Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Qupperneq 27
5. júlí 2019 FRÉTTIR 27
S
ædýrasafnið í Hafnarf
irði naut mikilla vinsælda á
sjöunda og áttunda áratug
seinustu aldar og um tíma var
aðsóknin með hreinum ólíkindum.
Jón Kr. Gunnarsson skipstjóri og
ritstjóri stofnaði Sædýrasafnið árið
1969 ásamt félögum í Hjálparsveit
skáta í Hafnarfirði en hann var
jafnframt forstöðumaður safnsins
allt til lokadags. Var starfsemi
safnsins meðal annars fjármögnuð
með tekjum sem fengust fyrir að
fanga háhyrninga fyrir sædýrasöfn
víða um heim. Þessi aðferð við
tekjuöflun vöktu harða gagnrýni
hvalaverndunarsamtaka og var síð
ar meir lögð af.
Safnið var staðsett neðar
lega í Holtinu í Hafnarfirði gegnt
álverinu. Gestir gátu þar með
al annars virt fyrir sér seli, hvali,
ísbirni, háhyrninga, kengúrur, ljón
og apa, auk íslenskra húsdýra.
„Sædýrasafnið, Sædýrasafnið.
Apar, ljón og ísbirnir, Sædýrasafnið.“
Þessi auglýsing heyrðist í útvörpum
landsmanna á áttunda áratugnum.
Í byrjun níunda áratugarins
fór að bera á miklum rekstrar
erfiðleikum hjá safninu sem meðal
annars mátti rekja til þess að ráðist
var í dýrar endurbætur sem síðan
borguðu sig ekki, auk þess sem
samningar við erlenda dýragarða
gengu ekki eftir. Safninu var
endanlega lokað árið 1987. Ísland
var dýragarðslaust næstu þrjú árin,
eða þar til Húsadýragarðurinn í
Laugardal opnaði árið 1990.
Hér gefur að líta nokkrar vel
valdar myndir úr ýmsum áttum.
„Sædýrasafnið, Sædýrasafnið.
Apar, ljón og ísbirnir, Sædýrasafnið“