Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 44
44 FÓKUS 2. águst 2019
Athafnamaðurinn Einar Bárðarson
hefur komið víða við og verið áberandi
í opinberri umræðu og menningarlífi.
Hann hefur stigið á svið í Söngkeppni
framhaldsskólanna, stofnað útvarps-
stöð, samið vinsæl dægurlög, haldið
íþrótta- og menningarviðburði, vakið
athygli á umhverfismálum og plokk-
að rusl víða af miklum móð, unnið í
ferðaþjónustu, verið forstöðumaður
Höfuðborgarstofu og samskiptastjóri
Hafnarfjarðarbæjar. Þá stýrir hann
einum vinsælasta útvarpsþætti
landsins „Bakaríinu“ á laugardags-
morgnum á Bylgjunni svo aðeins eitt-
hvað sé nefnt. Einar er nýtekinn við
starfi framkvæmdastjóra Votlendis-
sjóðs og DV tók hann í yfirheyrslu.
Hjúskaparstaða og börn?
Hamingjusamlega giftur Áslaugu Thelmu Einarsdóttir úr
Keflavík og saman eigum við hjónin tvö yndisleg börn.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst
krakki?
Ég er bara ekki viss enda er ég ekki orðinn neitt þannig að
það liggur ekkert á að vera hugsa svo langt fram í tímann.
Skemmtilegast að gera?
Gleðja fjölskylduna mína.
En leiðinlegast?
Það er hellingur af alls konar, en ég passa mig
á að koma ekki nálægt því.
Fyrsta atvinnan?
Blaðberi og blaðasali Dagblaðsins á
Selfossi hjá Pétri Plötu eins og hann
var kallaður. Fluttist svo yfir til
Bárðar í GÁB þegar Dagblaðið og
Vísir sameinuðust undir merkjum
Dagblaðsins Vísis, síðar DV.
Býrðu yfir ein-
hverjum leyndum
hæfileikum?
Já, ég get flogið en ég
held því bara fyrir mig.
Besta ráð sem þú
hefur fengið?
Já, það er klárlega „Ekki
opna útvarpsstöð Einar“,
skemmst er frá því að segja
að ég hlustaði ekki á Jón Axel
Ólafsson, vin minn, með það ágæta
ráð. Fyndnara er að hann stýrir stöðinni
í dag þannig að hann er örugglega ennþá
að skammast yfir þessu uppátæki hjá
mér.
Fyrsta minningin þín?
Með mömmu minni uppi í sveit á Espiflöt,
þar sem móðuramma mín og afi minn
bjuggu. Ég var nú svo lítill og mjög ungur
á þeim árum að ég veit ekki hvort þær eru
allar raunverulegar, en þær eru ljúfar.
Leiðinlegasta húsverkið?
Það er nú svo sem ekki mikið, þetta þarf
allt að ganga einhvern veginn og við
skiptum þessu eitthvað á milli okkar,
ekki getum við látið börnin vinna þetta allt
hahahahaha.
Uppáhaldshljómsveit og af hverju?
Skítamórall og Á móti sól af mjög persónulegum ástæðum, því þessir góðu drengir
drógu lagahöfundinn í mér fram á sjónarsviðið og gáfu tækifæri til að blómstra. Aðrir,
og ég, hafa síðan notið góðs af því, en þeir tókur sénsinn á mér og fyrir það er ég þeim
óendanlega þakklátur. Tónlistarsmekkur minn er svo allt annað og miklu flóknara kort
að teikna.
Það erfiðasta sem þú hefur gert?
Það langerfiðasta sem ég hef farið í gegnum til þessa var slys sem varð í hjólreiða
keppni fyrir tveimur árum hjá mér. Keppni sem ég skipulegg og ber ábyrgð á. Þar
slösuðust níu manns alvarlega og margir fleiri, en mismikið. Klukkutímarnir sem liðu
frá slysi og þangað til ég vissi að fólk var ekki í lífshættu eru þeir erfiðustu sem ég
hef upplifað og fyrir mjög marga auðvitað. Ég heimsótti alla sem ég náði til þremur
dögum eftir slysið, það var erfitt en mér fannst það nauðsynlegt. Þetta kenndi manni
gríðarlega mikið.
En mest gefandi?
Tónleikar sem ég hélt í áraraðir fyrir Styrktarfélag Krabbameinssjúkra barna ásamt
vinum og kunningjum í poppinu, koma fyrst upp í hugann. En annars reyni ég að velja
mér verkefni, vinnu og áhugamál þar sem umhverfið er nærandi og gefandi. Lífið er of
stutt til annars.
Hvaða lag (önnur en þín eigin) hefðir þú viljað semja?
„Ómissandi fólk“ eftir Magga Eiríks, ráðlagður dagskammtur af auðmýkt fyrir besser
vissera eins og mig.
Hver myndi skrifa ævisögu þína?
Arnar Eggert Thoroddsen er búinn að skrifa fyrri hlutann, það kemur í ljós á næstu
árum hvort það verður ástæða til þess að bæta við það.
Stærsta stund þín í lífinu?
Þær eru fimm og þær eru í þessari röð. Þegar ég sá konuna mína í fyrsta skiptið, seinna
við breyttar aðrar aðstæður að hún var tilbúin að trúlofast mér. Þegar við svo giftum
okkur, sem var dagur sem ég gleymi aldrei og fæðing barnanna okkar í kjölfarið.
Mannkostir þínir?
Ég er mjög gjarn á að segja já.
En lestir?
Ég er mjög gjarn á að segja já.
Eitthvað að lokum?
Það er óþarfi að taka lífið of alvarlega, það sleppur enginn lifandi frá því.
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Ú T S A L A
Ú T S A L A
Ú T S A L A
10 - 40 %
AFSLÁTTUR
Í VERSLUN OKKAR
YFIRHEYRSLAN
Marín Manda bíður eftir barni
M
arín Manda Magnúsdóttir er í mikilli hreiðurgerð þessa dag-
ana en hún á von á sínu þriðja barni síðar í mánuðinum með
Hannesi Frímanni Hrólfssyni. Parið þykir með þeim glæsi-
legustu en Hannes starfar sem framkvæmdastjóri eignarstýr-
ingar hjá Kviku. Undir þessa fallegu mynd skrifar hún: „Pakka pínulitl-
um krúttlegum fötum í tösku – stundum finnst mér óraunverulegt að
það sé að koma baby mjög fljótlega. Það eru nefnilega rúm 11 ár síðan
síðasta gull kom í heiminn. Hlökkum öll svo mikið til að sjá hana.“ n
S
öngkonan Jóhanna Guð-
rún Jónsdóttir birti þessa
fallegu mynd af nýfædd-
um syni sínum ásamt
systur sinni, Margréti Lilju,
þriggja ára. Undir myndina
skrifar hún Pure Love, eða sönn
ást og uppsker mikil viðbrögð
enda börnin bæði fögur eins og
þau hafa kyn til. Jóhanna Guð-
rún giftist eiginmanni sínum,
Davíð Sigurgeirssyni, sem einnig
starfar við tónlist, í september á
síðasta ári en sonur þeirra kom í
heiminn 19. júní síðastliðinn. n
Sönn systkinaást
Einar
Bárðarson