Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Qupperneq 32
32 PRESSAN 14. júní 2019
H
ún var ekki dæmigerður
raðmorðingi í þeim skiln-
ingi að hún hafi notið þess
að drepa eða að sjá fólk
þjást. Fyrir henni jafngilti hvert
barn sem hún drap peningum í
kassann.“
Þessi saga hefst eins og margar
aðrar. Brynhild Paulsdatter Stør-
seth fæddist við bágar aðstæður á
litlum bóndabæ, þann 11. nóvem-
ber 1859. Bærinn, sem hét Stør-
sethgjerdet, tilheyrði stórbýlinu
Størseth í Noregi. Brynhild var
yngst átta barna. Þegar hún var
unglingur varð hún þunguð eftir
ríkan bóndason frá einu stórbýl-
anna í nágrenninu.
Kvöld eitt þegar Brynhild var
á dansleik var hún slegin svo fast
í magann að hún missti fóstrið.
Maðurinn sem sló hana mun hafa
verið faðir barnsins, en hann var
aldrei ákærður fyrir verknaðinn.
Stuttu síðar lést hann af því sem var
lýst sem krabbameini í maga, fólkið
í þorpinu velti því þó fyrir sér hvað
hefði komið fyrir manninn.
Skipti um nafn, Brynhild varð
Belle
Eftir fósturmissinn á Brynhild að
hafa breyst mikið. Eins og margt
ungt fólk á þessum tíma ákvað hún
að freista gæfunnar hinum megin
Atlantshafsins og vann sem þjón-
ustustúlka í þrjú ár til þess að safna
fyrir farmiðanum.
Árið 1881 settist hún að í
Chicago og giftist fljótlega Norð-
manninum Mads Ditlev Anton
Sørensen. Hún skipti um nafn og
varð Belle Sørensen. Saman ráku
hjónin verslun en reksturinn gekk
ekki sem skyldi. Dag einn brann
verslunin og hjónin fengu greiddar
tryggingabætur.
Samkvæmt manntali (United
States Census) sem gert var árið
1900 áttu Belle og Mads fjög-
ur börn, Caroline, Axel, Myrtle og
Lucy. Caroline og Axel létust bæði
við grunsamlegar aðstæður (árin
1896 og 1898), eftir dauða barn-
anna fékk Belle greiddar bætur frá
tryggingunum. Það hefur aldrei
verið sannað að Belle hafi í raun
verið líffræðileg móðir barnanna
fjögurra, talið er að hjónin hafi tek-
ið börnin að sér þegar foreldrarn-
ir gátu ekki séð um þau. Þau báru
einnig ábyrgð á hinni tíu ára gömlu
Jenny Olsen, en faðir hennar er
talinn hafa verið norskur sjómaður.
Eiginmennirnir létust skyndi-
lega
30. júlí árið 1900 lést Mads einnig
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
Svo drap hún 40
menn og fjölda barna
Hin norska Brynhild
flutti til Ameríku
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Skipti um nafn Brynhild varð að Belle.