Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Síða 6
6 FÓKUS - VIÐTAL 14. júní 2019
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
LÆKJARSMÁRI 4, 201 KÓPAVOGUR
55.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýlishús
109 M2
4
SÆVIÐARSUND 29, 104 REYKJAVÍK
43.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýlishús
86 M2
3
LANGHOLTSVEGUR 19, 104 REYKJAVÍK
42.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
97 M2
4
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
„Ég var orðin
virkilega
þunglynd og
lömuð af kvíða“
Sara gekk út úr ástlausu sambandi og endurheimti heilsuna
S
ara Hlín Hilmarsdóttir er
tuttugu og níu ára göm-
ul einstæð móðir sem býr
í Hveragerði ásamt sex ára
gömlum syni sínum. Sara hefur
alla sína tíð verið of þung og hefur
hún margsinnis reynt að ná tökum
á þyngd sinni án árangurs. Það var
ekki fyrr en Sara tók andlegu líðan
sína í gegn sem hún fór að sjá lík-
amlegan árangur til lengri tíma.
„Ég hef alltaf verið hið klass-
íska jójó. Tek mig á og missi tíu
kíló bara til þess að missa tökin
og bæta á mig fimmtán kílóum.
Ýmis áföll og erfiðleikar voru þess
valdandi að ég var greind með
mikla áfallastreitu, kvíða og þung-
lyndi,“ segir Sara í viðtali við DV.
Föst í ástlausu sambandi
Sonur Söru var mikið kveisu-
barn og upplifði hún alvarlegt
fæðingarþunglyndi sem hún leit-
aði sér aðstoðar við árið 2015.
„Ég tók þá mataræðið í gegn
með mjög góðum árangri en árið
2016 missti ég vinnuna og fór það
mjög illa með andlegu hliðina að
vera föst heima atvinnulaus. Ofan
á það var ég í algjörlega ástlausu
sambandi sem gerði mig ofboðs-
lega veika andlega. Ég sat því bara
heima á daginn í tölvunni og borð-
aði nammi og skyndibita. Ég var
virkilega þunglynd og lömuð af
kvíða.“
Í byrjun árs 2017 ákvað Sara
að slíta sambandi sínu og flytja út
frá þáverandi maka sínum. Átti sú
ákvörðun eftir að breyta lífi henn-
ar meira en hana grunaði.
„Þá fór loksins eitthvað að ger-
ast. Ég var rosalega brotin og þreytt
eftir sex ára samband og ég þurfti
í raun að byrja á því að hreinlega
átta mig á því hver ég væri og hvað
ég vildi. Fljótlega fór mér að líða
betur og hætti að borða tilfinn-
ingar mínar sem varð til þess að ég
fór að léttast. Síðan fékk ég vinnu
hjá H&M þar sem ég var allt í einu
farin að hlaupa allan daginn, þá
léttist ég enn þá meira og undir lok
árs 2017 var ég komin á það góð-
an stað andlega að ég gat hætt
„Þegar maður finnur líka hvernig óhollur
matur ýtir undir vanlíðan og kvíða þá
á maður ekki erfitt með að sleppa honum.“
MYND: HANNA/DV
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is