Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 6
6 02. águst 2019FRÉTTIR KVADDUR MEÐ SORG Í HJARTA Guðmundur Ragnar Einarsson gre@dv.is n Sigurður Magnason læknir er látinn n Ötull baráttumaður fyrir aukinni vitundarvakningu um vanda ungra fíkla S igurður Magnason læknir lést sunnudaginn 21. júlí síðastliðinn, fimmtíu ára að aldri. Sigurður átti ættir að rekja norður í land. Eftir útskrift úr Menntaskólanum á Akureyri stundaði hann nám í læknisfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2004. Stuttu eftir út­ skrift hélt hann til Noregs í sér­ nám í barnalækningum og starfaði sem læknir við Barneklinikken í Bergen fram á mitt ár 2012, þegar hann sneri aftur heim til Íslands. Eftir heimkomuna starfaði hann sem læknir við heilsugæsluna í Hamraborg í Kópavogi og við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Hann vann síðan á Heilsugæslu­ stöðinni í Hlíðunum í Reykjavík þar til hann lést. Samráðsvettvangur foreldra Sigurður barðist ötullega fyrir aukinni vitundarvakningu um vanda ungra fíkla og var einn af stofnendum samstarfshópsins Allsgáð æska – vímuefnaforvarn­ ir og valdefling foreldra. Hans hugðarefni var að búa til sam­ ráðsvettvang til að valdefla for­ eldra barna með vímuefnavanda. Í þessum samstarfshópi voru full­ trúar frá Vímulausri æsku, IOGT á Íslandi, Foreldrahúsi og Olnboga­ börnum. Markmiðið var að búa til vettvang þar sem foreldrar gátu miðlað reynslu sinni, í þeirri von að þeirra saga gæti hjálpað öðrum. Sigurður skipulagði nokk­ ur málþing þessu tengdu, sem DV sýndi beint frá. Það fyrsta var haldið 1. september í fyrra í Veröld, húsi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Tilgangur mál­ þinganna var að miðla upplýsing­ um og draga fram í dagsljósið þá sem hefðu eitthvað fram að færa sem væri valdeflandi fyrir foreldra. Málþingin voru opin öllum, þau voru vel sótt og hjálpuðu mörgum. Vakti athygli hvert sem hann fór DV átti í miklu og góðu samstarfi við Sigurð í tengslum við þetta verk efni og sá undirritaður um að hjálpa honum við undirbúninginn sem stóð yfir í mörg ár. Sigurður brann fyrir þetta verkefni. Hann lagði sig allan í að hjálpa öðrum og vakti athygli hvert sem hann fór, svo mikill var krafturinn og ástríð­ an. Sigurður var einnig gagnrýn­ inn á íslenska velferðarkerfið og það úrræðaleysi sem blasir við for­ eldrum barna með fíknivanda. Sigurður skilur eftir sig tvær dætur. Útför Sigurðar verður gerð frá Hjallakirkju í Kópavogi þann 8. ágúst næstkomandi klukkan 13. DV vottar dætrum, fjölskyldu og vinum Sigurðar innilegar sam­ úðarkveðjur. Við minnumst Sig­ urðar sem einstaks manns og samstarfsfélaga. Hlustaði af athygli Frú Vigdís Finnbogadóttir á einu af málþinginu sem Sigurður stóð fyrir. Ljósmynd: DV/Hanna Bára Tómasdóttir, Óskar Vídalín Kristjánsson, Andrea Ýr Arnars­ dóttir og Aníta Rún Óskarsdóttir eru forsvarsmenn Minningarsjóðs Einars Darra og forsprakkar átaksins Ég á bara eitt líf. Þau minnast Sigurðar með hlýju og kveðja hann með sorg í hjarta. „Sigurður Magnason, þessi dásamlegi maður, var einn af þeim fyrstu sem studdu og hvöttu okkur í Minningarsjóði Einars Darra áfram í þjóðarátakinu Ég á bara eitt líf. Hann var okkur ómetanlegur hlekkur og aðstoð í öllu okkar starfi, við gátum alltaf treyst á hann ef okkur vantaði trygga hjálparhönd, faglega ráðgjöf eða vináttusamtal og verðum við honum ávallt virkilega þakklát. Hans verður sárt saknað og kveðjum við hann með virki­ lega sorg í hjarta,“ segja þau og votta fjölskyldu Sigurðar samúð sína. „Minning um eins góð­ hjartaðan, greindan og yndislegan mann mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Hugur okkar er hjá dætrum hans og fjölskyldu, innilegar samúðarkveðjur, ást og kærleikur til þeirra. Þúsund þakkir fyrir allt, elsku Sigurður, og sérstakar þakkir fyrir allt þitt frábæra starf í þágu lýðheilsu Íslendinga. Hvíldu í friði elsku vinur.“ Ómetanlegur hlekkur Minnast Sigurðar með hlýju Hópurinn á bak við minningarsjóð Einars Darra og Ég á bara eitt líf á málþingi í Veröld. Ljósmynd: DV/Hanna Borgar Magnason, bróðir Sigurðar, gaf DV góðfúslega leyfi til að birta minningarorð sem hann deildi á Facebook um bróður sinn. „Undanfarnar vikur höfum við bræðurnir verið í sumarfríi og mikið saman með dætur okkar. Mikið óskaplega sem ég er þakklátur fyrir það nú. Betri stóra bróður hefði ég ekki getað hugsað mér. Ég er svo óendanlega stoltur af þér elsku bróðir minn og þakklátur fyrir þig. Svo fagur og hjartahlýr. Guð gefi þér nú ró bróðir minn en hinum líkn sem lifa.“ Fagur og hjartahlýr Syrgir bróður sinn Borgar Magnason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.