Skessuhorn - 04.07.2007, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 4. JULI 2007
„.r.mini/,-
Til minnts
Við minnum á írska daga á Akra-
nesi um helgina og Fjölskylduhá-
tíð Snæfellsbæjar. Fjölbreytt dag-
skrá verður á báðum stöðum,
írskt þema á Skaganum og fjöldi
frábærra listamanna, Buff, Bubbi
Morthens og Stuðmenn. f Snæ-
fellsbæ getur fjölskyldan tekið
þátt í Héðinsmóti, farið á
bryggjuball og skellt sér í grill-
veislu. Það er því úr nógu að velja
á Vesturlandi um helgina.
VeðiýrhorfRr
Það verður norðaustan 6-8 m/s á
fimmtudag og bjart með köflum,
skýjað eða alskýjað á Vesturlandi,
en lítil úrkoma. Hiti 8 til 16 stig. Á
föstudag verður fremur hæg
norðaustlæg átt skýjað og úr-
komulítið á Vesturlandi, hiti 8 til
18 stig, einna hlýjast á Vestur-
landi og Vestfjörðum. Á laugar-
dag verður hæg austlæg átt og
og lítils háttar rigning Vestan-
lands. Hiti 12 til 20 stig að degin-
um, hlýjast norðanlands og á
Vestfjörðum. Á sunnudag verður
austanátt og rigning í fjórðungn-
um, hiti 4-9 stig.
SptArnincj viKnnnar
Þá hefur það sannast sem marga
grunaði; lesendur Skessuhorns
eru öðrum hæfileikaríkari. í það
minnsta þau 41% þeirra sem
voru sofandi þegar þeir tóku þátt
í síðustu könnun blaðsins, en þá
spurðum við hvort fólk ætti erfitt
með svefn í næturbirtunní? Hins
vegar sögðust 29% aldrei sofa
betur og er það um þriðjungur
þeirra sem voru vakandi á meðan
könnun stóð. Þá sögðust 10%
lesenda eiga gríðarlega erfitt með
svefn í birtunni og 20% eiga frek-
ar erfitt með svefn í birtunni.
Næst spyrjum við: „Ferðu í veiði
í sumar?"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlendingw
viMnnar
Vestlendingur vikunnar að þessu
sinni er Steinn Mar Helgason sem
stóð fyrir fjölmennu minningar-
golfmóti um Daða Halldórsson.
Mótið fór fram á Garðavelli á
Akranesi og söfnuðust um 750
þúsund krónur sem runnu til fjöl-
skyldu Daða heitins. Sjá frétt á
bls. 30.
/ mínuVfður qofdvei/ia
% mínu
Bergorbfaul í2
fí€TftsJ9.oo
vo«n4ti|feff od ffe
/om (lefinnni 09 emnyn
Ouórún lom
Lagfæiiiig Þverárhlíðarvegar 2009
Lagfæring á Þverárhlíðarvegi í
Borgarfirði hefur verið sett á vega-
áætlun fyrir árin 2009 og 2010.
Eins og greint hefur verið ffá í
Skessuhorni voru Þverhlíðingar
mjög áfrarn um að hægt væri að
gera tilraun um að leggja einbreitt
malbik á þá malarvegi í dreifbýlinu
sem ekki ætti að flytja eða breyta.
Sú aðgerð myndi flýta uppbygg-
ingu á tengivegum um allt land.
Magnús V. Jóhannsson, svæðis-
stjóri Vegagerðarinnar í Borgamesi
sagði í samtali við Skessuhorn að
þarna væri um að ræða að setja
bundið slitlag á veginn eins og fjár-
magn dygði til, nokkurs konar tál-
raunastarfsemi. „Þessi fjárveiting
dugar ekki til að fara allan hringinn
en er þó upphafið. Við styrkjum
veginn aðeins og leggjum síðan
bundið slidag ofan á hann eins og
hann er, eins breitt og hægt er, en
líklegast telst þetta einbreiður veg-
ur. Menn losna þá alla vega við ryk-
ið og drulluna með þessum aðgerð-
tun,“ sagði Magnús.
bgk
Akvörðun um byggðarmerld firestað
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefur frestað ákvörðun um nýtt
byggðarmerki, en fýrirhugað var að
samþykkja það á fundi í síðustu
viku. Líkt og Skessuhorn hefur
greint ffá hefur komið ffarn tölu-
verð óánægja með merkið, ekki síst
þá staðreynd að í því er kross. Ein-
ar Orn Thorlacius, sveitarstjóri,
sagði í samtali við Skessuhorn að á-
kveðið hefði verið að kalla dóm-
nefhd saman að nýju í ljósi ffam-
kominna athugasemda. Hann tók
það ffam að sjálfúr hefði hann ekki
verið á fundi sveitarstjórnar þar
sem ákvörðunin um frestunina var
tekin. „Menn vildu hins vegar gera
þetta svona og fara yfir þær athuga-
semdir sem fram hafa komið frekar
en að keyra þetta í gegn í einhverju
offorsi."
Einar segir að dómnefnd muni
koma fljódega saman og fara yfir
málið. Sveitarstjórn er komin í
sumarfrí og mun ekki funda í júlí.
Málið verður því tekið fyrir á fyrsta
fundi hennar effir ffí sem haldinn
verður þriðjudaginn 8. ágúst. Einar
segir þá töf ekki vera neitt vanda-
mál. „Við höfum verið lengi án
byggðarmerkis hér og þolum alveg
smátíma í viðbót.“
kóp
Eignarhaldsfélag Samvinnu-
trygginga styrkir Bifröst
Eignarhaldsfélag Sam-
vinnutrygginga hefur veitt
Háskólanum á Bifföst styrk
að upphæð 20 milljónir
króna. Þórólfur Gíslason,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga og formaður
stjórnar eignarhaldsfélags-
ins, afhenti styrkinn á mið-
vikudaginn var og flutti
kveðju stjórnar. I máli hans
kom ffam að á meðal mark-
miða stjórnarinnar er að
styrkja og efla menningar-
og félagslega starfsemi í landinu.
Eignarhaldsfélag Samvinnutrygg-
inga vill sýna stórhug í verki með
því að styrkja Háskólann á Bifföst
með svo myndarlegu fjárframlagi
og væntir þess að það verði öðrum
fyrirtækjum hvatning til þess að
sýna menntastofhunum stuðning
með svipuðum hætti.
Dr. Agúst Einarsson rekt-
or flutti þakkir fyrir hönd
Háskólans á Bifröst og tók
undir þá ósk Þórólfs að
gjöfin mætti verða öðrum
fyrirtækjum hvatning til
þess að styrkja menntun í
landinu. Andrés Magnús-
son, varaformaður stjórnar
Háskólans á Bifföst, flutti
þakkir stjórnar og kvaðst
líta á styrkveitinguna sem
viðurkenningu fyrir það
góða starf sem nú er unnið í Há-
skólanum á Bifföst.
kóp
Þorskeldi í Hvalfirði fer
í umhverfismat
Umhverfisráðuneytið hefur
kveðið upp úrskurð í kæru Lands-
sambands veiðifélaga gagnvart
ákvörðun Skipulagsstofnunar sem
ákvað þann 23. júm' 2006 að fyrir-
hugað þorskeldi í sjókvíum í Hval-
firði og í Stakksfirði, allt að 3000
tonn af eldisþorski á hvorum stað,
skyldi ekki háð mati á umhverfisá-
hrifum. Akvörðun Skipulagsstofn-
unar hefur verið gerð ógild og skal
fara ffam mat á umhverfisáhrifum
fyrirhugaðs þorskeldis AGVA ehf. í
Hvalfirði.
Forsaga málsins er sú að Lands-
samband veiðifélaga sendi inn kæru
þann 17. júlí 2006, þar sem gerðar
voru alvarlegar athugasemdir við
meðferð málsins hjá Skipulags-
stofiiun og m.a. ekki hafi verið leit-
að til sérfróðra aðila um vistkerfi
laxfiska og möguleg umhverfisáhrif
af stórfelldu þorskeldi í nágrenni
ósa veiðiáa. Jafhffamt gerði LV at-
hugasemdir er vörðuðu skýrslu
framkvæmdaraðila, en þar kæmu
ffam fullyrðingar um að enginn
fiskur sleppi úr kvíum, slíkt sé í
þversögn við upplýsingar í nýút-
kominni skýrslu Hafrannsóknar-
stofnunarinnar, en þar kernmr ffam
að á árinu 2004 hafi eldið numið
1000 tonnum af þorski og að 8000
þorskar hafi sloppið úr eldiskvíum.
í úrskurði Umhverfis-
ráðuneytis segir orðrétt;
„Ráðuneytið fellst á með
kærendum að fjölskrúðugt líffíki er
í Hvalfirði. Einnig er fýrir nokkuð
álag á það líffíki eins og fram hefur
komið. Með vísan til þess sem að
framan segir, einkum um möguleg
áhrif á lífríki og laxagegnd í ná-
grenrú fýrirhugaðar framkvæmdar
og um möguleg sammögnunaráhrif
með öðrum ffamkvæmdum, telur
ráðuneytið að fýrirhuguð fram-
kvæmd kunni að hafa í för með sér
umtalsverð umhverfisáhrif vegna
umfangs, eðlis og staðsetningar sbr.
