Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Blaðsíða 22
 30. ágúst 2019KYNNINGARBLAÐHeilsa og núllstilling Sætindi án samviskubits: Er það hægt? FULFIL er írskt merki sem er að slá í gegn á heimsvísu. Um er að ræða gómsætar próteinstangir sem hægt er að njóta án samviskubits. Í hverju stykki færðu dagskammtinn af átta mismunandi vítamínum og tuttugu grömm af próteini. Auk þess eru þær alveg án viðbætts sykurs og því tilvalinn valkostur fyrir þá sem vilja sykurlausan lífsstíl en elska sætindi. Níu girnilegar bragðtegundir! Fulfil-stangirnar koma í níu bragðtegundum sem allar hljóma enn girnilegri en sú á undan. Við byrjuðum að selja Fulfil Salted Caramel fyrir tæpu hálfu ári og við höfum aldrei séð nýja vöru seljast jafn hratt. Það er því óhætt að segja að hún sé vinsælust þessa stundina. Nýjasta tegundin frá Fulfil er Peanut Butter-stöngin. Dúnmjúkt hnetusmjör með brakandi lagi af hnetum hjúpað ómótstæðilegu mjólkursúkkulaði! Fulfil Peanut Butter er fullkominn fyrir þá sem elska hnetusmjör. Fulfil er hugsað sem sniðug leið til að halda sér gangandi yfir daginn, hvort sem það er millimál í skóla eða vinnu, orkustöng fyrir ræktina eða til að svala sykurlöngun yfir sjónvarpinu á kvöldin. Svo eru margir sem hafa verið að nota Fulfil í eftirrétti af ýmsu tagi. Gómsæt súkkulaðistykki án samviskubits Það er í alvöru hægt að fá sér Fulfil-stöng án samviskubits. Fulfil-stang- irnar innihalda engan viðbættan sykur. Eini sykurinn sem er í þeim kemur náttúrulega úr kakóbaununum í súkkulaðinu. Sykurleysið kemur samt ekki niður á bragðinu, þær bragðast nefnilega alveg eins og alvöru nammi. Ekki skemmir svo fyrir að hvert stykki inniheldur dagskammtinn af átta vítamín- um og tuttugu grömm af próteini! Fulfil fæst í flestum matvöruverslunum á landinu. Hægt er að sjá vöruúrval á fulfil.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.