Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Qupperneq 45
FÓKUS 455. júlí 2019
„ÉG SEGI JÁ VIÐ NÝJUM TÆKIFÆRUM OG SÍÐAN GERAST HLUTIRNIR“
„Í grunnskóla tók ég aukatíma
í tónsmíðum og þar vorum við að
vinna með forritið FL Studio. Síð-
an þegar ég flyt til Noregs þá byrja
ég aftur að vinna með það forrit og
gera mín fyrstu lög, sem hafa sem
betur fer skánað með tímanum,“
segir Victor brosandi. „Það er svo
einkennandi að þegar það er mikil
pressa á mér í námi eða vinnu þá
leita ég í tónlistina, sest bara við
píanóið og byrja að spila.“
Í mars árið 2015, þegar Victor
var á öðru ári í læknanáminu, lang-
aði hann að prófa að vera plötu-
snúður. „Strax á fyrsta ári var mað-
ur farinn að kíkja aðeins út á lífið.
Í Slovakíu og löndunum í kring er
mikil klúbbamenning og allt öðru-
vísi en hér, þar er áherslan á plötu-
snúðinn og þá tónlist sem hann
er að spila, sem er helst svokölluð
House-tónlist. Ég er sjálfur að gera
tónlist í þeim stíl sem er taktföst
og skemmtileg og er mjög mik-
ið í austrinu, en ég hef alltaf haft
þennan takt í mér sem tvinnast út
frá píanóinu,“ segir Victor. „Ég fæ
skilaboð þar sem ég er beðinn um
að spila í nemendapartýi, karni-
vali þar sem allir áttu að mæta í
búningi og ég segi bara já, þrátt
fyrir að hafa aldrei spilað áður sem
plötusnúður. Ég er svolítið þannig
að ég segi bara já við tækifærum
og svo gerast bara hlutirnir. Ég hef
þarna nokkra daga til að æfa mig,
ég var með píanóbakgrunninn
sem hjálpaði mér mikið þar sem
þetta snýst mikið um takt og taln-
ingu, en ég var nokkur kvöld fram
á nótt að undirbúa mig, safna og
setja saman lög,“ segir Victor og
bætir við að þegar hann mætti til
að spila hafi hann loksins fundið
það sem hann var búinn að leita
að.
Í kjölfarið var Victori boðið að
spila á öðrum klúbbum í Martin,
og síðan koll af kolli á sífellt stærri
stöðum og nýjum löndum. Síðan
spurðist það heim að hann væri
að spila og hann var beðinn um að
spila á Þjóðhátíð í Eyjum, þar sem
hann kemur fram í þriðja sinn nú
í ágúst og í júní kom hann einnig
fram á Secret Solstice þar sem
hann spilaði á stóra sviðinu með
Svölu Björgvins og kom einnig
fram einn. „Þetta er eins og snjó-
bolti, maður spilar meira og meira
og þannig koma ný og ný tækifæri.
Eftir tvær vikur er ég á Krít og svo
á Seychelles-eyjum í lok ágúst,
þar sem ég kem fram með Willy
William og fleiri erlendum tón-
listarmönnum. Þetta hefur þróast
svolítið hratt.“
Verður að vera með listamanns-
nafn
Á þriðja árinu í læknisfræðinni
hitaði Victor upp fyrir stærsta
plötusnúð Slovakíu og sagði vinur
hans þá að hann yrði að vera með
listamannsnafn. Victor lagði heil-
ann í bleyti til að finna hvaða nafn
væri mest einkennandi fyrir hann
og Doctor Victor varð ofan á. „Vin-
ur minn sagði að DJ Victor væri
ekki nógu sterkt. Ég er bæði plötu-
snúður og „pródúsent“, það er
geri mína eigin tónlist, þannig að
nafnið varð að gefa það til kynna,
í stað þess að vera með DJ í nafn-
inu,“ segir Victor. „Doctor Victor
var síðan prentað á plakatið, það
var fullt hús og þannig var nafnið
bara meitlað í stein.
Ég hef stundum verið í
læknasloppnum á stærri kvöld-
um. Á Seychelles-eyjum ætla ég
að vera með einhverja grafík á skjá
fyrir aftan mig og veit hvað ég vil
hafa, ég á bara eftir að útfæra það.
