Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 17
2. ágúst 2019 17BLEIKT Byrjaði í neyslu Alexandra flutti frá Akranesi í Ár- bæinn. Fljótlega fór hún að byrja að stela og fikta við fíkniefni. „Ég mætti aldrei í skólann, vaknaði bara snemma á morgnana svo mamma myndi halda að ég væri á leið í skólann, en ég fór alltaf nið- ur á Hlemm eða upp í Kringlu að hitta þar krakka sem mættu heldur ekki í skólann. Mamma vissi það ekki fyrr en skólastjórinn hringdi tveimur mánuðum seinna og lét hana vita að ég hefði ekkert mætt í skólann,“ segir Alexandra. Alexandra var þá send á Hraunberg, vistheimili fyrir börn. Hún byrjaði að borða meira og brjótast inn. Næst var hún send til Neskaupstaðar í fóstur í tíu mánuði og sá tími var mjög erfiður tími fyrir hana. „Ég var farin að stela mat úti um allt á heimilinu þannig það voru settir lásar á ísskápinn, alla skápa sem eitthvað matarkyns var inni í og öllum herbergjum læst,“ segir Alexandra. Á þessum tíma lærði Alexandra hverjir hennar raunverulegu vin- ir væru og hjálpaði það henni að verða edrú. Fór þrisvar inn á BUGL Alexandra var lögð þrisvar sinn- um inn á BUGL (barna- og ung- lingageðdeild) vegna andlegrar vanlíðunar. „Ég skaðaði sjálfa mig margoft með alls konar tækjum og tólum vegna þess að mér leið illa vegna útlits míns og ég skammaðist mín svo rosalega. Ég þorði ekki að gera neitt nýtt því þyngdin stopp- aði mig í einu og öllu,“ segir Alex- andra. Fann föður sinn Mikilvæg tímamót áttu sér stað í lífi Alexöndru rétt fyrir jólin 2010. „Ég fann loksins pabba minn eftir ævilanga leit. Mér fannst ég hafa fundið púsl sem vantaði í púsluspilið. Pabbi minn býr í Sví- þjóð og ég fór þangað að hitta hann sumarið 2011,“ segir Alex- andra. Faðir hennar er frá Kósóvó. „Við fórum í langt ferðalag og ég sá margt út í Kósóvó. Einnig ferðuðumst við mikið um Albaníu, sem mér þótti æðislegt. En í dag er ég í litlu sambandi við pabba og hans fjölskyldu, þótt ég viti varla ástæðuna.“ Erfið meðganga Árið 2013 fór Alexandra út sem au- -pair til Manchester. Hún var þar í rúman mánuð og varð ólétt. Þegar hún kom aftur heim áttaði hún sig á því að hún væri með rosalegt meðgönguþunglyndi, sem hún segir hafa komið vegna lífsreynslu hennar og áfalla. „Ég fór í alls konar meðferðir og læknisheimsóknir sem gerðu lítið sem ekkert fyrir mig,“ segir Alex- andra. „Þegar ég fékk síðan barnið í hendurnar kom upp hugsun, sem ég sé mikið eftir í dag, en ég hugs- aði: „hver ætlar að taka þetta barn með sér heim, ég vil það ekki.“ En fyrsta spurningin sem ég spurði var hvaða kyn barnið væri. Það var engin leið að sjá það þar sem það fæddist með litningagalla sem greindist ekki fyrr en fimm dögum seinna, eftir margar rann- sóknir og DNA-próf. Hann fæddist með XO-litning þannig það var ekki staðfest 100 prósent af hvoru kyni hann var fyrr en hann varð 18 mánaða,“ segir Alexandra. Mikið fæðingarþunglyndi Á þessum tíma borðaði Alexandra meira en áður. „Mér leið ógeðslega. Fæðingarþunglyndið var svaka- legt og ég endaði nokkrum sinn- um inni á geðdeild vegna sjálfs- vígstilrauna. Á geðdeild var ég greind með BPD, áfallastreiturösk- un, þunglyndi (level max), kvíða- röskun og fékk einhverjar fleiri greiningar sem ég nenni ekki að telja upp,“ segir Alexandra. „Ég átti að fá áfallahjálp og tíma hjá geðlækni eftir að ég átti strák- inn minn, en ég fékk það aldrei. Ég reyndi að ná sambandi við áfallateymið á Landspítalanum, geðlækni á geðdeild Landspít- alans og allt það batterí, í eitt og hálft ár en fékk aldrei nein svör svo ég gafst upp. Eftir að allt gekk sem verst þá sótti ég um aðstoð hjá barnavernd á Akranesi. Ég fékk stuðningsfjölskyldu í Reykjavík sem var algjört æði. Nema það var bara of mikið vesen að ferðast með hann á milli því ég var og er ekki með bílpróf. Þannig að ég þurfti að ganga allt, koma honum í strætó til og frá Reykjavík, og eins og flest- ir þekkja þá fylgir litlum börnum mikill farangur. Ég var náttúrlega svo rosalega þung og átti mjög erfitt með hreyfingu. Á endanum gafst ég upp á að fara með hann til Reykjavíkur.“ Alexandra fékk stuðningsfjöl- skyldu á Akranesi, sínu bæjarfé- lagi. „Sú fjölskylda hefur gert allt sem hún getur til að hjálpa mér,“ segir hún. Afsalaði sér forræðinu Árið 2016 eignast Alexandra ann- an strák. „Ég hafði hvorki andlega né líkamlega heilsu til að sjá um þá heima. Barnavernd bauð mér tímabundið fóstur og stuðnings- fjölskyldan vildi taka þá báða að sér, sem mér þótti og þykir enn svo vænt um,“ segir Alexandra. „Barnavernd lofaði að hjálpa mér í andlegum veikindum mín- um. En ég fékk aldrei hjálpina. Það var ekki fyrr en ég afsalaði mér for- ræðinu yfir drengjunum til átján ára aldurs, sem barnavernd varð loks reiðubúin til að hjálpa mér.“ Drengirnir fóru ekki á nýtt heimili heldur fékk stuðnings- fjölskyldan fullt forræði yfir drengjunum. „Ég hefði ekki getað ekki fund- ið betra heimili fyrir þá. Þau hafa gert allt til að láta bæði mér og strákunum mínum líða betur,“ segir Alexandra. Faðir eldri drengs Alexöndru er frá Pakistan. „Hann hefur hvorki áhuga né löngun til að hafa samband. Ég veit ekkert hvar hann er staddur í heiminum og hann hefur aldrei tekið þátt í lífi drengs- ins,“ segir Alexandra. Hún seg- ir föður yngri drengs hennar vera í myndinni en hann „mætti sýna meiri lit.“ „Ég margoft skaðaði sjálfa mig með alls konar tækjum og tólum PINNAMATUR V e i s l u r e r u o k k a r l i s t ! Bjóðum uppá fjölda tegunda PINNAMATS OG TAPASRÉTTA Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is Afgreitt á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluna HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810 Alexandra Arndísardóttir Sadiku og yngri sonur hennar. Mynd: Úr einkasafni Alexandra og eldri sonur hennar. Alexandra Arndísardóttir Sadiku. Mynd: Eyþór/DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.