Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 8
8 02. águst 2019FRÉTTIR n Íslandsferð Loru breyttist í martröð n Sambandið þoldi ekki álagið Í sland var síðasti staðurinn í heiminum þar sem ég hefði búist við því að glata öllum mínum verðmætum,“ seg­ ir hin kanadíska Lora Pope sem heimsótti Ísland ásamt kærasta og vinum í júní síðastliðnum. Þau urðu fyrir miklu áfalli í ferðinni þegar brotist var inn í íbúð sem þau höfðu leigt á vegum Airnb og verðmætum eigum stolið. Lora segir „fallega ferð hafa breyst í martröð.“ Þá gengur hún svo langt að segja að atburðirnir á Íslandi hafi eyðilagt samband hennar við kærastann og vinina. Lora hefur undanfarin misseri haldið úti vinsælli bloggsíðu þar sem hún segir frá ferðalögum sínum um heiminn. Hún segist hafa ferðast til fjölmargra landa þar sem glæpatíðni er há, eins og Hondúras, Indlands og Brasilíu. Á ferðalögunum hefur hún að eigin sögn alltaf verið með dýran ljós­ myndunarbúnað meðferðis, og aldrei verið rænd. Hún segist því aldrei hafa átt von á því að það gæti gerst á Ís­ landi, sem ávallt vermir efsta sætið yfir öruggustu lönd í heimi: „Þangað til að kvöldi þrítugasta af­ mælisdagsins míns, þann 21. júní. Þá varð mín versta martröð að veruleika.“ Lora, þáverandi kærasti hennar og tveir af hennar bestu vinum ákváðu fyrr á árinu að heimsækja Ísland. Tilgangurinn var að fagna afmæli Loru og kíkja á tónlistar­ hátíðina Secret Solstice. Lora og vinir hennar vinna öll sem ljós­ myndarar. Hún segir fyrstu daga ferðarinnar hafa verið frábæra; hópurinn skoðaði sig um og áttu þau góðar stundir saman, en þau gistu í íbúð í Reykjavík sem þau fundu í gegnum Airbnb. Lora seg­ ir hverfið hafa litið út fyrir að vera öruggt, aðaldyrnar á húsinu hafi verið læstar og sömuleiðis dyrnar að íbúðinni þar sem þau gistu. „Það hvarflaði ekki einu sinni að mér að einhver myndi brjótast inn á meðan við værum í burtu,“ segir hún, en að kvöldi afmælisdags hennar fór hópurinn á tónlistarhátíðina Secret Solstice í Laugardalnum í rúmlega 15 mínútna göngufjarlægð frá íbúð­ inni. Eftir vel heppnað kvöld sneri hópurinn heim. Lora lýsir því sem fyrir augu bar þegar hópurinn kom til baka í íbúðina seinna um nóttina. Óprúttinn aðili eða aðilar höfðu þá farið inn í íbúðina, rifið farang­ ur upp úr töskum og hent á víð og dreif í leit að verðmætum. Lora segir upplifunina vera í móðu. „Það var mikið grátið og mikið öskrað. Við hringdum á lög­ regluna sem kom strax,“ segir hún en hópurinn þurfti að gera lista yfir þá muni sem stolið hafði verið. Því miður voru þeir nokkuð margir. Þjófarnir höfðu meðal annars á brott með sér fartölvu Loru, Sony­ myndavél og alls kyns aukabúnað og Gopro­myndavél. Vinir Loru voru einnig með mik­ ið af dýrum ljósmyndunarbúnaði meðferðis og var honum öllum stolið; myndavélum, aukahlutum og fartölvum. Þá stálu þjófarnir lyklum að bílaleigubíl hópsins – og bílnum sömuleiðis. Fann tölvuna í gegnum iCloud Lora segist hafa verið stjörf fyrst um sinn og það hafi ekki verið fyrr en daginn eftir að hún áttaði sig á hvað hefði gerst. Hún segist hafa verið