Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Page 24
Toppurinn 21. júní 2019KYNNINGARBLAÐ
Róaðu þig með Kajakferðum
Að sigla í kajak er ein skemmtilegasta afþreying sem hugsast getur og er á
nær allra færi að taka í árina og
róa eins og vindurinn. Kayakferð-
ir var fyrst stofnað árið 1995 og
árið 2013 tóku þeir félagar, Gunn-
ar Valberg og Magnús Ragnar við
árinni. „Þetta hefur gengið vonum
framar. Við erum með um 60-70
kajaka á okkar vegum og getum
tekið allt að 60 manns í einni ferð.
Við erum allajafna 4 sem sjáum um
ferðirnar hjá fyrirtækinu. Þetta er
hörkuhreyfing og alveg gífurlega
skemmtileg,“ segir Magnús.
Finnur ró í því að róa
„Þetta eru mestmegnis eða um
75-80% Íslendingar sem koma í
ferðir hjá okkur, og mér finnst þetta
bara vera að aukast. Það er enda
fátt sem jafnast á við það að vera
einn með náttúrunni úti á hafi eða
í fenjunum. Á góðum degi er þetta
eins og andlegt jóga. Því fylgir
svo mikil ró að róa með hafgoluna
í andlitinu. Maður verður alveg
endurnærður eftir svona túr. Fólk
er líka himinlifandi eftir svona ferðir
og þetta er komið inn á samfélags-
miðlana nær samstundis. Við höf-
um því lítið þurft að auglýsa okkur.“
Einstaklingar og hópar
Kayakferðir bjóða upp á fjölbreytt-
ar ferðir sem henta einstakling-
um, vinahópum, fjölskylduhóp-
um, gæsa- og steggjahópum,
vinnustaðasamhristingum eða
langtum stærri hópum. „Við höf-
um verið með allt að 350 manna
hópa. Þegar um svo stóra hópa
er að ræða þá skiptum við þeim
upp í minni hópa og skipuleggjum
afþreyingarstöðvar með þrauta-
brautum, sundi, leikjum, búbblu-
bolta, ásamt kajakróðri, að sjálf-
sögðu. Svo hrókerum við á milli og
það fá allir að prófa allt.“
Vinsælustu ferðirnar hjá fjöl-
skylduhópum eru án efa Róbinson
Krúsó ævintýraferðirnar. Þá fer
fjölskyldan af stað í leiðangur um
fenjasvæði Stokkseyrar. Hópurinn
er á eigin spýtum og fær kort til
þess að rata eftir. „Það myndast
alltaf stórskemmtileg stemning í
þessum ferðum enda er fólk að
kanna saman skemmtilega skurði
og tjarnir með stórbrotnu fuglalífi.
Sefið eru sumsstaðar svo hátt að
það er næstum eins og maður sé
kominn til Amazon. Það geta allir
tekið þátt í Róbinson Krúsó ferðinni
og þeir allra yngstu geta setið með
eldri fjölskyldumeðlimi á tveggja
manna kajak.“
Önnur vinsæl hópaferð er Power
Challenge ferðin. Þá er róið bæði
á vatni og sjó með leiðsögumanni.
Aldurstakmark í ferðina er 14 ára.
„Ferðin byrjar á því að róa eftir
Löngudæl inn í þröngar rásir fenja-
svæðisins. Þaðan er farið niður að
Hraunsá og svo stoppað stutt áður
en haldið er til sjávar. Siglt er á milli
skerjagarðanna með sínum falleg-
um lónum þar sem gestir komast
oft í tæri við seli og fjölskrúðugt
fuglalíf. Svo endum við í hinni sögu-
legu Stokkseyrarhöfn.“
„Vindurinn er mesti óvinur
kajaksins og er fyllsta öryggis gætts
í öllum okkar ferðum. En ef vindur-
inn er of mikill þá neyðumst við til
þess að endurbóka eða aflýsa ferð-
um. Við höfum sem betur fer ekki
þurft að aflýsa mörgum ferðum,
enda hefur veðrið verið algerlega
óviðjafnanlega gott til kajakferða
núna upp á síðkastið.“
Fjöldi tækifæra til afþreyingar á
Stokkseyri
„Við erum með aðgang að sund-
lauginni hér á Stokkseyri svo að
allir okkar gestir geta skellt sér í
sund fyrir eða eftir kajakferð, sér
að kostnaðarlausu, á opnunartíma
sundlaugarinnar. Einnig getum
við opnað laugina fyrir gesti gegn
vægu gjaldi ef þeir vilja nýta sér
aðstöðuna utan opnunartíma.
Stokkseyri er frábær áfangastaður
fyrir hópa til þess að eyða heilum
degi. Að sjálfsögðu er skylda að
koma í kajakferð, en svo er einn af
rómuðustu veitingastöðum Íslands,
Fjöruborðið í göngufæri. Einnig
er gaman að kíkja í Draugasetrið
eða líta við hjá Björgvini Tómassyni
í Orgelsmiðjunni, en hann hefur
smíðað orgel í fjölda kirkna á Ís-
landi,“ segir Magnús.
Hvað varðar sérferðir, þá erum
við opnir og sveigjanlegir fyrir ýms-
um fyrirspurnum og þess háttar og
er um að gera að hafa samband
við okkur á kayakferdir@gmail.com
og skipuleggja eitthvert skemmti-
legt ævintýri með okkur.
Nánari upplýsingar um ferðir og
fleira á kajak.is
Fylgstu með á Facebook: Kayak-
ferðir Stokkseyri
Sími: 868-9046 og 695-2058 n