Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 27
Toppurinn 21. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ
Maur.is er stórsniðug vefsíða sem tengir saman verktaka og fyrirtæki eða einstaklinga sem
þurfa á þjónustu verktaka að halda. „Í
náttúrunni eru maurar pínulítil skordýr
sem varla sjást, en eru þó hörkudug-
legir. Vinnumaurarnir sem skráðir eru
á síðunni eru að sama skapi dugnað-
arforkar en við sjáum að auki til þess
að þeir séu sýnilegir þannig að það sé
auðvelt og einfalt fyrir viðskiptavini að
leita til þeirra þegar á þarf að halda,“
segir Ilmur Sæmundsdóttir, einn stofn-
andi Maur.is.
Ekki bara fyrir málara og múrara
„Við viljum hafa fjölbreytt úrval af
verktökum eða svokölluðum vinnu-
maurum á síðunni. Maur.is er ekki bara
fyrir iðnaðarmenn eins og málara og
múrara, heldur er síðan fyrir alla sem
hafa upp á einhverja þjónustu að
bjóða. Þar getur þú fundið förðunar-
fræðinga, smiði, hönnuði, textahöf-
unda, pípulagningamenn, þjóna fyrir
veislur og margt fleira,“ segir Ilmur.
Þú þarft ekki að týnast í frumskógin-
um
„Ég hef sjálf lent í því að leita að
förðunarfræðingi fyrir árshátíð og það
er frumskógur þarna úti af snyrti-
fræðingum, förðunarfræðingum, make
up-artistum með og án prófs og margt
fleira. Fyrir leikmann er ekkert grín að
rata í gegnum þetta skógarþykkni með
milljón glugga opna á internetinu. Á
maur.is geturðu auðveldlega fundið
verktaka sem býður upp á þá þjón-
ustu sem þú leitar að. Viðskiptavinir
gefa svo umsögn og stjörnur í lok
hvers verkefnis og því er auðvelt að
taka upplýsta ákvörðun. Einnig fáum
við alla pappíra á hreint. Ef verktaki
er með vottun eða próf í sínu fagi, þá
sannreynum við það og það birtist
um leið og leitað er að viðkomandi á
maur.is. Við öftrum þó engum að skrá
sig sem vinnumaur þó hann sé ekki
með próf. Fólk getur verið hæft og
með starfsreynslu þó það sé ekki með
menntunina. En það skráir sig enginn
undir lögvernduðu starfsheiti nema að
hann geti sýnt fram á prófskírteini.“
Auðvelt fyrir báða aðila
„Maur.is auðveldar ekki bara þeim sem
vilja kaupa þjónustu leitina heldur ein-
faldar einnig vinnuna fyrir verktakann.
Verktaki þarf ekki að vera meðlimur í
mörgum mismunandi facebookhópum
til þess að reyna að næla sér í verkefni
eða eyða tíma og peningum í auglýs-
ingar og fleira. Hjá maur.is sjáum við
um að vinnumaurinn okkar sé sýnilegur
á samfélagsmiðlum og það eina sem
hann þarf að hugsa um er að taka að
sér verkefni og vinna þau.“ Maur tekur
enga prósentu af unnum verkefnum!
Þeir sem vilja vera á síðunni skrá sig
í áskrift og eftir það eru engin auka-
gjöld.
Sýnileg þjónusta
Maur.is er tengt við Google ads. Þegar
tilvonandi viðskiptavinur leitar að
ákveðinni þjónustu á Google, þá koma
upp valmöguleikar frá maur.is. Það
er ein af mörgum leiðum sem maur.
is notar til að gera vinnumaura sína
sýnilega. „Þegar þú skráir þig inn á
maur.is geturðu valið um stóran eða
lítinn pakka. Stóri pakkinn felur í sér
aukinn sýnileika á Facebook. Þá fær
aðilinn eina auglýsingu á Facebook í
mánuði. Hægt er svo að borga auka-
lega til þess að fá fleiri auglýsingar og
láta okkur „bústa“ eða auka sýnileika
auglýsingarinnar og fleira.“
Hver og einn skapar sér orðspor
„Það er svo aukakostur sem fylgir
svona fyrirkomulagi. Vefsíðan mun
auðvelda Íslendingum af erlendum
uppruna að koma sér á framfæri hér á
landi. Maður leitar ósjálfrátt í þjónustu
frá þeim sem talar sama tungumál
og maður sjálfur, en það er fullt af
hæfileikaríkum verktökum þarna úti af
erlendu bergi brotnir sem margir líta
framhjá. Hjá maur.is getur hver sem
er skapað sér gott orðspor út frá vel
unnum verkum og því aukið líkurnar
á því að verða fyrir valinu hjá næsta
viðskiptavini.“
Skráðu þig núna og þú gætir verið á
leiðinni til Mílanó í sumar!
„Við hvetjum alla sem geta bætt við
sig aukaverkefnum til þess að skrá sig
á maur.is. Það er frítt að skrá sig fram
í enda júlí. Eftir það ætlum við að fara
í stóra markaðsherferð og auglýsa
vel hið fjölbreytta starfslið sem verður
komið inn hjá okkur.
Við erum einnig með gjafaleik í
gangi þar sem einn áskrifandi er dreg-
inn út á næstu vikum og fær í verðlaun
flug fyrir tvo til Mílanó með Heims-
ferðum. Það er um að gera að skrá sig
sem allra fyrst til þess að missa ekki
af þessum frábæra vinningi. Ég hef
fulla trú á að fólk verði duglegt að skrá
sig svo við getum byggt upp frábær-
an gagnagrunn af verktökum með
fjölbreytta starfsreynslu og kunnáttu,“
segir Ilmur.
Nánari upplýsingar má finna á vef-
síðunni maur.is
Facebook: Vinnumaur. Þess má geta
að þar er í gangi Facebookleikur. n
Og þú munt aldrei
týnast í frumskóginum
MAUR.IS VERKTAKAÞJÓNUSTA Á NETINU: