Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Blaðsíða 21
30. ágúst 2019 KYNNINGARBLAÐ Heilsa og núllstilling
Aldrei jafn auðvelt að koma sér í form
með einkaþjálfarann í snjallsímanum!
Fitlife er hugarfóstur Amöndu Marie Ágústsdóttur sem hefur starfað sem þjálfari í sjö ár og
einkaþjálfari í fjögur ár. „Ég vinn sem
einkaþjálfari hjá World Class og Fitlife
er framlenging á því starfi. Það hent-
ar ekki öllum að mæta á fyrirfram
ákveðnum tíma í ræktina og hafa
einhvern standandi yfir sér á meðan
þeir svitna og púla. Mörgum hentar
miklu frekar að fá prógramm í símann
þar sem þeir geta hreyft sig á sínum
forsendum og á sínum tíma. Auk þess
hentar ræktarumhverfið ekki öllum og
margir vilja gera æfingarnar heima
hjá sér eða úti. Þess vegna fannst
mér tilvalið að bjóða upp á þessa
þjónustu til þess að geta hjálpað sem
flestum,“ segir Amanda.
Amanda er stjörnum prýddur
einkaþjálfari með gífurlega reynslu,
bæði af því að þjálfa sjálf og þjálfa
aðra. „Ég kláraði einkaþjálfaranám
hjá NASM, fékk þjálfararéttindi hjá
IRONMAN og fyrsta stig sem þrí-
þrautarþjálfari hjá International
Triathlon Union. Ég hef alltaf verið í
keppnisíþróttum og í dag keppi ég í
þríþraut. Í fyrra keppti ég á elite-stigi
í ólympískum vegalengdum en í ár
hef ég verið að snúa mér alfarið að
IRONMAN vegalengdum.“
Hvort sem þú vilt styrkjast, bæta
úthald að lækka fituprósentuna þá
veit Amanda hvað þarf til að ná
árangri.
Markmiðið er að þú náir þínum
markmiðum
Amanda hefur hjálpað þónokkuð
mörgum einstaklingum að ná mark-
miðum sínum gegnum Fitlife. „Ég var-
ast að taka við fleirum en ég hef tök
á, því ég vil alltaf geta boðið upp á
topp þjónustu. Markmið mitt er ávallt
að viðskiptavinurinn nái sínu mark-
miði og það er það besta sem ég veit,
þegar það gerist. Margir hafa nei-
kvæðar tilfinningar gagnvart ræktinni
eða hreyfingu en ég vil hjálpa fólki að
mynda heilbrigt samband við æfingar
og mat. Það er ómetanleg tilfinning
að kenna fólki að njóta þess að hreyfa
sig.“
Umsagnir frá viðskiptavinum
Amöndu tala sínu máli
„Annað slagið á lífsleiðinni verð-
ur maður þeirrar gæfu aðnjótandi
að hitta fólk sem breytir lífi manns
til betri vegar svo um munar. Eftir
margra ára kyrrsetulíf og nokkr-
ar misheppnaðar tilraunir til virkari
lífsstíls, þá reyndist það einmitt slíkt
gæfuspor fyrir mig að fara í einka-
þjálfun til Amöndu. Hún býr ekki
einungis yfir yfirgripsmikilli þekkingu
og reynslu af þjálfun og keppni, held-
ur er hún líka sérstaklega viðkunnan-
leg manneskja, og alveg einstök fyr-
irmynd. Það eitt að umgangast hana
og fá innsýn í hennar þjálfun fyllir
mann af eldmóð sem fær mann til að
vilja leggja harðar að sér. Með vel út-
færðu hlaupa- og styrktarprógrammi
hefur hún vísað mér veginn að betra
lífi. Nú 10 mánuðum og 25 töpuðum
kílóum síðar (án megrunarkúrs), þá
er ég í einu besta líkamlega formi lífs
míns, hleyp hálfmaraþon og aðrar
vegalengdir á betri tíma en þegar ég
var ungur maður, og lifi bæði virk-
um og heilbrigðum lífsstíl. Ég kann
ákaflega vel við þennan „nýja mig“
og ætla að leyfa honum að njóta sín
áfram um ókomna tíð. Takk fyrir mig
Amanda, ég hefði ekki getað gert
þetta án þín!“ – Yngvi Björnsson
„Ég er ótrúlega ánægð með fjar-
þjálfunina hjá Amöndu. Æfingarnar
eru mjög krefjandi og ég er sífellt að
fara út fyrir þægindarammann minn
sem er einmitt það sem ég þurfti.
Appið sem hún notar er líka frábært
og hún er dugleg að senda manni
og athuga hvernig gengur. Ég mæli
hiklaust með henni!“ – Sara Petra
Fitlife: Snjöll leið til að ná mark-
miðunum
Ferlið er sáraeinfalt, enda á það að
vera einfalt og skemmtilegt að koma
sér í form.
„Fitlife byggist á snjallforriti fyrir
iPhone- og Android-síma, þar sem
þú færð sérsniðið prógramm með
æfingaplani og matarplani. Ef þig
vantar aðstoð við æfingarnar, ráð-
leggingar eða hvatningu þá nærðu
alltaf í mig í gegnum skilaboð, hvort
sem er í tölvunni eða símanum.“
Þú skráir þig hjá Fitlife og hleður
niður Fitlife-snjallforritinu.
Þú svarar spurningalista og út
frá þínum svörum sníður Amanda
persónulegt æfingaplan fyrir þig.
Einnig færðu sérsniðið matarplan.
Þú byrjar að hreyfa þig og getur
fylgst með árangrinum í snjallfor-
ritinu.
Snjallforritið sýnir þér myndbönd
sem kenna nákvæmlega hvernig á að
gera hverja æfingu fyrir sig. Þú skráir
niður árangur og framfarir í appið.
Þú getur líka hlaðið inn myndum til að
fylgjast með árangrinum. Í forritinu er
matarplan gert af næringarfræðingi
sem hjálpar þér að halda utan um
mataræðið. Matarplönin eru brotin
uppí „macros“. Hægt að hafa plön-
in keto, vegan, vegetarian, holistic,
gluten free, low glycemic, no lactose,
balanced og fleiri útgáfur. Fitlife
mætir þér þar sem þú ert og hentar
þeim markmiðum sem þú vilt setja
þér.
Það er mjög misjafnt hvað við-
skiptavinir stoppa lengi hjá Amöndu
og Fitlife. „Ég er með þónokkra sem
hafa verið hjá mér frá alveg því ég
byrjaði að þjálfa. Einnig eru nokkrir
sem eru hjá mér í einhvern tíma, taka
sér þá pásu og æfa sjálfir. Oft koma
þeir aftur til mín til þess að ná betri
árangri. Svo eru alltaf einhverjir sem
koma til mín í 1–3 mánuði rétt til þess
að koma sér af stað í ræktinni. Þetta
er mjög persónubundið og einkaþjálf-
un, hvort sem hún gerist á staðnum
eða í gegnum símann, byggist alltaf á
sambandinu við viðskiptavininn og því
að hvetja hann í áttina að markmið-
um sínum,“ segir Amanda.
Nánari upplýsingar á fitlife.is
Fylgstu með á Facebook: FitLife
Einkaþjálfun – Amanda Marie
Instagram: Amanda m
agustsdottir
FITLIFE: