Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Side 32
32 21. júní 2019 Tímavélin S á orðrómur að Ronald Reagan hafi verið af ís- lenskum ættum, eða nán- ar tiltekið af skagfirsk- um ættum, komst reglulega í umræðuna á síðustu öld. Til dæmis í kringum leiðtogafund- inn í Höfða árið 1986. En ekk- ert fékkst staðfest í þeim efnum. Orðrómurinn var ekki úr lausu lofti gripinn heldur sneri hann að faðerni Reagan. Það er að hann væri hugsanlega launson- ur Íslendings sem flutti vestur og lék í Hollywood-vestrum, líkt og Reagan sjálfur gerði. Leikarinn sem varð forseti Ronald Reagan þarf varla að kynna. Hann var einn af áhrifa- mestu forsetum Bandaríkj- anna á síðustu öld og sat í emb- ætti árin 1981 til 1989. Hann er talinn helsti hvatamaður að nýfrjálshyggjubylgjunni á ní- unda áratugnum ásamt Margréti Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands. Haft var á orði að hann hafi síðustu embættisár sín ver- ið með Alzheimer’s sjúkdóminn og aðrir í raun stjórnað bak við tjöldin. Áður en Reagan var kjörinn forseti var hann ríkisstjóri Kali- forníufylkis, árin 1967 til 1975. Þar áður var hann Hollywood- -leikari um áratuga skeið. Hann lék í mörgum svokölluðum B-kvikmyndum og vestrum og þótti sjálfur ekki besti leikarinn en hann náði samt töluverðri frægð á því sviði. Auk þess var hann giftur Óskarsverðlauna- leikkonunni Jane Wyman, áður en hann giftist Nancy Reagan sem sat sem fyrsta frú. Bill Cody Faðir Ronalds Reagan, að minnsta kosti á pappírunum, var maður að nafni Jack Reagan. Hann var farandssölumaður og starfaði einnig í verslun í bæn- um Tampico í Illinois-fylki. Jack lést aðeins 57 ára gamall árið 1941 úr hjartaáfalli. Móðir Ron- ald hét Nelle Wilson, kirkjuræk- in húsmóðir, sem lést árið 1962. Jack, Nelle og synir þeirra þrír fluttu oft vegna starfa Jack og voru ekki mjög efnuð. Þau voru bæði af írskum ættum. Inn í söguna kemur mað- ur að nafni Bill Cody. Nánar til- tekið William Joseph Cody Jr. Enn nánar tiltekið Páll Pálsson Walters. Cody var líkt og Rona- ld B-myndaleikari í Hollywood. Hann hóf feril sinn árið 1922 sem áhættuleikari og fékk fastan samning hjá fyrirtækinu Independent Pictures árið 1924. Cody lék mestmegnis í vestr- um, bæði þöglum og eftir að hljóðmyndir komu til sögunnar. Á fjórða áratugnum hóf hann að ferðast um og skemmta á ródeó- hátíðum víðs vegar um Ameríku. Ekki er mikið vitað um æsku Cody en hann var sonur hjón- anna Páls Valdimars Eiríks- sonar og Bjargar Jónsdóttur úr Skagafirði. Þau fluttu til Kanada árið 1887 eins og svo margir Ís- Gamla auglýsingin Vísir 16. ágúst 1966 aðrir útsölustaðir Epal - Laugavegi 70 EPAL - Harpa Airport fashion - Leifsstöð Reykjavik Raincoats LAUGAVEGUR 62, 101 RVK www.reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com Bill Cody Vestur-íslensk Hollywoodstjarna. SKAGFIRSKAR RÆTUR RONALDS REAGAN Launsyni komið í fóstur n Kirkjubækur lokaðar Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.