Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 34
1. mars 2019KYNNINGARBLAÐGott betra BEST
Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar er elsta starfandi útfararþjónustan á höfuð
borgarsvæðinu. Rúnar hefur alla
tíð veitt fyrirtækinu forstöðu sem
framkvæmda stjóri þess og útfarar
stjóri. Útfararþjónustan er í eigu
Rúnars og eiginkonu hans, Kristín
ar Sigurðardóttur, og starfa synir
þeirra, Elís og Sigurður, þar ásamt
föður sínum.
Orðsporið skiptir útfararþjónustu
miklu. „Ef maður sinnir sínu starfi
vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir
Rúnar sem hefur yfir 35 ára reynslu
af útfararþjónustu. „Fyrst og fremst
þarf að taka tillit til þess að fólk er í
sárum eftir ástvinamissi. Við þurfum
að gæta að því sem við gerum og
segjum og eins að nálgast fólk með
hlýju og auðmýkt. Það getur verið
mjög erfitt að bjóða fólki við þessar
aðstæður þjónustu gegn greiðslu en
þetta hefur lærst í gegnum árin og
við tökum mikið tillit til þess hvernig
aðstæður eru hverju sinni,“ segir
hann.
Formaður Félags íslenskra
útfararstjóra
Ásamt daglegum störfum við hefð
bundna útfararþjónustu er Rúnar
Geirmundsson formaður Félags
íslenskra útfararstjóra. Félagið hefur
verið starfrækt í yfir áratug og hefur
Rúnar verið formaður þess allt frá
upphafi. Aðaltilgangur félagsins er
skapa vettvang til að halda utan
um siðareglur útfararstjóra. „Starf
mitt sem formaður felst aðallega í
því að halda utan um fundastarf og
framfylgja reglum og samþykktum
aðalfunda. Ég sæki einnig fundi
erlendis enda á félagið í talsverðum
erlendum samskiptum. Siðaregl
ur evrópskra útfararstjóra eru til
að mynda grunnur íslensku siða
reglnanna,“ segir Rúnar. Ekki er
lagaleg skylda að útfararstjóra séu
í félaginu en nánast allir starfandi
útfararstjórar eru þó félagsmenn og
hafa undirritað siðareglur félagsins.
Virðingin og alúð
Rúnar hefur unnið við útfarar
þjónustu frá því 1983, fyrst hjá
Kirkjugörðunum og síðan í eigin
fyrirtæki. Aðspurður segist hann
hafa lært það á löngum ferli að það
skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk
aðhyllist eða hvort það aðhyllist trú
yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna sé
alltaf í forgrunni. „Og það þurfum við
alltaf að hafa í huga, án þess að taka
afstöðu til trúmála. Hlýja, auðmýkt
og virðing er það leiðarljós sem við
fylgjum alltaf.
Þegar andlát ber að garði er
mikilvægt að hafa samband við
útfararþjónustu sem fyrst,“ segir
Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja
hinn látna af dánarstað og í líkhús og
síðan að byrja að undirbúa kistu
lagninguna. Útfararstjórinn heim
sækir yfirleitt aðstandendur daginn
eftir og þeir leggja þá fram óskir sín
ar varðandi framkvæmd kistulagn
ingar og síðan jarðarfarar. Í því felst
í flestum tilfellum að velja prest eða
athafnarstjóra og síðan að tímasetja
allar athafnir og bóka grafartöku eða
bálför. Næsta skref er svo að ákveða
hvað kemur í okkar hlut að sinna en
við sjáum um allt er lýtur að undir
búningi og framkvæmd útfara. Til að
mynda höldum við utan um öll sam
skipti við aðstandendur, tónlistarfólk,
kirkjur, blómabúðir, kirkjugarða og
alla þá sem koma að útför.“
Íslensk hönnun og handverk
Útfararþjónusta Rúnars
Geirmundssonar leggur mikið upp
úr því að vera með fallegar kistur
á góðu verði sem standast ströng
ustu kröfur um umhverfisvernd.
Algengastar eru hinar hefðbundnu
hvítu kistur en alltaf er eitthvað um
að fólk vilji harðviðar kistur, til dæmis
eik eða mahóní. Val á kistum getur
vafist fyrir aðstandendum enda úr
valið nokkuð. „Við eigum umhverfis
vænar og fallegar hefðbundnar
hvítar kistur, sem eru algengastar, en
einnig töluvert úrval af viðarkistum.“
Í fyrsta sinn á Íslandi hefur Útfarar
þjónusta Rúnars Geirmundssonar
nú látið hanna og smíða íslenskar
kistur úr íslenskum við í samstarfi við
Þorstein B. Jónmundsson trésmið.
„Við höfum hannað sérstaka kistu
og duftker út frá hugmyndinni um
íslenska kistu úr alíslenskum við til
brennslu og jarðsetningar,“ útskýrir
Rúnar. Kisturnar eru úr við sem er
unninn og þurrkaður í Hallorms
staðarskógi. „Þessi kista er mjög
falleg, úr grófum við og ólökkuð eða
máluð á náttúrulegan máta.“
Nánari upplýsingar er að finna á
utfarir.is eða í síma 5679110 allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
Fjölskyldu-
fyrirtæki í áratugi
1. mars 2019 1. mars 2019