Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 25
Toppurinn 21. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ
Náttúrulækningar og lífstílsbreytingar
reynast vel gegn mörgum kvillum
Heiða Björk Sturludóttir hafði frá unglingsárum haft mikinn áhuga á náttúru, náttúru-
lækningum og mataræði og drakk í
sig bækur um austurlenska heimspeki
og lækningajurtir. Þegar upp komu
veikindi hjá syni hennar, leitaði hún í
þennan reynsluheim eftir lækningu
og meðferð og varð ekki fyrir von-
brigðum.
Einkennin hurfu á einum
og hálfum mánuði
„Sonur minn greindist níu ára gamall
(2006) með Tourette‘s taugaröskun
sem er talin ólæknandi. Þetta var farið
að há honum mikið; kippirnir, kækirnir,
sérkennilegu hljóðin sem fylgja og síðan
þráhyggjan. Vinirnir fuku og sorgin var
mikil. Lyf geta ekki læknað Tourette‘s en
halda aðeins einkennum niðri og með
mjög misjöfnum árangri. Við leituðum
því til náttúrulækninga og með breyttu
mataræði, bætiefnum, hreyfingu og
lífsstílsbreytingu s.s. skertu skjáglápi o.fl.
hurfu einkennin á um 1,5 mánuðum,“
segir Heiða Björk.
Nánar má lesa um aðferð Heiðu við
að fjarlægja einkennin af Tourette‘s,
á vef hennar heidabjork.com undir
Fræðslu.
Fór í frekara nám til að hjálpa öðrum
Eftir þennan góða árangur byrjuðu aðr-
ir að leita ráða hjá Heiðu svo hún vatt
sér í þriggja ára nám í næringarþerapíu
til Bretlands, til að verða hæfari til að
veita ráðgjöf um næringu og heilsu. „Til
að svala enn frekar þorstanum í aukna
þekkingu á austurlenskum vísindum
skellti ég mér síðan í kennaranám í
Kundalini-jóga. Þetta tvennt, nær-
ingarþerapían og jógað vinnur ljómandi
vel saman, þar sem öndunaræfingar,
hugleiðsla og vissar æfingar styrkja
mjög ónæmiskerfi, innkirtlakerfi og
taugakerfi.“
Jók við sig þekkingu í Ayurveda
„Ég hef einnig verið að bæta við mig
þekkingu á indversku Ayurveda-heilsu-
vísindunum, til að geta betur skoðað
einstaklinginn og hvað hentar hverjum
og einum. Samkvæmt Ayurveda erum
við samsett úr þremur mismunandi
orkulíkamsgerðum þar sem ein til tvær
eru vanalega ríkjandi hjá hverjum og
einum. Orkulíkamsgerðirnar flokkast
síðan í undirorkugerðir og samsetn-
ingarmöguleikarnir eru óendanlegir,
enda eru engir tveir einstaklingar eins.
Þá er mismunandi hvaða mataræði og
lífstíll hentar hverjum og einum eftir því
hver grunngerðin er. Ayurveda-fræðin
geyma risavaxið kerfi utan um þessar
grunngerðir og hvað skal gera til að
halda þeim í jafnvægi og stuðla að
góðri heilsu. Ég byrjaði að nota sérstak-
an Ayurveda-heilsugreini fyrir nokkrum
mánuðum síðan sem mælir grunnorku-
líkamsgerðirnar út frá púlsi. Með tækinu
mæli ég einnig streitu í líkamanum og
heildarorku. Þetta er aðferð sem hefur
verið notuð í Rússlandi til að fylgjast
með líkamsástandi geimfara sem er
ótrúlega spennandi!“
Mælir með að slaka ærlega á kerfinu
Heiða lærði ennfremur yoga nidra-
-tæknina sem þýðir jógískur svefn, en
þar er fólk leitt inná við og djúpt niður
í undirvitundina til að ná fullkominni
slökun. Aðferðin losar um taugaspennu
og rannsóknir hafa sýnt fram á mikil
áhrif á flæði hormóna, taugaboðefna
og vöðvaslökun. Hún segir fólk finna
mikinn mun á verkjum og svefni, svo
ekki sé minnst á jákvæðu áhrifin á konur
sem eiga við vandamál að stríða á
breytingarskeiði. Í þeim tilfellum segir
hún að vissar jurtir virki eins og galdur
í bland við reglulega ástundun á jóga
nidra-djúpslökun. „Ég hef fundið miklar
jákvæðar breytingar á sjálfri mér þar
sem ég sjálf er á þessu stórkostlega
breytingarskeiði sem getur verið hinn
æsilegasti rússibani. Ég hef líka fund-
ið á eigin heilsu hversu jákvæð áhrif
það hefur á mig og minn sjúkdóm
(lungnaslagæðarháþrýstingur) að slaka
ærlega á kerfinu.“
Fólk kemur í ráðgjöf til Heiðu vegna
mismunandi heilsufarsvandamála;
sumir leita aðstoðar vegna meltingar-
vanda og aðrir vegna orkuleysis, húð-
vanda eða háþrýstings. Margir glíma við
afleiðingar mikillar, langvarandi streitu
sem getur valdið þunglyndi, orkuleysi
og kvíða. „Fólk þarf að huga að því að
veita líkamanum þau efni sem oft skortir
eftir langvarandi streitutímabil, s.s.
