Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Side 33
 1. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Gott betra BEST Lyfta þungum hlössum léttilega KRANALEIGAN ÁB LYFTING Kranaleigan ÁB Lyfting er klárlega fyrsti kostur þegar þörf er á kranaþjónustu við stærri verkefni enda hefur fyrirtækið meðal annars yfir að ráða einn af stærstu krönum landsins. „ÁB Lyfting hefur verið starfandi síðan árið 1999 en ég hef starfað í þessu fagi í tæplega 40 ár,“ segir framkvæmdastjórinn Ástþór Björnsson. „Við erum með sjö glussakrana sem taka frá 35 tonnum upp í 300 tonn en þessi 300 tonna er einn af stærstu krönum landsins. Hann vegur einn og sér, án nokkurrar hleðslu heil 72 tonn. Þessir kranar eru allir meira og minna stöðugt í útleigu. Við þurfum sjálf að sjá alfarið um alla vinnu á krönunum, þetta eru það sérhæfð verkefni. Stór hluti af verk- efnunum er annars vegar hífingar og lyftingar við byggingarvinnu og hins vegar skipavinna, þ.e. uppskipun. En einnig eru þetta margs konar önnur verkefni þar sem lyfta þarf mjög þungum hlutum,“ segir Ástþór. Meðal þekktra verkefna hjá ÁB Lyftingu eru hífingar á öllum vind- myllum sem reistar hafa verið á landinu. Enn fremur sér fyrirtækið um að lyfta upp gömlum sögufrægum húsum fyrir Minjavernd. „Við hífðum líka rafala og túrbínur í Hellisheiðar- virkjun. Auk þess höfum við skipað upp gröfum fyrir Eimskip í Helguvík og Húsavík, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Ástþór. Þýska stálið blífur Allir sjö glussakranarnir í eigu Krana- leigunnar ÁB Lyfting koma frá einum og sama framleiðandanum, Grove í Þýskalandi. Þjóðverjar eru annálaðir fyrir framleiðslu á framúrskarandi þungavinnuvélum og ÁB Lyfting vill bara notast við það besta á mark- aðnum. Myndir af Grove-krönunum prýða þessa grein. Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða þurfa á fyrsta flokks kranaþjón- ustu að halda geta hringt í síma 896- 2301 fyrir frekari upplýsingar. Einnig má senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið ablyfting@simnet.is. 1. ars 2019

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.