Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 27
KYNNINGARBLAÐ 1. mars 2019 Gott betra BEST
Láttu hrífast með Mótettukórnum
Mótettukór Hallgrímskirkju heldur fjölda tónleika ár hvert með margbreytilegri dagskrá
og lagavali sem höfðar til fjölbreytts
áheyrendahóps. Að þessu sinni verður
flutt rómantísk kórtónlist eftir þá
Brahms, Bruckner og Mendelssohn.
Tónleikarnir verða haldnir í Hallgríms-
kirkju, sunnudaginn 10. mars klukkan
17.00.
Falleg og glæsileg tónlist úr róm-
antíkinni
„Rómantíska tímabilið, sem hófst
skömmu fyrir 1800 og lauk um alda-
mótin 1900, gat af sér ótrúlega falleg
og innlifuð tónverk sem hafa staðist
tímans tönn. Við ætlum að einblína
á þessa tónlist á tónleikunum 10.
mars og ég get lofað því að þetta
verður ákaflega falleg stund. Verkin
eru hefðbundin og tignarleg enda
hefur alltaf einhver klassi verið yfir
þessu tímabili sem mönnum hefur
ekki tekist að leika eftir síðar. Þetta
er alveg tilvalið fyrir þá sem langar
að mæta á tónleika og láta hríf-
ast og vilja gleyma stað og stund,“
segir Katrín Sverrisdóttir, formaður
Mótettukórsins.
Fagmenn í hverju horni
„Mótettukórinn syngur á tónleikunum
en Björn Steinar Sólbergsson leik-
ur á orgel. Hann er einn af fremstu
orgelleikurum á Íslandi. Okkar ástkæri
Hörður Áskelsson stjórnar af sinni
einstöku list. Ásta Marý Stefánsdóttir
sópransöngkona er sjálf úr röðum
kórfélaga og syngur einsöng með
kórnum í einu verki, en Ásta sigraði í
söngkeppninni Vox Domini árið 2018.
Ég hvet alla til þess að næla sér í
miða á viðburðinn sem fyrst á midi.is
eða í miðasölu í Hallgrímskirkju. Þetta
eru tónleikar sem enginn unnandi
fagurrar tónlistar má missa af,“ segir
Katrín.
Ásta Marý Stefánsdóttir.