Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Qupperneq 25
Brot af því besta 5. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Útfararþjónusta Rúnars Geir-mundssonar er elsta starfandi útfararþjónustan á höfuð-
borgarsvæðinu. Rúnar hefur alla
tíð veitt fyrirtækinu forstöðu sem
framkvæmdastjóri þess og útfarar-
stjóri. Útfararþjónustan er í eigu
Rúnars og eiginkonu hans, Kristínar
Sigurðardóttur, og starfa synir þeirra,
Elís og Sigurður, þar ásamt föður
sínum.
Orðsporið skiptir útfararþjónustu
miklu. „Ef maður sinnir sínu starfi
vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir
Rúnar sem hefur yfir 35 ára reynslu
af útfararþjónustu. „Fyrst og fremst
þarf að taka tillit til þess að fólk er í
sárum eftir ástvinamissi. Við þurfum
að gæta að því sem við gerum og
segjum og eins að nálgast fólk með
hlýju og auðmýkt. Það getur verið
mjög erfitt að bjóða fólki við þessar
aðstæður þjónustu gegn greiðslu en
þetta hefur lærst í gegnum árin og
við tökum mikið tillit til þess hvernig
aðstæður eru hverju sinni,“ segir
hann.
Formaður Félags íslenskra
útfararstjóra
Ásamt daglegum störfum við
hefðbundna útfararþjónustu er
Rúnar Geirmundsson formaður
Félags íslenskra útfararstjóra. Félagið
hefur verið starfrækt í yfir áratug og
hefur Rúnar verið formaður þess allt
frá upphafi. Aðaltilgangur félagsins er
skapa vettvang til að halda utan um
siðareglur útfararstjóra. „Starf mitt
sem formaður felst aðallega í því að
halda utan um fundastarf og fram-
fylgja reglum og samþykktum aðal-
funda. Ég sæki einnig fundi erlendis
enda á félagið í talsverðum erlendum
samskiptum. Siðareglur evrópskra
útfararstjóra eru til að mynda
grunnur íslensku siða reglnanna,“
segir Rúnar. Ekki er lagaleg skylda
að útfararstjóra séu í félaginu en
nánast allir starfandi útfararstjórar
eru þó félagsmenn og hafa undirritað
siðareglur félagsins.
Virðingin og alúð
Rúnar hefur unnið við útfararþjónustu
frá því 1983, fyrst hjá Kirkjugörðunum
og síðan í eigin fyrirtæki. Aðspurður
segist hann hafa lært það á löng-
um ferli að það skipti ekki höfuðmáli
hvaða trú fólk aðhyllist eða hvort það
aðhyllist trú yfirleitt, virðingin fyrir
hinum látna sé alltaf í forgrunni. „Og
það þurfum við alltaf að hafa í huga,
án þess að taka afstöðu til trúmála.
Hlýja, auðmýkt og virðing er það
leiðarljós sem við fylgjum alltaf.
Þegar andlát ber að garði er
mikilvægt að hafa samband við
útfararþjónustu sem fyrst,“ segir
Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja
hinn látna af dánarstað og í lík-
hús og síðan að byrja að undirbúa
kistu lagninguna. Útfararstjórinn
heimsækir yfirleitt aðstandendur
daginn eftir og þeir leggja þá fram
óskir sínar varðandi framkvæmd
kistulagningar og síðan jarðarfarar.
Í því felst í flestum tilfellum að velja
prest eða athafnarstjóra og síðan
að tímasetja allar athafnir og bóka
grafartöku eða bálför. Næsta skref
er svo að ákveða hvað kemur í okkar
hlut að sinna en við sjáum um allt er
lýtur að undirbúningi og framkvæmd
útfara. Til að mynda höldum við utan
um öll samskipti við aðstandendur,
tónlistarfólk, kirkjur, blómabúðir,
kirkjugarða og alla þá sem koma að
útför.“
Íslensk hönnun og handverk
Útfararþjónusta Rúnars
Geirmundssonar leggur mikið upp úr
því að vera með fallegar kistur á góðu
verði sem standast ströngustu kröfur
um umhverfisvernd. Algengastar
eru hinar hefðbundnu hvítu kistur
en alltaf er eitthvað um að fólk vilji
harðviðar kistur, til dæmis eik eða
mahóní. Val á kistum getur vafist
fyrir aðstandendum enda úrvalið
nokkuð. „Við eigum umhverfis vænar
og fallegar hefðbundnar hvítar kistur,
sem eru algengastar, en einnig
töluvert úrval af viðarkistum.“ Í fyrsta
sinn á Íslandi hefur Útfararþjónusta
Rúnars Geirmundssonar nú látið
hanna og smíða íslenskar kistur úr
íslenskum við í samstarfi við Þorstein
B. Jónmundsson trésmið. „Við höfum
hannað sérstaka kistu og duftker út
frá hugmyndinni um íslenska kistu úr
alíslenskum við til brennslu og jarð-
setningar,“ útskýrir Rúnar. Kisturnar
eru úr við sem er unninn og þurrkaður
í Hallormsstaðarskógi. „Þessi kista er
mjög falleg, úr grófum við og ólökkuð
eða máluð á náttúrulegan máta.“
Nánari upplýsingar er að finna á
utfarir.is eða í síma 567-9110 allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
Fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Helena Stefánsdóttir