Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Page 27
Veitingablaðið 14. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ
Eitt vinsælasta kaffihús
landsins lækkar verðið
CAFÉ ADESSO:
Cafe Adesso í Smáralind hefur um árabil verið geysilega vinsælt kaffihús og veitingastaður en
staðurinn var opnaður 7. apríl 2002.
Cafe Adesso er vel sóttur af viðskipta-
vinum Smáralindar en auk þess venur
stór hópur fastagesta komur sínar á
staðinn, meðal annars fólk sem vinnur í
nágrenninu.
Ljúffengt crepes.
Cafe Adesso býður upp á hið rómaða
og bragðmikla Piazza doro-kaffi. Piazza
doro inniheldur Arabica kaffibaunir frá
Ástralíu og er leiðandi kaffiframleiðandi
þar í landi.
„Með kaffinu mæli ég með sneið af
franskri súkkulaðiköku með rjóma. Mikið
úrval er af alls konar gómsætum kökum.
Einnig eru smurbrauð með roastbeef,
laxi, hangikjöti og fleiru gerð alla daga.
Börnin geta valið sér crepes eða þá
panini, já eða bara kleinuhring,“ segir Elís
Árnason, eigandi Adesso.
Fjölbreytt úrval af gómsætum mat og
hádegistilboð alla daga
Sem fyrr segir er Cafe Adesso í senn
kaffihús og veitingastaður. Geysilegt
úrval af tertum og smástykkjum er í
boði alla daga en matseðla má skoða á
heimasíðu staðarins, adesso.is. Meðal
annars eru crepes hádegistilboð alla
virka daga milli kl. 11.30 og 14.00 á 1.890
krónur, súpa dagsins með brauði á
1.190 krónur, svo má ekki gleyma Mex-
ikókjúklingasalatinu okkar á 1.890 krónur
alla daga.
Girnilegt Mexíkósalat.
Enn meiri verðlækkun
Adesso er nýbúið að lækka verðið
á völdum réttum og meðal annars
hefur verðið á crepes réttunum okk-
ar á matseðli, lækkað úr 2.390 niður í
1.990 kr. Einnig lækkar verðið á öllum
kökusneiðunum okkar niður í 990 kr.
Rjóminn fylgir þá með. „Svo er hægt
að fá tilboð á kaffibolla og eðal franskri
súkkulaðiköku á eingöngu 1.290 kr. en
frönsku súkkulaðikökuna baka ég sjálfur
á staðnum,“ segir Elís.
Megináherslan er lögð á fjölbreytni í
starfsemi Cafe Adesso þannig að allir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að
ógleymdu kaffinu sem nýtur ómældra
vinsælda.
Nánari upplýsingar má nálgast á
adesso.is
Facebook: Adesso Smáralind
Cafe Adesso er opið mánudaga–mið-
vikudaga frá kl. 11.00 til 19.00, fimmtu-
daga frá 11.00 til 21.00, föstudaga og
laugardaga frá kl. 11.00 til 19.00 og
sunnudaga frá kl. 12.00 til 18.00. n