1. mgr. 6. gr. laga um mat á um-
hverfisáhrifum, nr. 106/2000. Telur
ráðtmeytið því rétt að ffam fari mat
á umhverfisáhrifum hennar hvað
varðar þorskeldi í Hvalfirði en ekki
þarf að fara fram mat á umhverfisá-
hrifum hvað varðar þorskeldi í
Stakksfirði. Er því felld úr gildi á-
kvörðun Skipulagsstoftiunar, ffá 23.
júní 2006, um að fýrirhuguð fram-
kvæmd skuli ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum sbr. 6. gr. laga um
mat á umhverfisáhrifum, nr
106/2000, hvað varðar það þorsk-
eldi sem fýrirhugað er í Hvalfirði.
bt/Ljósm. Mats Wibe Lund
Þrjú tilboð
ekki tvö
DALABYGGÐ: í síðasta tölu-
blaði Skessuhorns var ranglega
sagt að aðeins hefðu borist tvö
tilboð í byggingu nýs leikskóla í
Búðardal. Hið rétta er að tveir
aðilar gerðu tilboð í verkið, en
Kolur ehf. skilaði einnig ffá-
vikstilboði. Þrjú tilboð bárust
því í verkið frá tveimur aðilum,
Kol ehf. og Megin ehf. Kolur
bauð 17,132 milljónir og Megin
ehf. bauð örlítið lægra eða
16,339 milljónir kr. Bæði tilboð-
in voru mikið yfir kosmaðará-
ætlun sem hljóðaði upp á 8,7
milljónir. Frávikstilboðið ffá
Koli ehf. hljóðaði upp á 14,994
milljónir króna. -kóp
Tólf ára
Islandsmeistari
BORGARBYGGÐ: Síðastlið-
inn sunnudag eignaðist Golf-
klúbbur Borgamess sinn fýrsta
Islandsmeistara þegar Bjarki
Pétursson fór með sigur af
hólmi í holukeppni þrettán ára
og yngri. Mótið var haldið í
Þorlákshöfn. Bjarki, sem er
fæddur árið 1994, hefur æft
mikið undanfarin ár og greini-
legt að æfingarnar em að skila
sér til baka á þennan glæsilega
hátt. Hann er Borgnesingur í
húð og hár, sonur hjónanna Pét-
urs Sverrissonar og Fjólu Pét-
ursdóttur og verðtxr gaman að
fýlgjast með hornun á golfvöll-
um ffamtíðarinnar. -bgk
Losaði seyru
í hraungjótu
SNÆFELLSBÆR: Héraðs-
dómur Vesturlands hefur sak-
fellt ökumann tankbíls fýrir brot
á náttúruvemdarlögum með því
að losa seyrufarm úr bílnum í
hraungjóm ekki langt frá Amar-
stapa á Snæfellsnesi. Dómurinn
ákvað hins vegar að ffesta refs-
ingu mannsins vegna þess að
brotið þótti afar smávægilegt og
einnig þótti ljóst samkvæmt
framburði vitna, að umrædd
hraungjóta hefðu um árabil ver-
ið notuð í sama tilgangi. Það má
því með sanni segja að þótt
skítalykt hafi verið af málinu
hafi dómaranum ekki þótt hún
nægjanleg til harðrar refsingar,
haldi maðurinn skilorð. -mm
Kurr vegna ráðn-
ingar
BORGARBYGGÐ: Nýlega
réði sveitarfélagið Borgarbyggð
Astu Björk Björnsdóttur í starf
sérkennslufulltrúa fýrir sveitar-
félagið. Nokkuð hefur borið á
óánægju í héraði vegna þessa þar
sem sérstaklega einn umsækj-
andi er talinn hafa bæði meiri
menntun og reynslu en sá sem
fýrir valinu varð. Skessuhorn
hafði samband við Pál S.
Brynjarsson sveitarstjóra sem
staðfesti að einn umsækjandi
hefði óskað eftir rökstuðningi
vegna ráðningarinnar og við-
komandi yrði svarað. „Við aug-
lýstum eftir sérkennara og allir
umsækjendur þóttu hæfir. Þeir
voru þar af leiðandi allir teknir í
viðtal. Eftir viðræður við þá var
niðurstaða okkar að Asta Björk
Björnsdóttir væri sú sem við
vildum helst ráða. , Hennar
áherslur féllu mjög að því sem
við voru að leita að. Vahð var
ekki auðvelt, en þetta var niður-
staðan,“ sagði Páll. -bgk