Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 36
FÓKUS 2. ágúst 201936
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
www.gilbert.is
Ástin kviknar um versló
Nú er verslunarmannahelgin framundan en ófá
samböndin hafa myndast þessa helgi, víðs vegar
um landið. Sum endast kannski aðeins helgina á
meðan önnur endast ævina. DV tók saman fjögur
pör sem hafa innsiglað ástina þessa stærstu
ferðahelgi landsins.
T
ónlistarmaðurinn Bergsveinn Arilíusson, betur þekktur sem Beggi í Sóldögg, bað eiginkonu sinnar,
Rutar Tryggvadóttur, á eftirminnilegan hátt í brekkunni í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum árið 2014.
Beggi fékk vini sína í hljómsveitinni Skítamóral til að hjálpa sér við bónorðið sem og starfsmenn
þjóðhátíðar, sem fengust til að varpa bónorðinu upp á risaskjá á sviðinu. Bónorðið var svo hljóðandi:
Rut, viltu giftast mér.
Respect.
Beggi í Sóldögg.
Beggi og Rut létu síðan pússa sig saman seinna sama ár og lifir vel í ástarloganum.
Bónorð í brekkunni
„Er þetta nógu stórt fyrir þig?“
Þ
að ætlaði allt um koll að keyra á Þjóðhátíð í Eyjum árið 2012
þegar að Haraldur Freyr Gíslason, Halli í Botnleðju eins og hann
er ávallt kallaður, gerði hlé á tónleikum sveitarinnar til að biðja
sinnar heittelskuðu, Sigríðar Eirar Guðmundsdóttur.
„Ég ætla aðeins að misnota aðstöðu mína hérna. Þetta er náttúrulega
stærsta, stærsta útihátíð á Íslandi. Þetta verður ekki mikið stærra,“ sagði
Halli áður en hann bætti við: „Ég er hérna með lítið box.“
Þá vissu þjóðhátíðargestir hvað klukkan sló og fagnaðarlátunum ætl-
aði vart að linna. Því næst bað Halli áhorfendur um að klappa Sigríði upp
á sviðið og spurði hana jafnframt: „Er þetta nógu stórt fyrir þig?“ áður en
hann bað um hönd hennar. Sigríður sagði já og gengu þau hjónin í það
heilaga í fyrra.
Á
hrifavaldurinn Camilla Rut kynntist eiginmanni sínum, Rafni
Hlíðkvist, þegar að hún var fjórtán ára en hann nítján ára.
„Við byrjuðum samband okkar mjög rólega, þar sem ég var
svo ung. Rabbi er fimm árum eldri en ég og bar fullkomna
virðingu fyrir því að ég væri að stíga mín fyrstu skref í þessu öllu saman.
Við höfum gengið í gegnum svo margt saman á þessum tíu árum, en
einhvern veginn alltaf náð að halda okkar striki sem er nú aðallega
honum og hans yfirvegun að þakka. Ég telst seint vera yfirveguð og
róleg því eins og ég segi þá stjórnast ég af tilfinningum en hann hefur
tök á mér sem enginn annar hefur,“ sagði Camilla í viðtali við Vikuna
nýverið og bætti við að hjónin hefðuð trúlofað sig um verslunarmanna-
helgi.
„Samband okkar hefur verið ferðalag og mikill lærdómur fyrir okk-
ur bæði en í gegnum allt er þessi skilyrðislausa ást sem stendur svo
sterk. Við trúlofuðum okkur um verslunarmannahelgina árið 2014 en
vissum ekki þá að laumufarþegi var um borð. Sléttri viku eftir að við
trúlofuðum okkur komumst við að því að ég væri ólétt að litla stráknum
okkar – og þvílík hamingja.“
Trúlofun og laumufarþegi
P
lötusnúðurinn Kristján Þór Jónsson, betur þekktur
sem Kiddi Bigfoot, og leikskólakennarinn Eyja Bryn-
geirsdóttir létu pússa sig saman á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum árið 2017, sem var einkar viðeigandi þar
sem þau kynntust á þjóðhátíð árið 2013. Eyja sagði frá þessu
í viðtali við Morgunblaðið í fyrra.
„Við kynnt umst á þjóðhátíð Vest manna eyja 2013, nán ar
til tekið á föstu dags kvöld inu, þegar honum (eins og hann
seg ir sjálf ur frá) var boðið af frænda sín um í minnsta hvíta
tjaldið í dalnum, sem var tjaldið mitt. Þar sat ég og varð
strax skot in í hon um enda fal leg ur með eindæm um og mjög
skemmti leg ur.“
Allt gerðist þetta í Eyjum
Bónorðið Það náðist á myndband, sem betur fer.
Mynd: Skjáskot af YouTube
Gleðidagur Hér sjást Beggi og Rut ganga
út úr kirkjunni. Mynd: Úr safni
Rómantískur
Halli í Botnleðju greip gullið tækifæri.
Nettur Kiddi nokkur Bigfoot.
Mynd: Úr safni
Sönn ást
Camilla og Rafn hafa gengið í gegnum ýmislegt.
Mynd: Úr safni