Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Síða 20
Brot af því besta 5. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Fela reglulega trúlofunarhringa
á botni kampavínsglasa
Ímyndaðu þér rómantíska helgi með makanum í faðmi náttúrunnar með ótal fossa, fjöll og firnindi í
nágrenninu, ótakmarkað magn af
afþreyingu og notalegt andrúmsloft.
Hótel Laxá við Mývatn er fullkomin
staðsetning til dæmis fyrir pör sem
vilja upplifa ævintýri saman eða
slaka á. „Náttúran býður upp á
ótal dagsferðir og styttri túra. Við
starfsfólkið á hótelinu erum tilbúin
að veita upplýsingar um það sem
hægt er að skoða í nágrenninu sem
og ferða þjónustufyrirtæki sem bjóða
upp á ferðir. Íslendingar eru yfir-
leitt steinhissa á hvað við stingum
upp á mörgu að skoða sem þeir
vissu ekki um,“ segir Edda Hrund
Guðmundsdóttir, hótelstjóri Hótel
Laxár.
Hin fullkomna rómantíska helgi
fyrir pör á öllum aldri
„Fyrir þá sem vilja slaka aðeins á
en langar að skoða sig um, mæli ég
með hjólaferðum ef vel viðrar. Svo
er tilvalið að kíkja í Fuglasafnið og
líta síðan við í Dimmuborgum. Fyrir
þá sem vilja aðeins meira „aksjón“ er
gaman að skella sér í snjósleða- eða
hundasleðaferð á veturna. Annars
mæli ég eindregið með dagsferð í
Öskju og kíkja svo í Lofthelli sem er
engum líkur. Fólk þarf að sjálfsögðu
að næra sig og veitingastaðurinn
okkar, Eldey, er margrómaður fyrir
frábæran mat og meistaralegt
handbragð. Jarðböðin eru opin til
miðnættis og eru fullkominn endir
á góðum degi. Ég mæli alltaf með
því að fara á kvöldin þegar mesta
umferðin er farin í gegn. Þá er gott
að slaka á með smá rautt eða hvítt í
glasi.“
Það er ekki óvanalegt að starfs-
fólkið á Hótel Laxá fái beiðnir um að
hjálpa til við bónorð og slíkt. „Það
lífgar alltaf upp á daginn hjá okkur
þegar rómantískir makar biðja okkur
um aðstoð við að biðja unnustunnar
eða unnustans. Við höfum verið
fengin til þess að skreyta herbergi
eða fela hringa í kampavínsglösum
og eftirréttum.“
Falin náttúruperla
„Uppáhaldsstaðurinn minn í
nágrenninu er án efa Aldeyjarfoss.
Það eru alls ekki allir sem hafa heyrt
um þennan undurfagra foss sem er
umkringdur formfögru stuðlabergi.
Hvítur og djúpblár litur jökulfljóts-
ins myndar ótrúlega andstæðu við
dökkt bergið. Svo er alltaf gaman að
skella sér í útsýnisflug með Mýflugi.
Þá upplifir maður landslagið á alveg
glænýjan máta.“
Nýorðin fimm ára
Hótel Laxá er með 80 herbergi og
geta þar gist um 160 manns. „Hótelið
er gullfallegt og stílhreint og tilvalið
fyrir myndatökur. Hér hefur verið nær
sami kjarni starfsfólks í fjögur ár, en
hótelið var opnað 2014. Hér er frá-
bær andi og gott að vera. Fólk kemur
hingað í ýmsum erindagjörðum, hvort
sem um er að ræða fjölskyldur, pör í
brúðkaups afmælisferð, einstaklinga
eða ferðamenn. Við bjóðum upp á
fjölbreytta flóru herbergja; hjóna-
herbergi, twin-herbergi, einstak-
lings- eða fjölskylduherbergi. Hér eru
haldnar ráðstefnur, fundir, árshátíðir,
stórafmælisveislur og brúðkaup. Svo
hafa komið hingað kvikmyndatökulið,
en hótelið er byggt upp í fimm göng-
um þannig að það er mikið næði.
Á veturnar geta stórir hópar einnig
pantað hótelið út af fyrir sig. Þegar
líða tekur á haustið bjóðum við fólki
að fá símhringingu upp á herbergi
þegar norðurljósin láta sjá sig. Þá er
nóg að koma bara út á plan og sjá
þau dansa á himninum, því hér er
engin ljósmengun.“
Seiðkarl í eldhúsinu
Veitingastaðurinn á Hótelinu, Eld-
ey, er sérlega vinsæll hjá gestum
og heimamönnum og býður upp á
ljúffengan mat undir íslenskum og
erlendum áhrifum. „Kokkurinn, Birkir
Einarsson, leggur mikla áherslu á að
elda úr úrvals íslensku hráefni frá
bændum í Mývatnssveit og ná-
grenni þess. Þetta er gert til þess
minnka flutning og tryggja ferskleika.
Silungurinn kemur til dæmis frá
Húsavík og kjötið af skepnum sem
aldar hafa verið við kjöræðstæður
á Norðurlandi Eystra. Allt grænmeti
og ávextir kemur svo frá bæjunum
Hveravöllum, sem rækta í jarðvarma-
gróðurhúsum, og Vallarnesi, sem
ræktar einungis lífrænar afurðir.
Birkir hefur unun af því að leika sér
með hráefnin og er mikið í því að
reykja, grafa, setja í salt og súrsa.
Hann er alger galdramaður í eldhús-
inu. Morgunmaturinn er svo alltaf
vinsæll hjá ungum sem öldnum enda
gott úrval af girnilegum og seðjandi
morgunverði.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni hotellaxa.is
Olnbogaás, 660 Mývatn
Sími: 464-1900