vongóð í fyrstu um að lögreglunni tækist að finna þýfið. Sjálfri tókst henni að hafa uppi á staðsetningunni á Macbook­ tölvunni sinni í gegnum iCloud. Segist hún hafa látið lögregluna fá heimilisfangið en henni verið tjáð að það væri lítið hægt að styðjast við það. Bílaleigubílinn fannst úti í vegarkanti og höfðu rúðurnar ver­ ið brotnar. Ekkert af þýfinu fannst í bílnum. Lora segir að sem betur fer hafi bílaleigan ekki látið þau sitja uppi með tjónið á bílnum, og fengu þau nýjan bílaleigubíl afhentan þegar í stað. Það hafi verið mikill léttir. „Við reyndum síðan að gera eins gott og við gátum úr því sem eftir var af ferðinni, en ég væri að ljúga ef ég segði að það hefði tek­ ist. Það voru örfá góð augnablik, en það voru líka mörg slæm. Þetta var gífurlega streituvaldandi allt saman. Ég hata að þeir sem frömdu þennan sjálfselska verknað hafi náð að eyðileggja það sem hefði getað orðið stórkostlegt ferð.“ Eyðilögð þegar heim var komið En sögunni lýkur ekki hér. Lora segir að þessi atburður hafi haft víðtækar afleiðingar. „Það versta við þetta allt saman, er að þetta hefur ennþá áhrif á líf mitt. Ég er ekki bara búin að missa allar mínar, eigur sem ég nota fyr­ ir vinnuna.“ Lora segir að kærastinn hafi hætt með henni eftir þetta; sam­ bandið þoldi ekki álagið og streituna sem fylgdi þessu áfalli. Ofan á allt hefur áfallið einnig höggvið stórt skarð í vináttu hennar og hinna ferðafélaganna. Lora segir að í augnablikinu talist þau ekki við. „Núna er ég búin að missa frá mér mikilvægt bakland og mér finnst eins og ég sé hreinlega að drukkna. Ég fer oftast grátandi í gegnum daginn,“ segir hún enn fremur og bætir við að það eina sem huggi hana í þessum aðstæðum sé að hugsa til þess að hún hafi áður gengið í gegnum erfitt tímabil, þar sem hún missti föður sinn úr krabbameini og tókst á við erfið sambandsslit. „Ég lifði það af. Og ég get lifað þetta af,“ segir Lora en hún kveðst ekki vera að sækjast eftir vorkunn vegna aðstæðna sinna. „Ég gæti eflaust skrifað blogg­ færsluna „10 hlutir til að gera á Íslandi“ en það er ekki efst í huga mér akkúrat núna. Ég er svekkt yfir að hafa tapað eigum mínum vegna þess að það hamlar mér í vinnunni. En ég er marg­ falt svekktari yfir því að þessi hræðilegi atburður átti sér stað og það var ekkert sem við gátum gert til að afstýra því. Og nú er það búið að hafa áhrif á samband mitt við fólkið í kringum mig. Mér finnst ég vera alein í heiminum. Ég veit ekki hvað ég á að gera við sjálfa mig. Ég get ekki hætt að gráta.“ Lora brýnir fyrir fólki að tryggja sig á ferðalögum, og læra af hennar mistökum. Hún er sjálf ekki með ferðatryggingu. Hún er með heil­ brigðistryggingu á vegum vinnu­ veitanda og VISA, en tryggingin nær ekki yfir persónulegar eigur. Hún segist yfirleitt alltaf hafa tryggt sig á ferðalögum erlendis, en freistast þess að sleppa því fyrir Íslandsferðina, þar sem hún taldi fullvíst að Ísland væri öruggt land. „En þetta sýnir bara að glæpir geta átt sér stað hvar sem er.“ n ÉG GET EKKI HÆTT AÐ GRÁTA Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.