Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Page 33
5. júlí 2019 FRÉTTIR 33 er margt rangt í núverandi kerfi en í stuttu máli er vandamál hvern- ig komið er fram við þolendur eins og vitni og vettvang glæps frekar en aðila að eigin málum. Þetta er eitthvað sem er verið að vinna markvisst að því að breyta. En eftir stendur að þöggunin gegn þolendum er sterk og fléttuð inn í réttarkerfi okkar og menningu. Við sem samfélag erum hrædd við það sem þolendur hafa að segja en það er kominn tími til þess að horfast í augu við það og gefa þeim orðið,“ segir hún. Telur Sóley mikla vit- undarvakningu þurfa að verða til þess að réttarkerfinu verði ekki beitt gegn þeim konum sem gagn- rýna það. „Þetta er eitt skref í áttina að því. Við mótmælum því að rétt- arkerfi sem var sett á fót fyrir for- réttindakarla af forréttindakörl- um viðhaldi sér. Samfélagið hefur breyst og réttarkerfið verður að taka mið af því. Það hefði auðvitað átt að gera það fyrir lifandis löngu síðan.“ Anna Lotta segist reyna að leggja sitt af mörkum fyrir stóru heildarmyndina og að hún sé að geta búið í samfélagi sem tekur alla þegna sína jafn alvarlega. „Ef þú horfir á einn dag á Al- þingi og ég er alls ekki að gera lítið úr þeim störfum, en þá sérðu al- veg hversu hægt þetta gengur fyr- ir sig. Bara það að fá einni klausu í einum lagadálki breytt. Þetta kerfi er svo þunglamalegt og það er svo erfitt að komast eitthvað áfram til þess að fá hlutum breytt. Svo er hægt að rífast fram og til baka um orðalagið í hverri setningu fyrir sig þannig að það er ekkert skrítið að við getum ekki breytt meiru í einu en það er það sem ég vil sjá gerast. Þetta eru svo ótrúlega stórir hlut- ir sem við viljum sjá breytt,“ segir Anna. Teljið þið að vísvitandi sé verið að þagga niður í konum/ þolendum? Elísabet: „Já. Hiklaust. Ekki bara er þetta þöggun gegn þolendum heldur er þetta líka ógnvænleg opinberun á því hvernig dómarar eru ekki jafn hlutlausir og fólk hef- ur haldið fram. Dómari dæmdi út frá skoðunum sínum og fordóm- um, mér þykir það skýrt. Hann tek- ur málfrelsi fólks og traðkar á því, en vandinn liggur ekki bara hjá honum. Hann fæðist inn í sömu menningu og við hin og því er dómurinn merki um stærra sam- félagsvandamál.“ Anna Lotta: „Ég túlka þetta þannig að ég megi ekki tjá mig og ég tek því sem algjörri þöggun.“ Þegar mál eins og þessi koma upp segir Sóley framkvæmdagleði fólks virkjast og að það sé einmitt tilfellið hér. „Vandamálið er þaggað með þessum hætti og versti óvinur þolenda er þögnin. Ef það væri ekkert mótlæti í lífinu þá væri ekki þörf fyrir okkur, þá værum við bara heima að baka. Þetta er eitt af þessum verkefnum sem verður að taka akkúrat þegar það er að ger- ast. Alls konar tilfinningar leysast úr læðingi sem eru kraftmiklar og verður að virkja.“ Þakklátar fyrir þann stuðning sem þeim er sýndur Síðan málfrelsissjóðurinn var stofnaður hefur hann gengið von- um framar og segja þær allar mik- inn samhljóm vera til staðar. Segist Sóley vona að pólitísku skilaboðin komist til síns heima um að ekki verði liðið að fjárhagslegu öryggi kvenna sé ógnað til viðbótar við allt annað í samfélagi sem sé gegn- sýrt af nauðgunarmenningu. „Við leggjum mikinn metnað í þetta og sama hvað þá er þetta bara fyrsta skrefið í byltingu,“ segir Elísabet Ýr og má greinilega finna baráttuvilja kvennanna. Stefnt er að því að ná að safna 20.000 evrum, sem eru tæplega þrjár milljónir íslenskra króna. Nú þegar hafa um 90% af upphæðinni safnast og er því greinilegt að fólk telji málefnið mikilvægt. Söfnunin hófst þann 21. júní síðastliðinn og lýkur þann 21. júlí næstkomandi. Konurnar eru þakklátar fyrir þann stuðning sem þeim er sýndur og hvetja fólk til þess að leggja mál- efninu lið. Einnig hvetja þær fólk til þess að leita til þeirra óski það eftir stuðningi vegna einhvers sem það er að glíma við. n „VERSTI ÓVINUR ÞOLENDA ER ÞÖGNIN“ n Nýstofnaður Málfrelsissjóður hluti af stærri byltingu n Stofnendur mótmæla því að réttarkerfi sem var sett á fót fyrir forréttindakarla af forréttindakörlum viðhaldi sér „Núna undanfarið hefur það færst í aukana að réttarkerfinu sjálfu sé beitt sem kúgunartæki gegn fólki sem er að reyna að breyta Blaðamaður hafði einnig sam- band við Silju Aðalsteinsdóttur sem er íslensku- og bókmennta- fræðingur. Silja sat í stjórn fyrsta málfrelsissjóðs sem stofnað- ur var hérlendis árið 1977, sem varð til í kjölfar undirskriftasöfn- unarinnar Varið land. Sjóðurinn var stofnaður til þess að standa straum af kostnaði vegna dóma sem upp komu vegna umræðu um stuðning landsmanna við veru varnarliðsins á Íslandi. Blaðamaður forvitnaðist um það hvort sá málfrelsissjóður hafi borgað sig og hvað Silju sjálfri finnist um sjóðinn sem stofnað- ur var á dögunum. Tókst ykkur ætlunarverk ykk- ar þegar þú varst í stjórn fyrsta málfrelsissjóðsins? „Hann var náttúrlega stofnað- ur í ákveðnu skyni og við gátum borgað skuldir þessara manna sem voru dæmdir fyrir að tala illa um herinn. En öll smáatriði varð- andi hann eru mér bara gleymd, hann borgaði sig þó í þeim til- gangi sem við stofnuðum hann. En þetta var afmarkað verkefni og ég man ekki til þess að við höf- um fengið neina beiðni eftir að það mál var útkljáð en samt þori ég ekki að hengja mig upp á það.“ Hefur þú heyrt af nýja mál- frelsissjóðnum sem hefur verið stofnaður? „Jú, jú, ég er búin að leggja minn skerf fram alla vega.“ Hvað finnst þér um nýja mál- frelsissjóðinn? „Ég er mjög hlynnt honum. Mér finnst alveg hræðilegt að fólk fari á hausinn fyrir að segja meiningu sína.“ SAT Í STJÓRN FYRSTA MÁLFRELSISSJÓÐSINS ÁRIÐ 1977 – STYÐUR NÝJA SJÓÐINN Silja Aðalsteinsdóttir / MYND: JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON. Anna Lotta Michaelsdóttir / Mynd: Aðsend Elísabet Ýr Atladóttir / Mynd: Aðsend

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.