Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Page 46
46 FÓKUS - VIÐTAL 21. júní 2019
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
YFIRHEYRSLAN
Lexi
Lexi er 24 ára rappari úr Vesturbænum í Reykjavík og þekktur sem meistari í
lífinu – en einnig undir listamannsnafninu Drengur. Hann hefur nýlega fengið
meiri og meiri athygli innan reykvísks tónlistarlífs, er nýkominn frá Berlín úr
landvinningum og útrás og kemur fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice
sunndaginn 23. júní. Hann hefur nú þegar gefið út 2 plötur: „Tæpur Ungur
Drengur“ og „Tengdur Drengur“ sem eru á Spotify núna og er með tvær plötur
á leiðinni sem er mixtapeið „Kútarnir mínir“ og stúdíóplatan „Ekki lengur
Drengur“.
Hjúskaparstaða og börn?
Ég á 2 kúta, kæró og hvutta.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
varst krakki?
Leeeeeexxxxxi!
Skemmtilegast að gera?
Vera ég!
En leiðinlegast?
Ímynda mér að það sé leiðinlegt að vera einhver
annar.
Býrðu yfir einhverjum leyndum
hæfileikum?
Ég er alltaf bestur.
Versta ráð sem þú hefur fengið?
Frá sjálfum mér eða öðrum?
Hver er fyrsta minningin þín?
Óljós.
Hvað er það erfiðasta sem þú hefur
gert?
Að grafa bróður minn.
En mest gefandi?
Herkúles Kútur Kútason voffinn minn.
Hver myndi skrifa ævisögu þína?
Ég. Hver annar?
Hefur þú fallið á prófi?
Fékk gráðu þótt ég mætti ekki í próf.
Uppáhaldshljómsveit og af hverju?
Drengur vegna þess að hann er Tengdur.
Stærsta stund þín í lífinu?
Ég ætla að vona að hún sé ekki kominn ennþá.
Ertu trúaður eða trúir þú á æðri
mátt?
Ég hugsa ekki.
Mannkostir þínir?
Ég skokka hratt og er rosa röskur.
En lestir?
Ég er mínir eigin lestir.
Skrýtnasta lífsreynslan í tónlist-
arbransanum?
Að hitta Martein BNGRBOY, vera plataður í að
rappa og allt sem er í gangi núna.
Eitthvað að lokum?
Vinnum í bænum langt eftir lokun.
Réttlætisgyðjan
heillar rapparann
R
apparinn Herra Hnet-
usmjör bætti glænýju
húðflúri í safnið í vik-
unni hjá húðflúrmeist-
aranum Chip Baskin á stof-
unni Reykjavík Ink. Rapparinn
valdi sér táknrænt flúr af Lady
Justice, eða réttlætisgyðjunni,
á vinstri handlegg, en auk
þess að vera notað yfir kven-
kyns dómara í Bandaríkjunum,
er gyðjan sterkt tákn réttlæt-
is. Styttur af réttlætisgyðjunni
er að finna fyrir utan fjölmörg
dómshús víðs vegar um heim,
þar á meðal hæstaréttinn í
Kanada og við inngang hæsta-
réttarins í Róm á Ítalíu. Þá er
gyðjan vinsælt viðfangsefni í
myndlist og dægurmenningu
og prýddi til að mynda plötu-
umslag And Justice For All með
Metallica.
Ýmsar útgáfur eru til af gyðj-
unni en herrann ákvað að fá
sér gyðjuna þar sem hún held-
ur bæði á sverði og vog með
bundið fyrir augun. Allir eiga
að vera jafnir fyrir lögum og
því á gyðjan ekki að sjá neitt,
sverðið táknar hefnd réttlæt-
is og vogin táknar að allir eiga
að fá það sem þeir eiga skilið,
hvorki minna né meira. Rétt-
lætisgyðjan bætist í hóp fjöl-
margra húðflúra rapparans,
en hann er til að mynda með
hjarta og áletrunina Mamma
á hægri framhandlegg, póst-
númerið 203 við hægri úlnlið
og einkennisorð sín Kóp Boi
yfir sig miðjan.
Herra Hnetusmjör í stólnum. Réttlætisgyðjan bætist í safnið.
Sendir Whoopi Goldberg tóninn
A
ktívistinn og rithöf-
undurinn Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir læt-
ur leikkonuna Whoopi
Goldberg heyra það í sögu
sinni á Instagram, eftir um-
mæli þeirrar síðarnefndu um
leikkonuna Bellu Thorne eft-
ir að óprúttinn aðili hótaði að
leka nektarmyndum af henni
á netið. Whoopi sagði það
Bellu sjálfri að
kenna að hakk-
ari hafi nælt í
myndir af henni
og smánaði hana
fyrir að taka
af sér nekt-
armynd-
ir. Þórdís
Elva hefur
barist öt-
ullega fyrir þolendur kynferðis-
brota og segir ummæli Whoopi
líkt og að segja við fórnarlamb
nauðgunar að það hefði ekki átt
að vera í svo stuttu pilsi. Þórdís
Elva segist standa með Bellu og
að skömmin sé ekki hennar.
„Þú gerðir ekkert rangt. Þú
og konur um allan heim mega
taka myndir af líkama sínum
á hvern þann hátt sem þeim
sýnist og senda til þeirra sem
þær vilja svo lengi
sem það er sam-
þykkt af báð-
um aðilum. Og
Whoopi má
fokka sér.“
MYND: DV/EYÞÓR