Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Í slenskur karlmaður, 22 ára, af íslenskum ættum, var hand­ tekinn í Flórída þann 17. júlí síðastliðinn. Samkvæmt þar­ lendum miðlum skildi maðurinn eftir sig glæpaslóð í Pinellas­sýslu. Bandarískir fréttamiðlar hafa greint frá nafni mannsins, Chance Broga Friðriksson, en hann er fæddur í desember árið 1996. Á hann íslenskan föðurafa sem samkvæmt þjóðskrá er búsettur í Bandaríkjunum. Samkvæmt opinberum skýrslum bandarískra yfirvalda á Chance Broga þónokkurn brotaferil að baki. Í september 2014 var hann handtekinn fyrir vopnaða líkams­ árás og fyrir að sýna mótþróa við handtöku. Í maí 2016 hlaut hann þriggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir þau brot. Í ágúst 2016 var hann handtekinn fyrir ofbeldis­ brot og í septemer sama ár var hann handtekinn fyrir að svíkja út lyfseðilsskyld lyf. Hann var dæmd­ ur í tveggja ára fangelsi í júlí 2017 en látinn laus í ágúst 2018. Þóttist vera í viðskiptaerindum Fram kemur á bandarískum frétta­ miðlum að í maí síðastliðnum hafi Chance verið gestur á heimili í borginni Largo í Pinellas­sýslu og stolið þaðan peningaveski hús­ ráðandans. Vitni fann veskið síðar og var þá tómt. Mánuði síðar, þann 10. júní, fór Chance Broga á vegahót­ el í Clearwater­borg í Flórída og tjáði starfsfólki mót tökunnar að hann væri yfirmaður á vegum heilsugæsluþjónustunnar Suncoast Center and National Alliance on Mental Illness. Sagðist hann hafa sett upp við­ skiptafundi á hótelinu og ætti von á fimm öðrum einstaklingum í tengslum við það. Í kjölfarið gerði hann samning við hótelið um sérstök kjör sem fól meðal annars í sér að hann var ekki rukkaður um fyrirfram­ greiðslu eða tryggingargjald. Fram kemur í handtökuskýrslu að Chance Broga og „fáeinir aðrir“ hafi dvalið á hótelinu frá 19. júní til 24. júní, lagt hótelherbergin í rúst og síðan yfirgefið hótelið án þess að greiða reikninginn, sem hljóðaði upp á rúmlega 340 þús­ und íslenskar krónur. Þann 17. júlí sáu lögreglumenn Chance Broga fara inn í leigu­ bíl á vegum Uber. Fram kemur að lögreglumennirnir hafi vitað að handtökuskipun á hendur hon­ um væri í gildi. Þeir stöðvuðu því bifreiðina og var Chance Broga handtekinn. Fram kemur í handtöku skýrslu að lögreglumenn hafi fundið amfetamín í baksæti bifreiðarinn­ ar. Þegar komið var á lögreglustöð­ ina fannst sprautunál í jakkavasa Chance. Chance var í kjölfarið ákærður fyrir stórþjófnað, fjársvik og eit­ urlyfjavörslu en áður höfðu verið gefnar út tvær handtökuskipanir á hendur honum. n 2. ágúst 2019 Helstirni á jörðu í Herjólfsdal Svarthöfði Það er staðreynd að… Bretar borða fleiri dósir af bökuðum baunum en aðrir íbúar heimsins samanlagt. Minnstu bein mannslíkamans eru í eyranu. Fyrsti leigubíllinn sem rukkaði samkvæmt mæli var kynntur til sögunnar árið 1907. Þegar þú gúglar orðið „askew“ þá mun vefsíðan halla örlítið til hægri. Monopoly er vinsælasta borðspil í heimi. Hver er hann n Hann er lærður leikari. n Hann er einnig ljóðskáld. n Hann hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2009. n Hann er fyrsti sviðsstjóri Hörpu. n Afmælisdagur hans er 2. ágúst. SVAR: EYÞÓR ÁRNASON HÁLF ÍSLENSKUR GLÆPAMAÐUR HANDTEKINN Í FLÓRÍDA T visvar sinnum um ævina hefur Svarthöfði slysast á Þjóðhátíð í Eyjum og ætlar þangað aldrei aftur. Á samanlögðum átta dögum ríktu þarna mörg hver af verstu einkennum mannskepnunnar, blásin út til hins ítrasta. Hátíðargleðina vantaði ekki þarna hjá mörgum en lítið var þjóðlegt við þetta og mætti frekar lýsa þessu sem perraskap smábæjarhyggjunnar í sinni tærustu mynd, maríneruðum í vafasömum hefðum. Ungdómurinn hefur vissulega alltaf gaman af stjórnleysi, gegnblautum fatnaði og þrúgandi tónlist eða brekkusöng, sem skapar ef til vill réttu truflunina fyrir rándýrin. Verra er þó heima­ fólkið, sem heldur utan um þessa plebbahátíð verslunarmanna­ helgar eins og lífið gerist ekki betra utan hennar. Þetta gera þau með hefðum sínum og hugarfari sem hamrar í okkur hversu skemmtilegt þetta á að vera, eins og poppaður partíhundur sem neitar að segja það gott eftir misheppnað gamlársdjamm. En það er ekkert skemmtilegt við kynferðisbrot, ofbeldi, stjórnleysi ofdrykkju og vont veður þegar gestir eru lokaðir af eins og kindur í afskekktum dal um niðdimma nótt, með góða skapið í farteskinu og einungis þær vonir að skrípalingarnir hegði sér. Vel má vera að Svarthöfði sé oftar en ekki stimplaður inni­ púki, en að eðlisfari stenst hann ekki góðar samkomur og ekki síst þegar blysum er hátíðlega haldið á lofti. Án þess að fordæma gleðskap eins og hann leggur sig hefur Dalurinn og tilheyrandi hátíð einfaldlega fengið of subbulegt orð á sig í gegnum árin. Það þarf meira en töfrabrögð á sviði, þemalag eða gítarglamrið hjá Greifunum til að fela þá staðreynd. Það er ódýr leikur að segja „Hugsið­um­börnin.“ Hins vegar á Svarthöfði afkvæmi og þykir óþægilegt að hugsa til þess hvernig tvíburunum Lilju og Loga liði á saklausu skralli ef kæmi brestur í Máttinn og eitthvað færi úrskeiðis. Bæði tvö eru hress ungmenni, ævintýra­ og nýjunga­ gjörn, en allir vita að í Dalnum er auðvelt að falla fyrir freistingum og gefa undan myrku öflunum. Ef alvarleikinn knýr dyra er ekkert hægt að flýja nema út í sjó eða inn í tjald sem vonandi einkennist ekki af góli lostans. Þau heppnu sem gista í íbúðum heimafólksins mega éta það sem úti frýs. En að frátöldu svínaríinu, skepnukennda sjomlasönglinu og hefðum sem eru jafn úreltar og þær eru gildislausar, má ekki gleyma þessum óhuggulega anda sem minnir á sértrúarflokk úr hryllingssögum, þar sem hvert hvíta tjaldið hjá heimafólkinu raðast upp og gerir stemningunni engan greiða. Með þessu er hrein­ lega fagnað þeim ólukkulega misskilningi að hver sem er ráfi inn með orðunum: „Skrambinn, ég hélt að þetta væri mitt tjald!“ Árshátíðirnar á Helstirninu eru dannaðri en þetta. n Vopnuð líkamsárás, mótþrói við handtöku og fjársvik MYNDIR: WC TV / FLORIDA D.O.C.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.