. Einnig sér Þor-
björn um erlendu eignirnar okkar,
ásamt Páli, í gegnum Sólareignir sem
rekið er af Allt fasteignum.
Að auki eru fjórir aðrir starfsmenn
hjá okkur og þar af ein sem aðstoðar
á skrifstofu og við auglýsingamál.
Svo eru þrír nemar en tveir af þeim
útskrifast á næstu mánuðum sem
löggiltir fasteignasalar. Í sumar verða
því alls átta löggiltir fasteignasalar
starfandi hjá fasteignasölunni.
Á Spáni eru Sólareignir með skrif-
stofu í miðbæ Torrevieja ásamt því að
vera með sölusamninga á Portúgal,
Tenerife á Spáni og í Orlando og
mikilvægt að vera með löggiltan fast-
eignasala í því ferli.“
Leggja metnað í framsetningu
eigna
„Ég útskrifaðist í fyrra sem löggiltur
fasteignasali en byrjaði að vinna hjá
Allt fasteignum fyrir tveimur árum.
Sjálfur er ég nú yfir starfstöðinni í
Reykjavík og erum við með töluvert af
fallegum og góðum eignum á skrá hjá
okkur þar. Við erum með fasteignir
í öllum stærðum, gerðum og verð-
flokkum, hvort sem um er að ræða
heimili, sumarbústaði, skrifstofur eða
atvinnuhúsnæði.
Við leggjum einnig mikinn metnað í
framsetningu og kynningu á eignum
sem eru til sölu eða leigu hjá okkur.
Það er hagur okkar og viðskiptavina
okkar að eignir séu settar fram á
faglegan og lýsandi máta,“ segir Kiddi
að lokum.
Nánari upplýsingar má finna á
alltfasteignir.is
Sími: 560-5500
Kiddi, beinn sími: 612-3524 og
netfang: kristinn@alltfasteignir.is
Páll, beinn sími: 426-555 og 698-
6655 og netfang: pall@alltfasteignir.
is
Netpóstur: alltfasteignir@alltfast-
eignir.is
Traust,
heiðarleiki
og metnaður
í framsetningu
ALLT FASTEIGNIR: