Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Blaðsíða 28
28 PRESSAN 30. ágúst 2019
H
etjuleg og lífshættuleg.
Þannig má kannski einna
best lýsa ótrúlegri aðgerð
úkraínskra sérsveitar
manna fyrr í sumar. Þá fóru þeir
langt að baki víglínunni í austur
hluta Úkraínu, þar sem úkraínski
herinn berst við aðskilnaðarsinna
sem njóta stuðnings stjórnvalda í
Moskvu, og námu rússneskan að
skilnaðarsinna á brott. Hann er
grunaður um að búa yfir vitneskju
um hvað gerðist þegar farþega
flugvél frá Malaysian Airlines var
skotin niður yfir Úkraínu 2014.
Þessi bíræfna aðgerð Úkraínu
manna gæti skipt sköpum við að
upplýsa hver skaut vélina niður,
en með henni fórust 298 manns.
Tsemakh yfirbugaður
Sérsveitarmennirnir yfirbuguðu
hinn 58 ára Vladimír Tsemakh á
heimili hans í Snizhe og deyfðu
hann með því að sprauta hann.
Tsemakh var áður leiðtogi her
deildar, sem aðhyllist rússnesk
yfirráð, í austurhluta Úkraínu.
Hann var því næst settur í hjóla
stól og smyglað tæplega 50 kíló
metra leið í gegnum yfirráða
svæði óvina Úkraínu og yfir
landamærin til Úkraínu. Notuð
voru fölsuð skilríki og önnur skjöl
sem „sönnuðu“ að Tsemakh væri
lamaður og því þyrfti hann að
nota hjólastól.
Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki
viljað segja neitt um málið en
hafa þó lekið ljósmyndum af
fanganum, að sögn breska dag
blaðsins Times. Á einni myndinni
er Tsemakh með umbúðir um
höfuðið en það gæti bent til að
handtakan hafi ekki gengið alveg
snurðulaust fyrir sig. Lögmað
ur hans hefur ekki viljað fara út í
smáatriði varðandi málið en stað
festi fljótlega eftir handtökuna að
Tsemakh hefði verið úrskurðað
ur í gæsluvarðhald. Úkraínsk yfir
völd hafa sakað Tsemakh um að
vera félagi í hryðjuverkasamtök
um en allt að 15 ára fangelsi ligg
ur við því. Ekki er ólíklegt að hann
verði ákærður fyrir fleiri brot.
Leiðtogi hópsins
Tsemakh er mikilvægur í sam
bandi við rannsókn málsins því
hann var leiðtogi hóps sem stýrði
loftvarnaflaugum í Snizhne þegar
áðurnefnd vél var skotin niður og
var nærri vettvangi og veit vænt
anlega hvernig Bukflugskeytið,
sem grandaði vélinni, komst á
svæðið. Aric Toler hefur, fyrir
rannsóknarmiðilinn Bellingcat,
rakið slóð flugskeytisins frá Kursk
í miðju Rússlandi til Snizhne. Í
samtali við Times sagði hann að
í það minsta gæti Tsemakh verið
mikilvægt vitni. Hann hafi ekki
skotið flugskeytinu en hann hafi
hugsanlega tekið þátt í að fela það
og hann viti nákvæmlega hverjir
voru nálægt flugskeytinu. Þessu til
staðfestingar vísaði hann til upp
töku frá 2015 þar sem Tsemakh
ræðir um þetta.
Ekki er útilokað að ef Tsemakh
fellst á að bera vitni við alþjóð
leg réttarhöld muni það koma
sér mjög illa fyrir Vladimír Pútín,
forseta Rússlands, og rússnesku
ríkis stjórnina. Tsemakh er þó ekki
á lista alþjóðlegs rannsóknarhóps
yfir þá sem eru grunaðir í málinu.
Það eru þrír Rússar og einn Úkra
ínumaður sem eru sakaðir um
að hafa skotið vélina niður. Al
þjóðleg rannsókn leiddi í ljós að
flugskeytinu var smyglað frá loft
varnarsveit í Kursk yfir til austur
hluta Úkraínu. Helsta kenningin
er að aðskilnaðarsinnar hafi skot
ið á vélina í þeirri trú að hér væri
um úkraínska herflugvél að ræða.
Hinir grunuðu tengjast allir rúss
neska hernum og aðallega leyni
þjónustu hans, GRU. Aðalmað
urinn í þessum hópi er hinn 48
ára öfgahægrimaður Igor Girk
in sem gengur undir viðurnefn
inu Strelkov (Skyttan) en hann
var um hríð ópinber varnarmála
ráðherra uppreisnarmannanna í
austurhluta Úkraínu. Hann hefur
staðfest að Tsemakh hafi verið
yfirmaður loftvarnarsveitar í
Snizhne þegar malasíska flugvél
in var skotin niður en vísar á bug
að uppreisnarmenn hefðu getað
skotið farþegaflugvél niður.
Girkin og hinir þrír eru allir
taldir búa í Rússlandi eða á þeim
svæðum sem Rússar ráða í austur
hluta Úkraínu undir því yfirskini
að þar ráði úkraínskir aðskiln
aðarsinnar ríkjum. Stríð stendur
enn yfir í austurhluta Úkraínu en
13.000 manns hafa fallið í átökun
um og um 30.000 særst.
Rússar hafa allt frá 2014 sýnt
mikla hugmyndaauðgi við að
koma fram með útskýringar á
máli malasísku flugvélarinnar og
sverja af sér sakir. Þeir hafa með
al annars haldið því fram að flug
skeytinu hafi verið skotið frá úkra
ínskri herflugvél, að sprengja hafi
verið um borð í flugvélinni og að
flugskeytinu hafi verið skotið af
úkraínskum hersveitum á jörðu
niðri. nSmiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Rændu rússneskum aðskilnaðarsinna langt að baki víglínunni og smygluðu út í hjólastól
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Bíræfin aðgerð úkraínskra
sérsveitarmanna
Hetjuleg og lífshættuleg
Þannig gæti aðgerðinni verið lýst.
M
Y
N
D
: G
ET
T
Y
IM
A
G
ES