Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Page 48
21. júní 2019
25. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Do, re, mý...
Lítt þekkt
ættartengsl:
Rapparinn og
stjörnutálgarinn
T
ónlistarmanninn og
leikstjórann Ágúst Bent
Sigbertsson þarf vart
að kynna, en hann sló
fyrst í gegn á Íslandi í hljóm-
sveitinni XXX Rottweiler-
hundar upp úr aldamótunum
síðustu. Undanfarin ár hef-
ur hann einnig gert garðinn
frægan í sjónvarpsheiminum
og lék til að mynda í Ófærð og
leikstýrði Steypustöðinni auk
þess sem hann vann náið með
Steinda Jr. þegar hann var með
sína eigin grínþætti. Ágúst er
litli bróðir stjörnutálgarans
Svövu Sigbertsdóttur sem hef-
ur verið búsett í Bretlandi síðan
árið 2004. Svava hefur lagt hart
að sér síðustu ár til að koma
þjálfunaraðferð sinni The Vik-
ing Method á framfæri. Hún
gaf nýverið út sína fyrstu bók
um aðferðina og þjálfar stór-
stjörnur á borð við söngkon-
una Nicole Scherzin-
ger og Amöndu
Holden, dómara
í hæfileika-
þættinum
Britain’s Got
Talent.
Hleypur 12 kíló-
metra hvert kvöld
N
ýlega var næsta leik-
ár Borgarleikhússins
kynnt og kennir þar ým-
issa grasa. Meðal sýn-
inga sem settar verða upp er
Ég hleyp, sem er úr smiðju
danska leikskáldsins Line
Mørkeby. Verkið fjallar um
mann sem byrjar að hlaupa
eftir barnsmissi og höndlar
þannig sorgina sem fylgir þess-
um harmleik. Um einleik er
að ræða og fer leikarinn Gísli
Örn Garðarsson með hlutverk
mannsins, en tekjur hans af
sýningunni renna til samtak-
anna Nýrrar Dögunar, Bergs-
ins, Ljónshjarta og Dropans.
Á vef Borgarleikhússins kem-
ur fram að Gísli sé algjörlega
óvanur hlaupari og finnist fátt
leiðinlegra eða erfiðara. Það
mun líklega breytast í æfinga-
ferlinu því Gísla reiknast til
að hann hlaupi tíu til tólf kíló-
metra á hverri einustu sýningu.
Illskeytt innflutningsgjöf
T
ónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdótt-
ir er flutt í einbýlishús í Hveragerði, en Þórunn
leyfði fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast
vel með flutningunum um síðustu helgi. Þórunn
hefur síðustu ár hreiðrað um sig í snoturri íbúð í miðbæ
Reykjavíkur en er þó ekki ókunnug í Hveragerði þar sem
faðir hennar, tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmunds-
son og eiginkona hans Jenný Borgedóttir leikskóla-
kennari, hafa búið sér til fallegt heimili þar undanfar-
in ár. Þórunn er gengin 33 vikur með sitt annað barn og
náði að koma sér fyrir í húsinu í Hveragerði á mettíma.
Hins vegar fékk Þórunn frekar kuldalega innflutn-
ingsgjöf þegar hún var búin að hreiðra um sig í blóma-
bænum. Plágan sem hefur breitt úr sér í Hveragerði,
sjálft lúsmýið margfræga, tók á móti Þórunni og lét til
skarar skríða með tilheyrandi bitum, kláða og óþægind-
um. Var Þórunn svo illa farin af bitum að hún þurfti að
leita sér læknisþjónustu seint um kvöld í hinum nýja
heimabæ sínum til að fá bót sinna meina. Þórunn náði
sér samt fljótlega aftur á strik og hélt kyrru fyrir
í kjölfar læknisheimsóknarinnar. Alþekkt
er að óléttar konur eigi að forðast sterk
lyf og því vont að lenda í þessum vá-
gesti svo seint á meðgöngunni.
Lúsmýið, þessar örsmáu flugur
sem bíta allt sem fyrirfinnst, virðast
einkar hrifnar af tónlistarmönnum.
Áður hafa verið sagðar af því fréttir
að tónlistarmennirnir Karl Tómasson
og Bubbi Morthens, sem búa báðir við
Meðafellsvatn, hafi kvartað undan bit-
um flugunnar. Stóra spurning er þá: Hvaða
tónlistarmaður verður næst fyrir barðinu á
lúsmýinu ógurlega?