Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Side 44
44 FÓKUS 30. ágúst 2019
PINNAMATUR
V e i s l u r e r u o k k a r l i s t !
Bjóðum uppá fjölda tegunda
PINNAMATS OG TAPASRÉTTA
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
Afgreitt á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluna
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
FETAÐ Í FÓTSPOR FRÆGRA
– MEÐ OG ÁN KLÆÐA
Landsþekktir Íslendingar hafa stundað það síðustu
ár að endurgera myndir stjarnanna til að hafa dýpri
vísun í myndum í dagblöðum, tímaritum eða sölu-
varningi. Hér eru nokkrar af vel heppnuðu endur-
gerðunum að mati DV.
Internetið nötraði, og í raun brotnaði, þegar
að forsíða tímaritsins Paper var frumsýnd
árið 2014. Um var að ræða sögufræga mynd
af raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian
þar sem hún beraði sinn heimsfræga bossa.
Hönnuðurinn og frumkvöðullinn Sigrún
Lilja Guðjónsdóttir endurgerði myndina í
samstarfi við tímaritið sáluga Séð og Heyrt
fyrir nokkrum árum og tókst vel upp.
Tvíhöfðabræðrunum Sigurjóni
Kjartanssyni og Jóni Gnarr detta
oft ótrúlegustu hlutir í hug og
endurgerðu þeir til að mynda
einu sinni málverkið American
Gothic sem var málað af Grant
Wood árið 1930.
Spéfuglinn Kathy Griffin samþykkti að taka þátt í
myndaseríu listamannsins Tylers Shields árið 2017,
en þá var grínarinn myndaður með blóðugt höfuð
Donalds Trump Bandaríkjaforseta í hendi. Kathy
var harðlega gagnrýnd fyrir að taka þátt í mynda-
tökunni og á þeim tíma sem myndin kom upp á
yfirborðið baðst hún afsökunar. Hún dró síðar af-
sökunarbeiðnina til baka og sneri þessu hneyksli
upp í grín í uppistandinu Kathy Griffin: A Hell of
a Story. Það má sjá líkindi með þessari mynd og
kynningarmynd grínistans Björns Braga fyrir nýja
uppistandssýningu þar sem leikkonan Anna Svava
Knútsdóttir heldur á höfði hans. Mun sýningin að
einhverju leyti fjalla um myndband sem kom upp
á yfirborðið í fyrra þar sem Björn Bragi sást káfa á
klofi unglingsstúlku.
Hamborgarakóngurinn Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem
Tommi á Búllunni, blés til gjafaleiks á Instagram fyrir stuttu og
endurgerði plötuumslag Auðs við plötuna Afsakanir í leiðinni.
Heimildamyndin Can’t Walk
Way var frumsýnd árið 2016,
en hún fjallar um líf tónlistar-
mannsins Herberts Guðmunds-
sonar. Plakatið fyrir myndina var
greinilega undir miklum áhrif-
um plakatsins fyrir kvikmyndina
Natural Born Killers. Sú mynd
kom út árið 1994 en á plakatinu
má sjá stórleikarinn Woody
Harrelson í hlutverki sínu í
mynd sem sló rækilega í gegn.
Leikkonan Aníta
Briem prýddi
forsíðu Lífsins,
fylgirits Frétta-
blaðsins, í des-
ember árið 2013.
Aníta beraði
óléttubumbuna,
líkt og leikkonan
Demi Moore gerði
á forsíðu Vanity
Fair árið 1991.
Rapparinn og frumkvöðullinn Rick
Ross státar af glæsilegum ferli. Hann
sat eftirminnilega fyrir á forsíðu tón-
listartímaritsins Rolling Stone árið
2012 undir fyrirsögninni Gangster
of Love, eða glæpamaður ástarinn-
ar. Sex árum síðar var komið að ís-
lenska rapparanum Herra Hnetu-
smjöri að endurgera þessa brjáluðu
forsíðu fyrir vikublaðið Mannlíf.
Í ÞRUSUFORMI
ÓLÉTTAR OG ALLSNAKTAR
DJÚP
TENGING
BRAUT INTERNETIÐ
Í FÓTSPOR GLÆPAMANNS ÁSTARINNAR
HEYKVÍSLAR Á LOFT
HERMDI EFTIR HARRELSON