magnesium, B-fjölvítamín og C-vítamín.
Vissar jurtir geta stutt nýrnahetturn-
ar til að þola álag betur, en það eru
þær sem eru undir mestu álagi vegna
streitu, því þær þurfa þá að framleiða
streituhormónin adrenalín og cortisol í
stórum skömmtum og oft til lengri tíma.
Langvarandi streita hefur einnig mjög
neikvæð áhrif á skjaldkirtil og ýmis efni
sem við fáum í okkur úr mat og drykk
geta skaðað hann. Þetta er allt hægt
að skoða með aðferðum næringar-
þerapíu og gera æfingar sem styrkja
nýrnahettur og skjaldkirtil. Ráðgjöf mín
felur ekki bara í sér næringarráðgjöf
og jurta- og bætiefnanotkun, heldur
mæli ég einnig með vissum lífsstíls-
breytingum, æfingum, hugleiðslu og
öndunaræfingum. Svo mæli ég oft með
vissum ilmkjarnaolíum til að ná fram
ákveðnum áhrifum. Áhrifin af matar-
æði, bætiefnum, jurtum, jóga og slökun
eru svo stórkostleg á heilsu okkar að
helst vildi ég að allir prufuðu á sjálfum
sér, sérstaklega þeir sem þjást af ein-
hverjum heilsufarskvillum.“
Heilsudekursferðir til Malaga
Heiða er nú byrjuð að bjóða upp á
heilsudekursferðir til Malagahéraðsins
á Spáni. „Ég vildi sameina áhuga minn
á náttúru, heilsugeiranum og spænskri
menningu og leyfa öðrum að njóta
með mér. Fyrsta ferðin var núna í
byrjun júní og tókst frábærlega. Við
stunduðum jóga, hugleiðslu og slökun
úti í guðsgrænni náttúrunni, umvafin
náttúruhljóðum og frísku lofti í fjöllum
Malagahéraðs. Við fórum í gönguferðir,
böðuðum okkur í tæru uppsprettu-
vatni og nutum góðs félagsskapar. Við
slepptum örvandi drykkjum s.s. áfengi
og kaffi á meðan á dvölinni stóð og
borðuðum næringarríka grænmetis-
fæðu að miklu leyti lífrænt ræktaða úr
héraði. Maturinn var dásamlega bragð-
góður og nærandi og laus við gluten,
kúamjólk og viðbættan sykur. Það þurfti
enginn að hafa áhyggjur af stífluðum
meltingarvegi eins og svo oft er þegar
fólk fer erlendis í frí. Þetta verður klár-
lega endurtekið aftur næsta ár í júní og
aftur í október. Þeir sem vilja skrá sig
mega hafa samband við mig í vefpósti,
heida@heidabjork.com.“
Námskeið í Heillandi hug og
Systrasamlaginu
Heiða hefur haldið námskeið í heilsu-
og fræðslusetrinu Heillandi hug í
Hlíðasmára í Kópavogi. „Ég reyni að
samræma jóga og næringarráðgjöf á
námskeiðunum mínum og býð því upp
á hreinsandi og uppbyggjandi safa
eða aðra hollustu í bland við stutta
fræðslufyrirlestra, jóga, hugleiðslu og
slökun. Eitt slíkt námskeið hefst 24. júní
og stendur yfir í viku og annað þann
1. júlí. Einnig hef ég verið með stutt
kvöldnámskeið hjá Systrasamlaginu um
áhrif næringar og lífstíls á andlega og
líkamlega heilsu eða um gerð kefirs og
kombucha sem eru stórkostlega heilsu-
eflandi góðgerladrykkir,“ segir Heiða og
býður alla velkomna á námskeið hjá sér.
Nánari upplýsingar má nálgast á
heidabjork.com n