Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Síða 26
Toppurinn 21. júní 2019KYNNINGARBLAÐ
Heiðarlegt handverk
og náttúrulúxus frá Marokkó
NÚS/NÚS:
Ein skemmtilegasta verslun á Íslandi, NúsNús, býður upp á gullfallegar vörur frá Marokkó
og er staðsett á Höfðanum í Reykja-
vík. Verslunin er fjölskyldufyrirtæki í
orðsins fyllstu merkingu. „Við fórum af
stað með þessa verslun í samstarfi við
dóttur okkar, Birtu og Othman, mann-
inn hennar. Þau búa núna í Marokkó
með sína tvenna tvíbura til þess að
geta sinnt innkaupum. Við kynntumst
handverki Marokkómanna í gegnum
þau og okkur datt í hug að Íslendingar
kynnu einnig að meta þessa fallegu
muni,“ segir Sigríður Þóra.
Með tvíburana á bakinu
Undirbúningurinn byrjaði fyrir þremur
árum þegar Birta og Othman ferð-
uðust um Marokkó þvera og endi-
langa með eldri tvíburastelpurnar á
bakinu. Þau fóru á milli framleiðenda
og listamanna og fylgdust með þeim
búa til fallega handgerða muni, sem
einkenna marokkóska menningu. „Við
kolféllum fyrir handbragðinu, gerðum
bein viðskipti við framleiðendurna og
hófum innflutning á þessum dásam-
legu vörum.“
Hamingjuverð!
„Allar vörur í versluninni eru handunn-
ar úr náttúruefnum og það er ekki
leiðinlegt að vera umkringdur svona
einstökum vörum alla daga,“ segir
Sigríður Þóra. „Okkar metnaður liggur
í því að versla beint við framleiðend-
ur. Það tryggir að handverksfólkið
fái sanngjarnt verð fyrir vöruna. Þar
sem við verslum flestallt milliliðalaust
og leggjum eins lítið á og hægt er,
þá náum við að halda verðinu sann-
gjörnu. Við köllum þetta „hamingju-
verð“ því það er enginn að okra á
neinum.“
100% náttúrulegar snyrtivörur
„Við flytjum einnig inn náttúrulegar olí-
ur og krem frá Marokkó. Til að mynda
100% hreina arganolíu (Argania spin-
osa). Sjálf nota ég hana óspart enda
má skipta henni út fyrir svo margar
aðrar snyrtivörur. Hún kemur í staðinn
fyrir andlitshreinsi, hárnæringu, and-
litskrem, líkamskrem og margt ann-
að. Einnig erum við með 100% hreint
sheasmjör frá Malí, unnið úr hnetu
sheatrésins (Vitellaria paradoxa).
Hrein guðsgjöf fyrir þurra húð og
exem. Hana nota ég líka í hárið.“
Að vökva húðina með kaktusfræjaolíu
„Svo má ekki gleyma kaktusfræjaolí-
unni. Hún er unnin úr fræjum kaktus-
tegundar (Opuntia ficus indica) sem
vex í Marokkó en það er magnað að
segja frá því að kaktusfræjaolían
inniheldur 150% meira E-vítamín en t.d.
arganolía sem telst með bestu olíum
heims. Hún hentar því einstaklega vel á
húð sem er að eldast.
„Við höfum fengið að kynnast þessu
stórkostlega landi í gegnum tengdason
okkar og dóttur og njótum þess að fá
að fara reglulega í heimsókn til að sjá
barnabörnin og skoða fallegt hand-
verk“.
Nánari upplýsingar og vefverslun
má finna á nusnus.is
Instagram: nusnusihus
Facebook: nús/nús
Funahöfði 17a, 110 Rvk.
Sími: 566-8682, 660 7667
Netpóstur: nusnus@nusnus.is n