Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Page 33
SAKAMÁL 332. ágúst 2019
Dotson hafði þá verið innan við viku á skilorði eftir sjötta fangelsisdóminn fyrir sams
konar brot, en þörf hans var óstöðvandi. Var hann dæmdur til 18 mánaða til 30 ára
fangelsisvistar og sagði hann fyrir dómi að hann hefði aldrei getað séð um sig sjálfur.
Talið var að háttsemi Dotson vekti hræðslu í samfélaginu, þrátt fyrir að hann hefði
aldrei skaðað neinn með glæpum sínum. Velta má fyrir sér af hverju Dotson keypti sér
einfaldlega ekki sína eigin gínu til að hafa heima hjá sér, þar sem blæti á borð við hans er
ekki ólöglegt innan veggja heimilis fólks.
Dotson sagði við skilorðsfulltrúa sinn að hann ætlaði að kaupa sér gínu, svo hann gæti
stundað athæfi sitt heima í stað þess að standa í eilífum innbrotum,“ sagði rann-
sóknarlögreglumaður í Ferndale-lögreglunni fyrir atvikið árið 2006. „Greinilegt er að það
virkaði ekki.“
Þ
ann 29. júní 2017 réðst
Joshua Stimpson með
fólskulegum hætti á fyrr
verandi kærustu sína, Molly
McLaren, 23 ára gamla, og stakk
hana 75 sinnum á bílastæði um
hábjartan dag. Ástæðan var sú að
hún vildi ekki taka við honum aft
ur.
Málið er tekið fyrir í þáttaröð
inni Murdered By My Ex, sem
fjallar um umtöluðustu morðmál
Bretlands. Þátturinn tekur til um
ræðu um eltihrella og þær hræði
legu afleiðingar sem þeir geta
valdið, farið er yfir kringumstæð
urnar sem leiddu til dauða McL
aren, og hvernig hegðun Stimp
son eftir sambandsslit þeirra varð
sífellt meira tilefni til áhyggna um
að hann myndi beita hana ofbeldi.
Kynntust á Tinder
Parið, sem bjó í Kent á Englandi,
kynntist á Tinder og var mjög
hamingjusamt í upphafi, en
McLaren fór fljótlega að hafa
áhyggjur af aukinni stjórnsemi
Stimpson og batt enda á sam
band þeirra sjö mánuðum síðar.
Tók hann sambandsslitunum ekki
vel og grátbað hana um að taka
við honum aftur. Þegar hún neit
aði því tók hann að ofsækja hana
og elta.
Fjölskylda og vinir McLaren
segja í þættinum frá ógnandi skila
boðum sem hún fékk frá Stimp
son á Facebook. Þegar stjórnend
ur samfélagsmiðilsins neituðu að
bregðast við kvörtunum McLaren,
fór hún til lögreglunnar, sem talaði
tvisvar við Stimpson, en hann
var ekki handtekinn eða ákærð
ur. Hann lét sér ekki segjast við
tiltal lögreglunnar og 12 dögum
eftir sambandsslitin beið hann
McLaren fyrir utan líkamsrækt
arstöðina sem hún æfði í og drap
hana.
Ekkert gat bjargað lífi hennar
Árásin náðist á öryggismyndavél
ar, McLaren sat í bíl sínum, þegar
Stimpson kom að, reif upp dyrn
ar bílstjóra megin og hóf að stinga
hana af miklu afli, með hnífi sem
hann hafði keypt tveimur dögum
áður. Fólk á vettvangi, sjúkraliðar
og lögregla gerðu hvað þeir gátu til
að bjarga lífi McLaren. Fyrir dómi
sagði læknir að ekkert hefði get
að bjargað lífi hennar, og miklu
afli hefði verið beitt við árásina,
sem sást meðal annars á sárum
á hálsi hennar. Í dómskjölum var
áverkum hennar lýst í 75 máls
greinum, hver og ein þeirra lýsti
einu sári eða fleiri.
Við réttarhöldin kom í ljós að
fjórum árum áður hafði Stimpson
áreitt konu í Staffordshire eftir að
þau höfðu farið á eitt stefnumót.
Sú kona leitaði til lögreglu, en
málið var ekki skráð sem glæpur
og Stimpson var ekki hand tekinn
eða ákærður. Lögreglan sendi
honum símaskilaboð um að koma
ekki nálægt þeirri konu.
Í febrúar árið 2018 var Stimp
son, þá 26 ára, dæmdur til 26
ára fangelsisvistar fyrir morðið á
McLaren. Neitaði hann að hafa
myrt hana, en fór fram á að vera
dæmdur vegna manndráps (á
ensku: manslaughter on account
of diminished responsibility.) Eftir
dauða dóttur sinnar hafa foreldrar
McLaren kallað eftir breytingum á
reglum þannig að tilkynningar um
áreitni og eltihrella verði skráð
ar sem glæpir í gagnagrunni lög
reglunnar.
„Þegar Molly og Joanne, móð
ir hennar, leituðu til lögreglunn
ar í Kent, hefði niðurstaðan
hugsanlega orðið önnur ef mál
konunnar í Staffordshire hefði
komið upp. Það hefði hringt bjöll
um,“ sagði Doug McLaren, fað
ir Molly, í viðtali við BBC. „Molly
myndi líklega vera á lífi í dag,“
sagði hann.
„Hugsanir okkar eru með
fjölskyldu og vinum Molly
McLaren,“ sagði talsmaður lög
reglunnar í Staffordshire við The
Sun. „Við berum ábyrgð á að rann
sókn okkar á atvikinu árið 2013 var
ekki í samræmi við reglur.“ Bætti
hann við að reglum hefði verið
síðan verið breytt til að tryggja
betri skráningu slíkra mála.
Eftir að Stimpson var dæmdur
gaf fjölskylda McLaren út yfir
lýsingu: „Dómurinn hefur fært
okkur smá huggun, en ekkert mun
geta tekið sársaukann í burtu eða
fengið okkur til að verða sátt við
að Molly var tekin frá okkur. Við
munum áfram lifa lífi fullu af sárs
auka, angist og sorg. Ljós hefur
slokknað í hjörtum okkar allra,
en skín áfram skært sem stjarna á
himnum að eilífu. Við elskum þig
Molly.“ n
ÁVERKUM LÝST Í 75 MÁLSGREINUM
Hamingjusöm Parið meðan allt lék í lyndi.
Vettvangurinn Bílastæðið þar sem árásin átti sér stað.
Foreldrar Molly Joanne og Doug á bekk sem útbúinn var
í minningu dóttur þeirra.