Skessuhorn


Skessuhorn - 04.07.2007, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 04.07.2007, Blaðsíða 13
Framtíðartækifæri hjá Alcoa Fjarðaáli Upp á hvað hefur Alcoa Fjarðaál að bjóða sem framtíðarvinnustaður? Áhugaverð störf í hvetjandi umhverfi Störfin í álverinu eru fjölbreytt og örugg. Vinnustaðurinn er hannaður með það í huga að öll störf henti jafnt konum sem körlum. Unnið er í teymum og mikið er lagt upp úr góðum starfsanda. Starfsumhverfið býður víðtæka þjálfun, meðal annars á ýmiss konar farartæki og tölvubúnað. Tækifæri til símenntunar og starfsþróunar eru óvíða fleiri. Góð laun og gott vinnufyrirkomulag Byrjunarlaun framleiðslustarfsmanns eru frá 3.739.000 kr. á ári, miðað 1 5 tólf tíma vaktir á mánuði og 1 5% árangursávinning, sem jafn- gildir 312.000 kr. á mánuði. Byrjunarlaun iðnaðarmanns með réttindi eru frá 5.401.253 kr. á ári, miðað við 1 5 tólf tíma vaktir á mánuði og 1 5% árangursávinning. Það jafngildir 433.000 kr. á mánuði fýrir 40 stunda vinnu- viku að meðaltali. Vaktafyrirkomulagið veitir góða möguleika á aukavöktum og viðbótar- tekjum fyrir þá sem óska þess. Fríar ferðir, fæði og klæði Fjarðaál býður upp á rútuferðir frá Reyðar- firði, Eskifirði, Norðfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Egilsstöðum. Starfsmenn fá hollar og góðar máltíðir í glæsilegu capacenb RAÐNINGAR www.alcoa.is mötuneyti. Fyrirtækið útvegar og þvær allan vinnufatnað starfsmönnum að kostnaðarlausu. Heilbrigði og velferð Fjarðaál greiðir hverjum starfsmanni 12.000 kr. líkamsræktarstyrk árlega og leigir tvo tíma á viku fyrir starfsmenn í Fjarðabyggðarhöll- inni. Iðjuþjálfi leiðbeinir um rétta líkams- beitingu og nuddari heimsækir vinnustaðinn tvisvar sinnumí viku. Starfsmenn hafa greiðan aðgang að öflugri velferðarþjónustu sem nær meðal annars til læknisþjónustu og ráðgjafar á ýmsum sviðum. Kostnaðarlaus og auðveldur flutningur inn á svæðið Þurfi starfsmaður að flytja inn á svæðið úr meira en 100 km fjarlægð frá vinnustaðnum greiðir Fjarðaál kostnað við kaup og sölu fasteigna, svo sem sölulaun, lántökugjald og stimpilgjöld. Fyrirtækið sér um að pakka búslóð, flytja hana og koma fyrir á nýju heimili. Með fyrsta launaseðli fær starfsmaður 200.000 kr. greiðslu til að koma sér fyrir á svæðinu. Fyrirtækið aðstoðar einnig nýja íbúa á svæðinu við að leigja húsnæði. Starfsmenn fá jafnframt tiltekinn fjölda flugmiða með Flugfélagi íslands á mjög hagstæðum kjörum. Ef þú hefur áhuga á þessu tækifæri ættir þú hiklaust að hafa samband við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur hjá Capacent (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is eða í síma 540-71 1 7) eða skrá umsókn þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig. Alcoa Fjarðaál 0 ALCOA

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.