Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Blaðsíða 44
44 FÓKUS 30. ágúst 2019 PINNAMATUR V e i s l u r e r u o k k a r l i s t ! Bjóðum uppá fjölda tegunda PINNAMATS OG TAPASRÉTTA Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is Afgreitt á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluna HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810 FETAÐ Í FÓTSPOR FRÆGRA – MEÐ OG ÁN KLÆÐA Landsþekktir Íslendingar hafa stundað það síðustu ár að endurgera myndir stjarnanna til að hafa dýpri vísun í myndum í dagblöðum, tímaritum eða sölu- varningi. Hér eru nokkrar af vel heppnuðu endur- gerðunum að mati DV. Internetið nötraði, og í raun brotnaði, þegar að forsíða tímaritsins Paper var frumsýnd árið 2014. Um var að ræða sögufræga mynd af raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian þar sem hún beraði sinn heimsfræga bossa. Hönnuðurinn og frumkvöðullinn Sigrún Lilja Guðjónsdóttir endurgerði myndina í samstarfi við tímaritið sáluga Séð og Heyrt fyrir nokkrum árum og tókst vel upp. Tvíhöfðabræðrunum Sigurjóni Kjartanssyni og Jóni Gnarr detta oft ótrúlegustu hlutir í hug og endurgerðu þeir til að mynda einu sinni málverkið American Gothic sem var málað af Grant Wood árið 1930. Spéfuglinn Kathy Griffin samþykkti að taka þátt í myndaseríu listamannsins Tylers Shields árið 2017, en þá var grínarinn myndaður með blóðugt höfuð Donalds Trump Bandaríkjaforseta í hendi. Kathy var harðlega gagnrýnd fyrir að taka þátt í mynda- tökunni og á þeim tíma sem myndin kom upp á yfirborðið baðst hún afsökunar. Hún dró síðar af- sökunarbeiðnina til baka og sneri þessu hneyksli upp í grín í uppistandinu Kathy Griffin: A Hell of a Story. Það má sjá líkindi með þessari mynd og kynningarmynd grínistans Björns Braga fyrir nýja uppistandssýningu þar sem leikkonan Anna Svava Knútsdóttir heldur á höfði hans. Mun sýningin að einhverju leyti fjalla um myndband sem kom upp á yfirborðið í fyrra þar sem Björn Bragi sást káfa á klofi unglingsstúlku. Hamborgarakóngurinn Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, blés til gjafaleiks á Instagram fyrir stuttu og endurgerði plötuumslag Auðs við plötuna Afsakanir í leiðinni. Heimildamyndin Can’t Walk Way var frumsýnd árið 2016, en hún fjallar um líf tónlistar- mannsins Herberts Guðmunds- sonar. Plakatið fyrir myndina var greinilega undir miklum áhrif- um plakatsins fyrir kvikmyndina Natural Born Killers. Sú mynd kom út árið 1994 en á plakatinu má sjá stórleikarinn Woody Harrelson í hlutverki sínu í mynd sem sló rækilega í gegn. Leikkonan Aníta Briem prýddi forsíðu Lífsins, fylgirits Frétta- blaðsins, í des- ember árið 2013. Aníta beraði óléttubumbuna, líkt og leikkonan Demi Moore gerði á forsíðu Vanity Fair árið 1991. Rapparinn og frumkvöðullinn Rick Ross státar af glæsilegum ferli. Hann sat eftirminnilega fyrir á forsíðu tón- listartímaritsins Rolling Stone árið 2012 undir fyrirsögninni Gangster of Love, eða glæpamaður ástarinn- ar. Sex árum síðar var komið að ís- lenska rapparanum Herra Hnetu- smjöri að endurgera þessa brjáluðu forsíðu fyrir vikublaðið Mannlíf. Í ÞRUSUFORMI ÓLÉTTAR OG ALLSNAKTAR DJÚP TENGING BRAUT INTERNETIÐ Í FÓTSPOR GLÆPAMANNS ÁSTARINNAR HEYKVÍSLAR Á LOFT HERMDI EFTIR HARRELSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.