Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Á
stin mín hún Fanney
er sem sagt komin með
leghálskrabbamein og
virðist sem þær frumu-
breytingar sem átt hafa sér stað
undanfarin ár hafi algerlega yf-
irsést læknum í þeim strokum
og öðrum skoðunum sem hún
hefur mjög reglulega og sam-
viskusamlega farið í.“
Þetta skrifaði Ragnar Snær
Njálsson í átakanlegri fær-
slu á Facebook í ágúst á sein-
asta ári. Eiginkona hans, Fann-
ey Eiríksdóttir, lést þann 6. júlí
síðastliðinn eftir tæplega árs
langa baráttu við illvígt leg-
hálskrabbamein.
Það vakti athygli að Fann-
ey skyldi greinast með leg-
hálskrabbamein á háu stigi
þrátt fyrir að hafa farið reglu-
lega í krabbameinsskoðun.
En tilfelli Fanneyjar er þó ekki
einsdæmi.
Konur á aldrinum 23–65
ára eru hvattar til að fara í leg-
hálskrabbameinsleit á þriggja
ára fresti en hér á landi hefur
skipulögð leit að leghálskrabba-
meini dregið úr nýgengi um 70
prósent og dánartíðni um 90
prósent frá því leit hófst árið
1964.
Yfirlæknir hjá Krabbameins-
félagi Íslands bendir á í samtali
við DV að engin skimun sé þó
100 prósent næm. Ekki eru til
sú tegund skimunar þar sem öll
tilfelli greinast og því eigi aldrei
gera ráð fyrir 100 prósent ár-
angri.
Með æxli á stærð við hand-
bolta
Fanney var komin 21 viku á leið
með sitt annað barn þegar hún
fékk þær fréttir að hún væri
með leghálskrabbamein á háu
stigi. Barátta Fanneyjar vakti
þjóðarathygli en þau hjónin
töluðu opinskátt um veikindi
hennar meðan á þeim stóð.
Hjónin fóru meðal annars í
viðtal í þættinum Ísland í dag,
þar sem fram kom að þegar
Fanney var komin rúmlega 20
vikur á leið fór að blæða líti-
lega. Hún gekkst undir rann-
sóknir þar sem tekið var sýni
úr leghálsinum. Læknar höfðu
þó ekki áhyggjur; Fanney hafði
alltaf farið samviskusamlega í
allar skoðanir.
„Þeir sögðu: „Þú hefur
aldrei verið með neinar frumu-
breytingar og það tekur frumu-
breytingar 10–15 ár að verða að
krabbameini“,“ sagði Fanney í
viðtalinu.
Annað kom þó á daginn og
Fanney reyndist vera með æxli
á stærð við handbolta í legháls-
inum.
Þegar Fanneyju var tjáð að
hún væri með leghálskrabba-
mein var henni jafnframt sagt
að meinið væri það langt geng-
ið að það væri ekki lengur
skurðtækt og því þyrfti því að
hefja lyfjameðferð hið snarasta.
Hjónin völdu hins vegar að
bíða með alla meðferð þar til
litli drengurinn væri kominn
í heiminn. Nokkrum mánuð-
um síðar var sonur þeirra tek-
inn með keisaraskurði. Fann-
ey gekkst í kjölfarið undir stífa
lyfja- og geislameðferð og
nokkrum vikum síðar var þeim
hjónum sagt að allt liti vel út og
æxlið sæist varla lengur.
Gleðin var hins vegar
skammvinn. Stuttu síðar fór
Fanney í jáeindaskanna og kom
þá í ljós að meinið hafði dreift
sér. Fanney var komin með
meinvörp á nokkrum stöðum í
lungum, bak við hjartað, í bein-
um og víðar. Krabbameinið var
komið á fjórða stig. Að lokum
tóku hjónin þá ákvörðun að
hætta hefðbundinni meðferð
og einbeita sér að því að gera
dagana bærilega hjá Fanneyju.
Hún lést sem fyrr segir þann 7.
júlí síðastliðinn.
Fór fjórum sinnum til læknis
„Ég var frekar bitur lengi, af því
að það tók svo langan tíma að fá
almennilega skoðun og grein-
ingu,“ segir Steinunn Steinars-
dóttir í samtali við DV. Hún
greindist með leghálskrabba-
mein í september 2010. Hún
hafði ávallt sinnt kallinu og
mætt í krabbameinsskoðun
þegar hún fékk boð um slíkt.
Þegar hún fór í slíka skoðun
í janúar 2010 reyndist sýnið
hreint.
Steinunn greindist engu að
síður með krabbamein í sept-
ember sama ár, eftir að hafa
fjórum sinnum leitað til kven-
sjúkdómalæknis. Krabba-
meinið reyndist þá svo langt
gengið að það þurfti að fjar-
lægja bæði legháls og leg.
„Ég held að þetta hafi gerst
óvenju hratt hjá mér, það er að
segja, æxlisvöxturinn, það er
víst ekki algengt að þessi leg-
hálskrabbamein ágerist svona
hratt. Ég hafði samt aldrei
heyrt um það. Ég hafði heyrt
um frumubreytingar sem væri
fylgst með milli ára og keilu- skurði svo ég hélt að ég væri
nokkuð örugg ef ég færi reglu-
lega í tékk. Ég sá svo sjálf hvað
þetta gerðist snöggt þegar það
fór að vaxa æxli í örinu eftir leg-
og leghálsnámið og það endaði
með annarri skurðaðgerð og
lyfja- og geislameðferð.“
Steinunn hefur verið krabba-
meinslaus síðan hún lauk með-
ferðinni árið 2011.
„Ég heyrði síðar hjá lækni að það
hefðu sést einhverjar frumu-
breytingar í krabbameins-
skoðuninni sem ég fór í áður
en þetta gerðist allt, en ég var
aldrei látin vita af því. Kannski
voru þær ekki það miklar að
það væri álitið hættulegt, enda
ganga þær oft til baka án þess
að nokkuð sé gert og þróunin
líka oftast hæg. Sem betur fer
er það oftast þannig og annars
hægt að grípa inn í hjá flestum,“
segir Steinunn um leið og hún
hvetur konur til að mæta reglu-
lega í krabbameinsskoðun, en
þó ekki treysta alfarið á hana.
Mikilvægt sé að fara til læknis
sem viðkomandi treystir.
Orgaði af sársauka
Árið 2013 kom út heimilda-
myndin Ég gafst aldrei upp.
Þar var sögð saga Heiðu Dís-
ar Einarsdóttur sem greindist
með leghálskrabbamein árið
2010. Hún lést tveimur árum
síðar, þá aðeins 23 ára að aldri.
Í myndinni var Heiðu Dís fylgt
eftir síðustu mánuðina í lífi
hennar.
Einar Hólm Jónsson, fað-
ir Heiðu, ræddi um baráttu
dóttur sinnar í Stundinni á sín-
um tíma. Fram kom að áður
en Heiða Dís greindist með
krabbamein hefði hún reglu-
lega farið í leghálskrabba-
meinsleit eins og konum er
ráðlagt að gera. En síðan fór
Heiða Dís að finna fyrir miklum
tíðablæðingum. Hún leitaði til
fjölmargra lækna en fékk ávallt
þau svör að þetta væri eðlilegt:
það væri einfaldlega mismun-
andi hvað konur hefðu miklar
blæðingar.
2. ágúst 2019
Engin skimun er 100 prósent næm
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
n Fanney Eiríksdóttir greindist með 4. stigs krabbamein þrátt fyrir að hafa ávallt verið undir eftirliti
Fanney og sonur hennar Erik Fjalar.
Fanney og Ragnar: Fanney barðist
hetjulega við meinið allt til enda.