Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Síða 46
14. júní 201946 Bækur
A
ðalpersónur spennu-
sögunnar Þar sem ekkert
ógnar þér eru tvær konur
sem þekkjast ekki. Önn-
ur er fangi á heimili sínu ásamt
veikri dóttur sinni þar sem stór-
hættulegur morðingi á flótta und-
an lögreglu heldur þeim í gíslingu.
Hin konan lendir í slysi og missir
við það minnið, þ.e. minni í kring-
um það atvik. Rétt áður en hún
lenti í slysinu varð hún áskynja
um ástandið á heimili konunnar
sem haldið er í gíslingu.
Höfundur sögunnar, Simone
van de Vlugt, er í káputexta sögð
vera þekktasti glæpasagnahöf-
undur Hollands. Athygli þessa
lesanda vekur hvað höfund-
ur hefur góðan stíl auk þess sem
þýðandinn, Ragna Sigurðardótt-
ir, hlýtur þar með að fá hrós fyr-
ir að skila frá sér afskaplega lipr-
um, hitmiðuðum og lifandi texta.
Vlugt hefur sálrænt innsæi á pari
við prísaðar fagurbókmenntir
og lýsing hennar á umbreytingu
konunnar sem lendir í slysinu
við það áfall er afskaplega næm
og viturleg. Sem spennusaga er
bókin hins vegar ekki nægilega
áhugaverð. Hún er fyrirsjáan-
leg og endirinn minnir á blóð-
uga og slappa B-mynd. Sagan er
þó vissulega spennandi og aldrei
leiðinleg aflestrar en af einhverj-
um ástæðum er söguþráðurinn á
mun lægra plani en ritstíllinn.
Þessu mati skal þó tekið með
þeim fyrirvara að þetta er ein
vinsælasta bók höfundar og hef-
ur unnið til ýmissa verðlauna og
viðurkenninga. En sínum augum
lítur hver á silfrið. n
F
yrir 20 árum hefði ég getað
sagt að nútímamaðurinn
yrði fyrir mörgu og marg-
víslegu áreiti. Líklega hefði
ég getað sagt það sama fyrir 30,
jafnvel 40 árum, og fólk hefði
kinkað kolli. En áreiti samfélags-
miðla og snjallsímaforrita sam-
tímans, margbreytileiki og hraði
samfélagsumræðunnar, fals-
fréttir og raunfréttir, heiftarleg
pólarísering, rafræn fjandsemi
og ofstopi, endalaus skrásetning
daglegrar tilveru – þetta og fleira
til hefur gert tilveru margra nú-
tímamanna að lífi undir stans-
lausu áreiti sem ekki er sambæri-
legt við nýliðna fortíð.
Sumir hafa fengið nóg og af-
tengt sig netheimum. Rithöfund-
ar loka Facebook-reikningnum
sínum, dusta rykið af gömlu rit-
vélinni, hreiðra um sig í bóka-
herbergi með gömlum skræðum,
tékka kannski á tölvupósti einu
sinni í viku en láta netið annars
í friði. Fjölskyldufólk fer í sumar-
bústaðinn og skilur snjallsímana
eftir heima. Tengir sig við náttúr-
una og spreytir sig á uppbyggi-
legum samræðum – í eina helgi –
ja, eða að minnsta kosti í nokkrar
klukkustundir.
Sumir vilja losa sig úr netheim-
um og tengja sig aftur við „raun-
veruleikann“. En það er ekki
lausn. Því hvað er raunveruleiki?
Raunveruleikinn og lífið sjálft
er að sjálfsögðu líka á netinu og
samfélagsmiðlunum, þar er lífi
okkar líka lifað.
Nýtt smásagnasafn eftir Her-
mann Stefánsson, Dyr opn-
ast, er bók sem má nálgast á
margan hátt. Ég upplifi hana
sem vel heppnaða tilraun til að
takast við þennan ofannefnda
nýja veruleika. Hún gerir það á
vissan hátt með því að vera „eins
og“ þessi veruleiki: óendanlega
margbreytileg, stútfull af áreiti
sem þó ekki ærir mann né ræn-
ir sálarrónni heldur er róandi
og sefandi. Þessar tæplega tvö
hundruð blaðsíður af stuttum
sögum, athugunum og pæling-
um er merkileg og margbrotin
kvika. Sögurnar eru afar ófyrir-
sjáanlegar, sumar einkennast af
heimspekilegri nálgun, aðrar eru
í senn gróteskar og afskaplega
fyndnar.
Það virðist betra og skemmti-
legra að lesa bókina frá upphafi
til enda en að tína út eina og eina
sögu. Lesandinn fær tilfinningu
fyrir heild sem hver getur túlkað
með sínum hætti. Upphafssagan
er titilsagan Dyr opnast og fjall-
ar um dreng sem virðist ekki vera
til og sagan vekur skemmtilegar
spurningar um eðli tilvistarinnar.
Lokasagan heitir Dyr liggja norð-
ur og er fantasía sem býður upp
á flótta úr okkar menningarheimi
ofgnóttarinnar, tækninnar og
áreitisins og inn í menningu 18.
aldar. Víða fær lesandinn tilfinn-
ingu fyrir einhvers konar sam-
hengi eða samfellu. Það er til
dæmis væntanlega engin tilvilj-
un að sögurnar Óumflýjanlega,
Póstsending og Vitaverðir rjúfa
þögnina, eru hver á eftir annarri.
Sú fyrstnefnda minnir á gam-
anþættina Klovn og lýsir
óendanlega seinheppnum
manni sem er við það að verða
sterklega grunaður um barnaníð,
alsaklaus. Póstsending lýsir hins
vegar siðblindu hugarfari raun-
verulegs barnaníðings. Vitaverð-
ir rjúfa þögnina hefur hins vegar
vakið áhuga æsifréttamanna því
túlka má hana sem hæðnisá-
deilu á #metoo byltinguna, sem
hún vissulega er, en að lesa hana
í samhengi allrar bókarinnar er
samt öðruvísi en að lesa hana
eina og þá virðist hún ekki eins
ögrandi, vegna þess að tónninn
í allri bókinni er svo fullkomlega
laus við skoðanir, eða siðferðis-
mat. Engu er hlíft án þess að þó
að reynt sé að gera sér far um að
hjóla í einhverja. Tónn bókarinn-
ar virkar blindur á móðgunar-
girni, en kannar, gaumgæfir, lýsir
og afhjúpar án tillitssemi, án þess
að vita hvað tillitssemi er.
Dyr opnast er afskaplega
skemmtileg upplifun fyrir les-
anda með opinn huga. Djúp,
margræð og margbrotin, bráð-
fyndin og flugbeitt. Bók sem er
skrifuð beint inn í okkar skrýtna
og margbrotna samtíma og tekst
á við hann á fádæma frumlegan
hátt. n
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Bækur
Dyr opnast
Höfundur: Hermann Stefánsson
Útgefandi: Sæmundur
195 bls.
Smásagnasafn
Ritdómur um Dyr opnast:
Skrifað inn í áreitið og út úr því
Ritdómur um Þar sem ekkert ógnar þér:
Stíllinn betri en sagan
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Bækur
Þar sem ekkert ógnar þér
Höfundur: Simone van der Vlugt:
Útgefandi: Veröld
214 bls.
Spennusaga