Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 33
SAKAMÁL 332. ágúst 2019 Dotson hafði þá verið innan við viku á skilorði eftir sjötta fangelsisdóminn fyrir sams konar brot, en þörf hans var óstöðvandi. Var hann dæmdur til 18 mánaða til 30 ára fangelsisvistar og sagði hann fyrir dómi að hann hefði aldrei getað séð um sig sjálfur. Talið var að háttsemi Dotson vekti hræðslu í samfélaginu, þrátt fyrir að hann hefði aldrei skaðað neinn með glæpum sínum. Velta má fyrir sér af hverju Dotson keypti sér einfaldlega ekki sína eigin gínu til að hafa heima hjá sér, þar sem blæti á borð við hans er ekki ólöglegt innan veggja heimilis fólks. Dotson sagði við skilorðsfulltrúa sinn að hann ætlaði að kaupa sér gínu, svo hann gæti stundað athæfi sitt heima í stað þess að standa í eilífum innbrotum,“ sagði rann- sóknarlögreglumaður í Ferndale-lögreglunni fyrir atvikið árið 2006. „Greinilegt er að það virkaði ekki.“ Þ ann 29. júní 2017 réðst Joshua Stimpson með fólskulegum hætti á fyrr­ verandi kærustu sína, Molly McLaren, 23 ára gamla, og stakk hana 75 sinnum á bílastæði um hábjartan dag. Ástæðan var sú að hún vildi ekki taka við honum aft­ ur. Málið er tekið fyrir í þáttaröð­ inni Murdered By My Ex, sem fjallar um umtöluðustu morðmál Bretlands. Þátturinn tekur til um­ ræðu um eltihrella og þær hræði­ legu afleiðingar sem þeir geta valdið, farið er yfir kringumstæð­ urnar sem leiddu til dauða McL­ aren, og hvernig hegðun Stimp­ son eftir sambandsslit þeirra varð sífellt meira tilefni til áhyggna um að hann myndi beita hana ofbeldi. Kynntust á Tinder Parið, sem bjó í Kent á Englandi, kynntist á Tinder og var mjög hamingjusamt í upphafi, en McLaren fór fljótlega að hafa áhyggjur af aukinni stjórnsemi Stimpson og batt enda á sam­ band þeirra sjö mánuðum síðar. Tók hann sambandsslitunum ekki vel og grátbað hana um að taka við honum aftur. Þegar hún neit­ aði því tók hann að ofsækja hana og elta. Fjölskylda og vinir McLaren segja í þættinum frá ógnandi skila­ boðum sem hún fékk frá Stimp­ son á Facebook. Þegar stjórnend­ ur samfélagsmiðilsins neituðu að bregðast við kvörtunum McLaren, fór hún til lögreglunnar, sem talaði tvisvar við Stimpson, en hann var ekki handtekinn eða ákærð­ ur. Hann lét sér ekki segjast við tiltal lögreglunnar og 12 dögum eftir sambandsslitin beið hann McLaren fyrir utan líkamsrækt­ arstöðina sem hún æfði í og drap hana. Ekkert gat bjargað lífi hennar Árásin náðist á öryggismyndavél­ ar, McLaren sat í bíl sínum, þegar Stimpson kom að, reif upp dyrn­ ar bílstjóra megin og hóf að stinga hana af miklu afli, með hnífi sem hann hafði keypt tveimur dögum áður. Fólk á vettvangi, sjúkraliðar og lögregla gerðu hvað þeir gátu til að bjarga lífi McLaren. Fyrir dómi sagði læknir að ekkert hefði get­ að bjargað lífi hennar, og miklu afli hefði verið beitt við árásina, sem sást meðal annars á sárum á hálsi hennar. Í dómskjölum var áverkum hennar lýst í 75 máls­ greinum, hver og ein þeirra lýsti einu sári eða fleiri. Við réttarhöldin kom í ljós að fjórum árum áður hafði Stimpson áreitt konu í Staffordshire eftir að þau höfðu farið á eitt stefnumót. Sú kona leitaði til lögreglu, en málið var ekki skráð sem glæpur og Stimpson var ekki hand tekinn eða ákærður. Lögreglan sendi honum símaskilaboð um að koma ekki nálægt þeirri konu. Í febrúar árið 2018 var Stimp­ son, þá 26 ára, dæmdur til 26 ára fangelsisvistar fyrir morðið á McLaren. Neitaði hann að hafa myrt hana, en fór fram á að vera dæmdur vegna manndráps (á ensku: manslaughter on account of diminished responsibility.) Eftir dauða dóttur sinnar hafa foreldrar McLaren kallað eftir breytingum á reglum þannig að tilkynningar um áreitni og eltihrella verði skráð­ ar sem glæpir í gagnagrunni lög­ reglunnar. „Þegar Molly og Joanne, móð­ ir hennar, leituðu til lögreglunn­ ar í Kent, hefði niðurstaðan hugsanlega orðið önnur ef mál konunnar í Staffordshire hefði komið upp. Það hefði hringt bjöll­ um,“ sagði Doug McLaren, fað­ ir Molly, í viðtali við BBC. „Molly myndi líklega vera á lífi í dag,“ sagði hann. „Hugsanir okkar eru með fjölskyldu og vinum Molly McLaren,“ sagði talsmaður lög­ reglunnar í Staffordshire við The Sun. „Við berum ábyrgð á að rann­ sókn okkar á atvikinu árið 2013 var ekki í samræmi við reglur.“ Bætti hann við að reglum hefði verið síðan verið breytt til að tryggja betri skráningu slíkra mála. Eftir að Stimpson var dæmdur gaf fjölskylda McLaren út yfir­ lýsingu: „Dómurinn hefur fært okkur smá huggun, en ekkert mun geta tekið sársaukann í burtu eða fengið okkur til að verða sátt við að Molly var tekin frá okkur. Við munum áfram lifa lífi fullu af sárs­ auka, angist og sorg. Ljós hefur slokknað í hjörtum okkar allra, en skín áfram skært sem stjarna á himnum að eilífu. Við elskum þig Molly.“ n ÁVERKUM LÝST Í 75 MÁLSGREINUM Hamingjusöm Parið meðan allt lék í lyndi. Vettvangurinn Bílastæðið þar sem árásin átti sér stað. Foreldrar Molly Joanne og Doug á bekk sem útbúinn var í minningu dóttur þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.