Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Page 28
Toppurinn 21. júní 2019KYNNINGARBLAÐ
Hágæða fæðubótarefni sem gera
gott betra – Þín markmið – Þín grein
Verslunin Leanbody hefur verið starfrækt í tæp 4 ár. Fyrst var verslunin staðsett í Hafnar-
firði en er núna í Síðumúla 11. „Við
höfum það að markmiði að þjónusta
sem flesta hópa samfélagsins. Hvort
heldur sem um ræðir íþróttafólk, fólk
í almennri heilsurækt eða fólk sem
vill einfaldlega láta sér líða betur. Hjá
okkur færðu faglegar ráðleggingar
í vali á þeim vörum sem hentar þér
best. Við hlustum á viðskiptavininn,
spyrjum spurninga til að fá betri
innsýn í það hvað hentar viðkomandi
best. Einnig getum við meðal annars
vísað viðskiptavinum á þjálfara af
báðum kynjum sem við vinnum með.
Þetta eru þjálfarar sem við þekkjum
og berum traust til. Við leggjum mikla
áherslu á að upplýsa viðskiptavini
okkar sem mest um vörurnar, hvenær
og hvernig eigi að nota þær til að ár-
angurinn sé sem bestur,“ segir Agnes
Kr. Gestsdóttir, eigandi Leanbody.
„Á þessum tíma höfum við feng-
ið mikið af jákvæðum póstum og
árgangursmyndum frá ánægðum
viðskiptavinum og frá fólki sem hefur
náð frábærum árangri með hjálp
Leanbody-varanna. Það er það sem
gerir þetta starf svo skemmtilegt.
Til okkar leitar allskonar fólk og við
ráðleggjum því eftir bestu getu. Ef
við getum hjálpað á einhvern hátt þá
er markmiði okkar náð. Fyrir suma er
stórt skref að ganga inn í svona búð
og við skiljum það vel. En það besta
og skemmtilegasta við starfið mitt er
þegar fólk kemur svo aftur með ár-
angurssögur, það gerir mig bara svo
glaða,“ segir Agnes.
Mikilvægt er að vera ánægð/ur í
eigin skinni
Hvert sem markmiðið þitt er þá
skiptir mestu máli að líða vel í eigin
skinni. Það er engin töfralausn til,
þetta er allt samspil nokkurra þátta.
T.d það að stunda hreyfingu, borða
hollt, huga að góðum nætursvefni og
andlegu hliðinni spilar allt stóran þátt
í auknum árangri og almennri vellíð-
an. Ekkert fæðubótarefni eitt og sér
breytir öllu, þess vegna er mikilvægt
að hafa það hugfast að fæðubóta-
efni gera einungis gott betra, þau
hjálpa til. Þau geta hraðað árangri
og endurbata, gefið orku, aukið
úthald og styrk. „Ég hef séð magn-
aðan árangur hjá fólki sem byrjar t.d.
á að nota fatburner og antibloat til
að koma sér af stað. En vissulega er
ALLTAF skjótari árangur ef hreyfing
er stunduð samhliða inntöku fæðu-
bótaefna. Þó einungis sé um að ræða
stuttar gönguferðir, heimaæfingar
eða jóga. Allt er þetta spurning um
hvað hentar viðkomandi best, öll
hreyfing telur. Ekkert fæðubótarefni
kemur í staðinn fyrir heilbrigt og hollt
matarræði.“
Að setja sér raunhæf markmið
Öll viljum við sjá árangur sem fyrst og
það er það sem verður fólki oftast að
falli þegar það byrjar í átaki. Algengt
er að fólk fari of geyst af stað og
endar með því að gefast upp. Tölur
hafa sýnt að meira en 25% fólks sem
setur sér markmið í byrjun árs fellur í
fyrstu vikunni. Og meira en helming-
ur allra sem setja sér markmið fyrir
allt árið í byrjun janúar falla á þeim
innan 6 mánaða, það er magnað!
Það er oft sagt að það taki 4 vikur
fyrir fólk að taka sjálft eftir breyting-
um, 8 vikur fyrir vini og vandamenn
og 12 vikur fyrir alla hina. Settu þér
raunhæf markmið, minni markmið um
það hvernig þú ætlar að ná því stóra,
þannig kemstu nær því og þar með
aukast líkurnar á að ná því,“ segir
Agnes og bætir við:
„Þetta er langhlaup sem verður að
lífstíl, þetta tekur tíma, gefðu þessu
tíma!“
Fyrirtækjaáskoranir
„Við höfum tekið að okkur fyrirtækja-
áskoranir þar sem við komum inn í
fyrirtæki stór sem smá með það að
markmiði að hvetja fólk til heilbrigðs
lífernis, stunda meiri hreyfingu, gefum
ráðleggingar og hvatningu. Með
okkur mæta einkaþjálfarar af báð-
um kynjum sem mæla starfmenn í
byrjun átaksins og síðan aftur í lokin.
Markþjálfi aðstoðar við markmiða-
setningu og svo auðvitað ráðleggjum
við um val á fæðubótaefnum ef fólk
vill. Þetta hefur gengið mjög vel og
dæmi er um að heilt fyrirtæki hafi
misst tæplega 255 kg og 522 cm á 8
vikum. Ávinningurinn af svona átaki
er gríðalegur, fyrst og fremst fyrir
starfsmanninn sjálfan en einnig fyrir
vinnuveitandan. Allt þetta skilar sér
í bættri heilsu, betri líðan og færri
veikindadögum.“
Að lokum
Á heimasíðunni okkar leanbody.is
geturu lesið allt um vörurnar okkar,
haft beint samband við okkur, þjálf-
ara og/eða lesið þér til fróðleiks. Við
hvetjum alla til að kíkja á okkur í Síðu-
múla 11. Við tökum vel á móti ykkur.
Einnig erum við mjög virk á sam-
félagsmiðlum. Fylgstu með okkur á
Instagram: leanbody.is, facebook:
Leanbody.is og snapchat: leanbody.is.
Opnunartími Leanbody er: Allir
virkir dagar 11:00-18:00. Laugar-
dagar 12:00-15:00. n
Fyrirtækjaáskorun lokið, allir sáttir með
glæsilegan árangur.
Agnes, eigandi Leanbody ehf.