Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Qupperneq 60
60 FÓKUS 1. mars 2019
Á
gústa Kolbrún er um þess-
ar mundir eina konan sem
stundar nám við Tækni-
skólann í Hafnarfirði. Þar
er hún á sinni lokaönn við að
læra pípulagnir, en einungis fjór-
ar konur hafa útskrifast með
sveinspróf úr greininni á Íslandi.
Af píparaættum
Ágústa segir áhuga sinn á pípu-
lögnum hafa kviknað þegar hún
ákvað að endurnýja baðherbergi
íbúðar sinnar en tímdi ekki að
greiða pípulagningamanni fyrir.
„Ég ákvað að skrá mig og sjá
hvernig mér fyndist námið. Svo
þegar ég hugsa lengra, þá eru
báðir afar mínir pípulagninga-
menn svo það kann einnig að
hafa haft áhrif á ákvörðun mína.
Ég hafði gaman af því að fá að
vera með þeim í vinnunni, fá að
fikta og spreyta mig,“ segir Ágústa
í samtali við blaðakonu.
Ágústa, sem er tuttugu og átta
ára, er einnig með meirapróf
ásamt litlu vinnuvélaréttindun-
um sem hún fékk árið 2011.
Hvað er það sem þér finnst
skemmtilegt við að læra
pípulagnir?
„Það er í rauninni hvað þetta
er fjölbreytt, ég hef alltaf verið
þannig að ég get ekki verið kyrr og
mér leiðist að gera sama hlutinn
aftur og aftur. Að sitja við tölvu
finnst mér til dæmis afskaplega
leiðinlegt. Það sem gaf mér hvað
mestan áhuga er að fá að koma
inn á heimili fólks, fá að hjálpa
því og setja mína sköpunargleði í
verkið. Svo hefur mér alltaf fund-
ist gaman að byggja og grafa.“
Hvað er það sem þið lærið?
„Ég hafði einmitt ekkert vit
á pípulögnum áður en ég fór
í þetta nám en þetta er mjög
áhugavert. Við þurfum til dæm-
is að læra hvað vatn hefur mik-
il áhrif á líf okkar, hvar við fáum
það og hvernig. Svo lærum við
hvaða efni við þurfum að nota til
þess að við séum ekki að menga
vatnið. Hvað þarf að gera svo
það myndist engin eiturefni ef
það kviknar í og svo margt fleira.
Þetta er í rauninni ekkert eitt. Svo
er líka hægt að sérhæfa sig. Sumir
eru kannski sérmenntaðir í því að
setja upp sprinkler-kerfi í búðum,
aðrir kannski í lagnafóðrun. Sum-
ir vilja bara vinna í nýjum lögnum
en aðrir í þeim gömlu og í endur-
nýjun. Þetta er mjög fjölbreytt og
þú ert aldrei að gera sama hlut-
inn. Bara það að skipta um bað-
vask heima hjá einhverjum getur
verið mismunandi á milli íbúða.“
Ekki óþrifalegt starf
Ágústa er nú á lokaönn sinni í
náminu og við tekur vinna í tvö
ár áður en að hún getur tekið
sveinsprófið.
„Ég er búin að vinna örlítið
við þetta, en mig langaði svo að
ná skólanum alveg fullkomlega
og svo ætla ég að byrja að vinna.
Þetta verður örugglega mikil
spenna, en maður verður að vera
búinn að vinna við pípulagnir í
tvö ár áður en maður getur farið í
sveinsprófið.“
Af hverju telur þú að það séu
svona fáar konur sem fara í iðn-
nám?
„Þeim hefur sem betur fer
fjölgað heilmikið, en það er enn
bara í lágmarki og þeim má fjölga
meira. Ég skil ekki kvenmenn,
eins og þetta með pípulagnirnar.
Ég var svo sem aldrei komin í þær
pælingar að þetta væri bara kúk-
ur og piss eins og margir hugsa.
Að þetta væri bara afar óþrifan-
legt starf, en það er langt frá því að
vera satt. Þetta er orðið svo þrifa-
legt í dag og svo getur þú líka valið
þér verkefnin. Ef þú vilt ekki taka
klóakið hjá einhverjum þá þarft
þú þess ekki. Stelpur eru líklega
almennt hræddar við að þurfa að
fara í gúmmístígvél upp að hálsi
og kafa í kúk, en þetta er svo langt
frá því að vera svoleiðis. Í flestöll-
um störfum þá er eitthvað sem þú
þarft að takast á við og þú verður
þá bara að tækla það, það er eins
í þessu starfi. Þetta er ekki eins
og það var í gamla daga og það
þarf bara að opna augu kvenna
og sýna þeim að þetta sé eitt-
hvað sem þær geta alveg gert. Það
eru ekki bara karlmenn sem geta
starfað við þetta.“
Ert þú eina konan í bekknum?
„Ég er eina konan að læra
pípulagnir í skólanum þessa önn.
Það hefur alltaf komið svona ein
og ein kona, en fyrir ári þá voru
þrjár stelpur að læra saman, sem
hefur bara aldrei gerst í sögu
pípulagningar á Íslandi. Þeir voru
rosalega hrifnir af því kennararn-
ir. Það eru að ég held fjórar kon-
ur á Íslandi einmitt eins og staðan
er núna sem eru með sveinspróf í
pípulagningum – ég held reyndar
að þær séu allar meistarar.“
Telur þú að fleiri konur myndu
finna sig í þessu námi ef þær próf-
uðu?
„Það er áfangi í boði núna sem
ég vildi óska að hefði verið þegar
ég var að stíga mín fyrstu skref í
menntaskóla. Í honum færð þú að
prófa hluta af öllum iðngreinun-
um og færð innsýn í þær. Þú færð
að prófa að setja saman lagnir,
mála, múra og fleira og ég held
einmitt að fólk sé ekki alveg búið
að uppgötva þennan áfanga. Ég
mæli með því að allir skelli sér í
djúpu laugina ef þeir hafa áhuga
á og það er aldrei of seint að læra.
Þú getur alltaf fundið þér eitt-
hvað.“
Dýrasta vinnan
Hvernig fór þetta með baðher-
bergið, er það tilbúið?
„Núna erum við, þökk sé
pípulagningamönnunum sem ég
þekki og reynslu minni af því að
læra, farin að skipuleggja þetta
töluvert betur en ég hefði annars
gert. Við erum að vonast til þess
að geta tæklað þetta á þessu ári,
en annars gerum við það snemma
á næsta ári. Þetta er dýrasti hlut-
inn í húsinu og það þarf alltaf að
gera kostnaðaráætlun. Þegar hún
er tilbúin þarf alltaf að hafa eitt-
hvað umfram ef eitthvað skyldi
klikka og þá hefur þú rými til þess
að laga það. Sem betur fer þarf ég
ekki að borga einhverjum fyrir að
gera þetta fyrir mig, en þetta er
samt dýrasta vinnan. Ég held að
ég sé komin upp í sjö hundruð
þúsund krónur og baðherbergið
mitt er ekki stórt.“
Að lokum hvetur Ágústa konur
til þess að drífa sig í iðnnám, sann-
leikurinn sé sá að það vanti fleiri
konur í störfin og að þær geti sinnt
þeim jafn vel og karlmennirnir. n
LOKAÐIR STURTUKLEFAR
MEÐ TOPPI, SPORNA
GEGN RAKA OG MYGLU
Kíktu á sturta.is og
skoðaðu úrvalið
S. 856 5566
Ágústa vill fleiri konur í
pípulagninganám„Það eru ekki bara
karlmenn sem
geta starfað við þetta
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is