Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Síða 10
10 21. júní 2019FRÉTTIR
„Ég gerði þetta því ég hafði
ekki um annað að velja“
Borghildur Guðmundsdóttir barðist fyrir forræði yfir börnum sínum við bandarískan
hermann og hafði betur - Fékk morðhótanir - Glímir við afleiðingarnar ævilangt
Þ
etta hefur litað allt okkar líf
og mun gera að eilífu. Ég og
börnin mín vorum allt ann-
að fólk fyrir þetta. Við erum
í dag, að mér finnst, miklu betra
fólk. Ég hefði ekki viljað sleppa
þessari reynslu, þó hún hafi haft
í för með sér gífurlegan andlegan
kostnað,“ segir Borghildur Guð-
mundsdóttir, ávallt kölluð Bogga.
Bogga vakti athygli fjölmiðla hér
heima og vestan hafs fyrir rúmum
áratug þegar hatrömm forræðis-
deila hennar við bandarískan
barnsföður hófst. Í þrjú og hálft ár
barðist Bogga fyrir sonum sínum
tveimur, Brian og Andy, bæði fyr-
ir dómstólum á Íslandi og í Banda-
ríkjunum.
Örlögin leiddu þau saman
Bogga kynntist bandaríska her-
manninum, Richard Colby
Busching, sem í daglegu tali er
kallaður Colby, árið 1998. Þau hitt-
ust fyrst á Íslandi, nánar tiltekið á
skemmtistaðnum Dubliner í mið-
bæ Reykjavíkur. Í raun má segja
að örlögin hafi leitt Boggu og Col-
by saman því Bogga ætlaði alls
ekkert að fara inn á þennan bar
þetta kalda kvöld í marsmánuði.
Svo fór að Bogga rak inn nefið og
var kynnt fyrir bandarískum vin-
um vinkonunnar. Í þessum vina-
hópi var Colby. Bogga var alls ekki
að leita að ástinni en fann hana al-
gjörlega óvænt í örmum Colbys.
Herinn kallaði en turtildúfurnar
gátu ekki hugsað sér að vera að-
skilin. Því gengu Bogga og Colby í
það heilaga í september árið 1998
og stuttu síðar varð Bogga ólétt af
eldri syni þeirra, Brian, sem verð-
ur tvítugur á þessu ári. Í kjölfar-
ið fluttu þau til Bandaríkjanna,
Þýskalands og svo aftur til Banda-
ríkjanna. Yngri sonur Boggu og
Colbys, Andy, fæddist síðan í lok
árs 2004.
Colby var sendur í herþjónustu
til Íraks og varð aldrei samur eftir
það. Hann kom til baka breyttur
maður – uppstökkur, áhugalaus og
skapstór. Ekki bætti úr skák að líf
Boggu sem eiginkonu hermanns
var ekki dans á rósum. Hún var
að mestu ein með börnin, flutti
oft á milli staða vegna vinnu Col-
by og náði því illa að festa ræt-
ur. Colby byrjaði einnig að sýna
Boggu hliðar á sér sem hún hafði
aldrei séð áður. Hann eyddi um-
fram efni, laug að henni og var far-
inn að sýna af sér ofbeldishegðun.
Kornið sem fyllti mælinn var þegar
Bogga komst að því að Colby hafði
búið sér til MySpace-síðu þar sem
hann sagðist vera einhleypur og
virtist vera kominn í einhvers kon-
ar samband við aðra konu. Hjóna-
bandi þeirra Boggu og Colbys
lauk loks árið 2007. Við skilnaðinn
ákváðu þau í sameiningu að Bogga
myndi hugsa um börnin. Því var
það sem fylgdi á eftir eins og blaut
tuska í andlitið.
Snemma árs 2008, þegar Bogga
var nýlent í Bandaríkjunum eftir
jólafrí á Íslandi og á leiðinni til að
fá drengina sína í fangið eftir dvöl
þeirra hjá ömmu sinni og afa yfir
hátíðirnar, hringdi Colby í hana.
Hann óð áfram að hennar sögn,
sagðist ætla að hafa af henni allt –
þar á meðal drengina. Í óðagoti, al-
ein í landi þar sem hún hafði aldrei
almennilega fest rætur, ákvað
Bogga að fljúga með drengina
sína til Íslands til að finna öruggt
skjól. Í framhaldinu fór fram löng
og ströng forræðisdeila, fyrst fyr-
ir íslenskum dómstólum og síð-
an fyrir bandarískum, sem end-
aði með fullnaðarsigri Boggu árið
2011. Bogga leitaði heim til Íslands
því hún átti möguleika á gjafsókn
hér heima til að heyja þessa bar-
áttu um forræðið. Íslenskir dóm-
stólar dæmdu hana hins vegar til
að snúa aftur til Bandaríkjanna, án
dvalar- og atvinnuleyfis. Þar átti
hún að verja sitt mál. Með hjálp
góðs fólks náði hún að safna næg-
um pening til að ráða bandarísk-
an lögfræðing sem að lokum vann
málið fyrir hana.
Áfallastreituröskun á háu stigi
Í dag hefur Bogga komið sér vel
fyrir á Kársnesinu í Kópavogi. Auk
Andy og Brian á hún son úr fyrra
samband, hann Gumma, sem er
uppkominn og býr í Finnlandi.
Andy og Brian búa hjá henni
og sambýlismanni hennar, Ey-
þóri Österby. Hann á sjálfur þrjú
börn og saman hafa þau náð að
skapa sér gott líf saman síðustu
ár. DV fylgdist vel með forræðis-
deilu Boggu á sínum tíma og var
það undirritaður blaðamaður sem
skrifaði einna mest um hana. Á
þessum áratug sem liðinn er hef-
ur Bogga lítið breyst á yfirborðinu.
Það er ansi stutt í húmorinn, hún
er ákveðin, liggur ekki á skoðun-
um sínum en tekur jafnframt á
móti blaðamanni með mikilli
hlýju og kærleika. Það sem hefur
breyst undir yfirborðinu er síðan
önnur saga. Sú Bogga sem blaða-
maður kynntist fyrir öllum þess-
um árum óð áfram, algjörlega ein-
beitt í sinni baráttu, og náði oft
varla andanum. Bogga er í dag
umlukin ró. En hún játar það fús-
lega að þessi barátta og allt sem
henni fylgdi tók sinn toll.
„Ég er með áfallastreiturösk-
un á frekar háu stigi, sem ég mun
kljást við að eilífu. En ég hef lært
að takast á við hana, og það vel.
Ég hef farið á fullt af námskeiðum
og talaði mikið við sálfræðinga.
Brian þjáist af miklum kvíða sem
hann gerði ekki áður. Hann þol-
ir illa áreiti. Hvað varðar Andy þá
hefur hann blessunarlega svolítið
sloppið. Hann var lítið að pæla í
því að það væri eitthvað athuga-
vert í gangi. Svo lengi sem ég var
nálægt þá var allt í góðu. Hann
var svo ungur en Brian var á við-
kvæmum aldri,“ segir Bogga. Hún
sjálf fær einnig regulega kvíðaköst
ef eitthvað er ekki eins og það á
„Hann er þakk-
látur fyrir það að
ég barðist fyrir
strákunum“
MYND: EYÞÓR/DV
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is