Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Page 22
30. ágúst 2019KYNNINGARBLAÐHeilsa og núllstilling
Sætindi án samviskubits:
Er það hægt?
FULFIL er írskt merki sem er að slá í gegn á heimsvísu. Um er að ræða gómsætar próteinstangir sem hægt er að njóta án samviskubits. Í hverju stykki færðu dagskammtinn af átta mismunandi vítamínum og
tuttugu grömm af próteini. Auk þess eru þær alveg án viðbætts sykurs og
því tilvalinn valkostur fyrir þá sem vilja sykurlausan lífsstíl en elska sætindi.
Níu girnilegar bragðtegundir!
Fulfil-stangirnar koma í níu bragðtegundum sem allar hljóma enn girnilegri
en sú á undan. Við byrjuðum að selja Fulfil Salted Caramel fyrir tæpu hálfu
ári og við höfum aldrei séð nýja vöru seljast jafn hratt. Það er því óhætt að
segja að hún sé vinsælust þessa stundina. Nýjasta tegundin frá Fulfil er
Peanut Butter-stöngin. Dúnmjúkt hnetusmjör með brakandi lagi af hnetum
hjúpað ómótstæðilegu mjólkursúkkulaði! Fulfil Peanut Butter er fullkominn
fyrir þá sem elska hnetusmjör.
Fulfil er hugsað sem sniðug leið til að halda sér gangandi yfir daginn,
hvort sem það er millimál í skóla eða vinnu, orkustöng fyrir ræktina eða til
að svala sykurlöngun yfir sjónvarpinu á kvöldin. Svo eru margir sem hafa
verið að nota Fulfil í eftirrétti af ýmsu tagi.
Gómsæt súkkulaðistykki án samviskubits
Það er í alvöru hægt að fá sér Fulfil-stöng án samviskubits. Fulfil-stang-
irnar innihalda engan viðbættan sykur. Eini sykurinn sem er í þeim kemur
náttúrulega úr kakóbaununum í súkkulaðinu. Sykurleysið kemur samt ekki
niður á bragðinu, þær bragðast nefnilega alveg eins og alvöru nammi. Ekki
skemmir svo fyrir að hvert stykki inniheldur dagskammtinn af átta vítamín-
um og tuttugu grömm af próteini!
Fulfil fæst í flestum matvöruverslunum á landinu.
Hægt er að sjá vöruúrval á fulfil.is