Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Page 50
50 1. mars 2019TÍMAVÉLIN
E
itt dularfyllsta stríð sem háð
hefur verið er hið svokall-
aða Þrjú hundruð þrjátíu og
fimm ára stríð. Enginn veit
fyrir víst hvort stríðið var nokkurn
tímann háð, á milli Hollendinga
og Scilly-eyjaskeggja. Að minnsta
kosti var engu skoti hleypt af og
enginn féll í stríðinu. Til öryggis
var samið um frið árið 1986.
Síðasta vígið
Enska borgarastyrjöldin var raun-
veruleg og áþreifanleg. Hún var
háð milli konungssinna og lýð-
veldissinna árin 1642 til 1651
og lauk með því að Karl II. Eng-
landskonungur var hálshöggvinn.
Við tók áratugur af stjórn hins
óvinsæla Olivers Cromwell og svo
var krúnan endurreist.
Cromwell þurfti að hafa mikið
fyrir að knésetja konungsmenn
og elti þá til endimarka ríkis-
ins. Cornwall-skagi, í suðvestur-
hluta Englands, var eitt af síðustu
vígjum konungssinna. Cromwell
náði stærstum hluta skagans á
sitt vald árið 1648 en þá flúði kon-
ungsflotinn til eyjanna Scilly,
suðvestur af tanganum. Scilly-
eyjar voru forn áningarstaður
víkinga og þar stóð mikið virki. Á
þessum tíma voru eyjarnar í eigu
Johns Granville, jarls af Bath og
eins mesta herforingja kon-
ungssinna.
Stríðsyfirlýsing Tromp
Víkur nú sögunni aust-
ur yfir Norðursjó
til Hollands. Hol-
lendingar voru til-
tölulega nýtt ríki
og höfðu öðlast sitt
sjálfstæði frá Spán-
verjum með dyggum
stuðningi Englendinga.
Þjóðirnar voru líkar og byggðu
mátt sinn á öflugum her og kaup-
skipaflota. Þegar kom að borgara-
styrjöldinni þurftu Hollendingar
að velja sér bandamann. Völdu
þeir þá Cromwell þar sem þeir
töldu hann líklegri til þess að
enda ofan á.
En ákvörðunin varð Hol-
lendingum dýrkeypt. Hinn öfl-
ugi floti Granville herjaði á hol-
lensk kaupskip í Ermarsundi og
rændi miklu magni af dýrmæt-
um varningi. Hollendingar urðu
að lokum þreyttir á þessu og árið
1651 sendu þeir flotaforingjann
Maarten Tromp með tólf herskip
til Scilly-eyja til að krefjast bóta
fyrir skipin og vörurnar. Honum
varð hins vegar ekki ágengt í för
sinni og fékk í raunar engin hald-
bær svör frá heimamönnum. Á
þessum tíma var næstum allt
England í höndum Cromwell og
brá Tromp þá á það ráð að lýsa
yfir stríði gegn Scilly-eyjum.
Tromp aðmíráll yfirgaf eyj-
arnar án þess að hleypa af skoti
og tveimur mánuðum síðar gafst
konungsflotinn formlega upp
fyrir þingsinnum. Tromp sneri
aftur til Hollands en þar þótti sú
ákvörðun hans að lýsa yfir stríði
gegn eyjunum undarleg og hrein-
lega vandræðaleg. Enn þá vand-
ræðalegra hefði verið að falast
eftir friðarsamningum við Scilly-
eyjar eða gefa formlega út yfirlýs-
ingu þess efnis. Var því ákveðið að
þegja málið í hel og láta eins og
þetta hefði aldrei gerst. Skömmu
síðar hófst reyndar stríð milli Hol-
lendinga og Englendinga, sem þá
var í höndum Cromwell.
Goðsögn
Leið nú tíminn, árin og aldirnar,
og allir leikmenn úr þessu leikriti
hurfu yfir móðuna miklu. Eyja-
skeggjar á Scilly gengu í gegn-
um sína sjóskaða og Tyrkjarán og
hugsuðu lítt um stríðið við Hol-
lendinga. Hollendingar byggðu
upp mikið flotaveldi og lögðu
undir sig eyjaklasa í Vestur- og
Austur-Indíum en létu Scilly-eyj-
ar í friði.
Það var ekki fyrr en á síðari
hluta 20. aldar sem fræðimenn
fóru að gefa þessu stríði gaum.
Aðeins ein skrifleg heimild er
til um stríðsyfirlýsingu Tromp,
það eru æviminningar Bulstrode
Whitelocke lávarðar. Hafa menn
efast um þessa stríðsyfirlýsingu
og sagt að hún hafi kannski frekar
verið innistæðulaus hótun. Aðr-
ir hafa bent á að Tromp hafi ekki
haft neitt umboð til þess að lýsa
yfir stríði, hvorki gegn ríkjum né
eyjaklösum. Stríðið á milli
Hollendinga og Scilly-
eyja varð goðsögn.
Friðarsamningar
Árið 1890 urðu Scilly-eyjar sjálf-
stætt sveitarfélag. Í dag búa þar
rúmlega 2.000 manns og eru þeir,
rétt eins og Hollendingar, þekktir
fyrir mikla blómarækt. Sagn-
fræðingur að nafni Roy Duncan
sat í sveitarstjórninni árið 1985,
og hafði hann mikinn áhuga
á þessu meinta stríði við Hol-
lendinga. Taldi hann sjálfur að
stríðið hefði aldrei raunverulega
átt sér stað.
Duncan skrifaði hollenska
sendiráðinu í Lundúnum bréf
þess efnis og fékk til baka svar
um að Hollendingar sjálfir litu
svo á að stríðið væri raunveru-
legt. Hefði það staðið yfir í þrjú
hundruð þrjátíu og fimm ár með
engum formlegum vopnahléum.
Duncan ákvað þá að bjóða hol-
lenska sendiherranum, Jonkheer
Rein Huydecoper, til Scilly til þess
að semja um frið. Þáði hann boð-
ið og skrifaði undir 17. apríl árið
1986. n
Blóðlaust stríð í 335 ár
n Hollendingar gegn Scilly-eyjum n Varð að goðsögn„Duncan skrifaði hol-
lenska sendiráðinu í
Lundúnum bréf þess efnis og
fékk til baka svar um að Hol-
lendingar sjálfir litu svo á að
stríðið væri raunverulegt
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Tromp flotaforingi Lýsti yfir
stríði og fór tómhentur heim.
Scilly-eyjar Þekktar fyrir blómarækt.
Roy Duncan Samdi um frið við Hollendinga.