Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Á stin mín hún Fanney er sem sagt komin með leghálskrabbamein og virðist sem þær frumu- breytingar sem átt hafa sér stað undanfarin ár hafi algerlega yf- irsést læknum í þeim strokum og öðrum skoðunum sem hún hefur mjög reglulega og sam- viskusamlega farið í.“ Þetta skrifaði Ragnar Snær Njálsson í átakanlegri fær- slu á Facebook í ágúst á sein- asta ári. Eiginkona hans, Fann- ey Eiríksdóttir, lést þann 6. júlí síðastliðinn eftir tæplega árs langa baráttu við illvígt leg- hálskrabbamein. Það vakti athygli að Fann- ey skyldi greinast með leg- hálskrabbamein á háu stigi þrátt fyrir að hafa farið reglu- lega í krabbameinsskoðun. En tilfelli Fanneyjar er þó ekki einsdæmi. Konur á aldrinum 23–65 ára eru hvattar til að fara í leg- hálskrabbameinsleit á þriggja ára fresti en hér á landi hefur skipulögð leit að leghálskrabba- meini dregið úr nýgengi um 70 prósent og dánartíðni um 90 prósent frá því leit hófst árið 1964. Yfirlæknir hjá Krabbameins- félagi Íslands bendir á í samtali við DV að engin skimun sé þó 100 prósent næm. Ekki eru til sú tegund skimunar þar sem öll tilfelli greinast og því eigi aldrei gera ráð fyrir 100 prósent ár- angri. Með æxli á stærð við hand- bolta Fanney var komin 21 viku á leið með sitt annað barn þegar hún fékk þær fréttir að hún væri með leghálskrabbamein á háu stigi. Barátta Fanneyjar vakti þjóðarathygli en þau hjónin töluðu opinskátt um veikindi hennar meðan á þeim stóð. Hjónin fóru meðal annars í viðtal í þættinum Ísland í dag, þar sem fram kom að þegar Fanney var komin rúmlega 20 vikur á leið fór að blæða líti- lega. Hún gekkst undir rann- sóknir þar sem tekið var sýni úr leghálsinum. Læknar höfðu þó ekki áhyggjur; Fanney hafði alltaf farið samviskusamlega í allar skoðanir. „Þeir sögðu: „Þú hefur aldrei verið með neinar frumu- breytingar og það tekur frumu- breytingar 10–15 ár að verða að krabbameini“,“ sagði Fanney í viðtalinu. Annað kom þó á daginn og Fanney reyndist vera með æxli á stærð við handbolta í legháls- inum. Þegar Fanneyju var tjáð að hún væri með leghálskrabba- mein var henni jafnframt sagt að meinið væri það langt geng- ið að það væri ekki lengur skurðtækt og því þyrfti því að hefja lyfjameðferð hið snarasta. Hjónin völdu hins vegar að bíða með alla meðferð þar til litli drengurinn væri kominn í heiminn. Nokkrum mánuð- um síðar var sonur þeirra tek- inn með keisaraskurði. Fann- ey gekkst í kjölfarið undir stífa lyfja- og geislameðferð og nokkrum vikum síðar var þeim hjónum sagt að allt liti vel út og æxlið sæist varla lengur. Gleðin var hins vegar skammvinn. Stuttu síðar fór Fanney í jáeindaskanna og kom þá í ljós að meinið hafði dreift sér. Fanney var komin með meinvörp á nokkrum stöðum í lungum, bak við hjartað, í bein- um og víðar. Krabbameinið var komið á fjórða stig. Að lokum tóku hjónin þá ákvörðun að hætta hefðbundinni meðferð og einbeita sér að því að gera dagana bærilega hjá Fanneyju. Hún lést sem fyrr segir þann 7. júlí síðastliðinn. Fór fjórum sinnum til læknis „Ég var frekar bitur lengi, af því að það tók svo langan tíma að fá almennilega skoðun og grein- ingu,“ segir Steinunn Steinars- dóttir í samtali við DV. Hún greindist með leghálskrabba- mein í september 2010. Hún hafði ávallt sinnt kallinu og mætt í krabbameinsskoðun þegar hún fékk boð um slíkt. Þegar hún fór í slíka skoðun í janúar 2010 reyndist sýnið hreint. Steinunn greindist engu að síður með krabbamein í sept- ember sama ár, eftir að hafa fjórum sinnum leitað til kven- sjúkdómalæknis. Krabba- meinið reyndist þá svo langt gengið að það þurfti að fjar- lægja bæði legháls og leg. „Ég held að þetta hafi gerst óvenju hratt hjá mér, það er að segja, æxlisvöxturinn, það er víst ekki algengt að þessi leg- hálskrabbamein ágerist svona hratt. Ég hafði samt aldrei heyrt um það. Ég hafði heyrt um frumubreytingar sem væri fylgst með milli ára og keilu- skurði svo ég hélt að ég væri nokkuð örugg ef ég færi reglu- lega í tékk. Ég sá svo sjálf hvað þetta gerðist snöggt þegar það fór að vaxa æxli í örinu eftir leg- og leghálsnámið og það endaði með annarri skurðaðgerð og lyfja- og geislameðferð.“ Steinunn hefur verið krabba- meinslaus síðan hún lauk með- ferðinni árið 2011. „Ég heyrði síðar hjá lækni að það hefðu sést einhverjar frumu- breytingar í krabbameins- skoðuninni sem ég fór í áður en þetta gerðist allt, en ég var aldrei látin vita af því. Kannski voru þær ekki það miklar að það væri álitið hættulegt, enda ganga þær oft til baka án þess að nokkuð sé gert og þróunin líka oftast hæg. Sem betur fer er það oftast þannig og annars hægt að grípa inn í hjá flestum,“ segir Steinunn um leið og hún hvetur konur til að mæta reglu- lega í krabbameinsskoðun, en þó ekki treysta alfarið á hana. Mikilvægt sé að fara til læknis sem viðkomandi treystir. Orgaði af sársauka Árið 2013 kom út heimilda- myndin Ég gafst aldrei upp. Þar var sögð saga Heiðu Dís- ar Einarsdóttur sem greindist með leghálskrabbamein árið 2010. Hún lést tveimur árum síðar, þá aðeins 23 ára að aldri. Í myndinni var Heiðu Dís fylgt eftir síðustu mánuðina í lífi hennar. Einar Hólm Jónsson, fað- ir Heiðu, ræddi um baráttu dóttur sinnar í Stundinni á sín- um tíma. Fram kom að áður en Heiða Dís greindist með krabbamein hefði hún reglu- lega farið í leghálskrabba- meinsleit eins og konum er ráðlagt að gera. En síðan fór Heiða Dís að finna fyrir miklum tíðablæðingum. Hún leitaði til fjölmargra lækna en fékk ávallt þau svör að þetta væri eðlilegt: það væri einfaldlega mismun- andi hvað konur hefðu miklar blæðingar. 2. ágúst 2019 Engin skimun er 100 prósent næm Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is n Fanney Eiríksdóttir greindist með 4. stigs krabbamein þrátt fyrir að hafa ávallt verið undir eftirliti Fanney og sonur hennar Erik Fjalar. Fanney og Ragnar: Fanney barðist hetjulega við meinið allt til enda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.