Ég er kominn með lógó, sem ég
átti hugmyndina að og sendi svo
á grafískan hönnuð, sem ákvað
að hafa hjartalínuritið sem mér
fannst koma mjög vel út.“
Fyrsta lagið vinsælasta lag
landsins
Victor gefur einnig út eigin tónlist,
sem í byrjun voru remix, en árið
2017 gaf hann sitt fyrsta lag út á
Spotify. „RVK Events höfðu síðan
samband við mig og báðu mig að
gera þemalag fyrir Sumargleðina
sem er ein stærsta grunnskólahá-
tíð landsins og ég segi bara já þó ég
hafi verið í miðjum prófum á þeim
tíma. Og ég hugsaði hvað það væri
gaman að fá Ingó Veðurguð með
mér, ég hringi í hann og hann
var klár í slaginn. Ég fékk einnig
Gumma Tóta bróður hans með,
en hann býr í Svíþjóð. Við unnum
síðan lagið saman í þremur lönd-
um, þeir tóku hvor upp sinn hluta,
ég setti það saman og síðan unn-
um við saman að því að klára text-
ann sem ég hafði samið.“ Lagið er
núna það vinsælasta á Íslandi og
þykir Victori ótrúlega gaman að fá
fullt af snöppum og myndböndum
send þar sem fólk er að dansa og
syngja við lagið.
„Þetta finnst mér svo skemmti-
legt við tónlistina sem ég er að
gera að það er hægt að gera hana
hvar sem er. Ég er bara með tölv-
una með mér, svo sit ég til dæmis á
flugvellinum, skelli á mig heyrnar-
tólunum og er bara byrjaður. Það
er líka svo gaman að vera í 40 þús-
und feta hæð að gera tónlist,“ seg-
ir Victor.
Þeir Ingó hittust í fyrsta sinn
í lok júní við útskrift Dagbjartar.
„Ég hringdi í hann og spurði hvort
hann vildi ekki slá tvær flugur í
einu höggi, hittast og taka saman
acoustic útgáfu af Sumargleðinni,
en ég spilaði á píanó og hann gítar.
Nú er bara að bíða eftir að Gummi
komi heim, spurning hvort við
tökum lagið ekki saman á Þjóðhá-
tíð.“
Nýlega kom út lagið Running
Back sem Victor vann með Svölu
Björgvins ásamt tónlistarmynd-
bandi. „Síðasta vetur var ég byrj-
aður að vinna í lagi og hugsaði
að þetta væri flott klúbbalag sem
væri epískt að fá kraftmikla kven-
mannsrödd eins og Svölu í og hafði
ég því samband við hana. Hún sló
til og við hittumst tvisvar í stúdíói,
tókum lagið upp og kláruðum, en
vorum áður búin að vera að vinna
að því saman í sitt hvoru landinu.
Ég hef góða trú á að það lag verði
líka vinsælt.
Ég er með fullt af tilbúnum lög-
um og ég hef verið að vinna með
nokkrum listamönnum, þannig að
það er margt spennandi á leiðinni.
Það sem er skemmtilegast við tón-
listina núna er að vinna með öðr-
um listamönnum, eins og Svölu,
þar sem maður hittir þá og vinnur
með þeim, það veitir manni mik-
inn innblástur. En mér finnst gam-
an að vera um stund á Íslandi og
mig langar að vinna með nokkrum
hér, það er fullt af flottum lista-
mönnum hér heima.“
Læknisfræðin og tónlistin
tvinnast vel saman
„Læknisfræðin og tónlistin hef-
ur tvinnast vel saman, þegar ég
er undir pressu þá leita ég í tón-
listina,“ segir Victor aðspurður
um hvort að hann muni alltaf vera
bæði í lækningum og tónlist. „All-
ur minn aukatími fer í tónlist, hún
lífgar mig upp þegar ég kem heim
þreyttur. Ég get alltaf gripið í tón-
listina.“
En er tími fyrir fleiri áhuga-
mál? „Já ég hef gaman af að ferð-
ast, sem er hluti af bæði tónlistinni
og læknisfræðinni, en svo er ég
nýbyrjaður á hlaupaprógrami hjá
Arnari Péturs og það er einhver
mesta snilld sem ég hef kynnst.
Kannski kemur eitthvað nýtt þegar
ég er búinn með læknisfræðina.
Ég mæli með því að fólk segi já og
keyri á það sem það hefur áhuga
fyrir, maður veit aldrei hvað getur
gerst.“
Fylgjast má með Victor á helstu
samfélagsmiðlum: Facebook og
Instagram undir @doctorvict-
orsound og Spotify undir Doctor
Victor. n
Læknir Victor að störfum
á bráðamóttökunni.
Píanóleikarinn
Victor spilar á burt-
fararprófstónleikum
sínum árið 2011.
Plötusnúður Victor spilar í stærsta
Halloweenpartýi í Ungverjalandi.
„Það er svo
gaman að vera
í 40 þúsund feta hæð
að gera tónlist