Skessuhorn - 04.07.2007, Side 13
Framtíðartækifæri hjá Alcoa Fjarðaáli
Upp á hvað hefur Alcoa Fjarðaál að bjóða
sem framtíðarvinnustaður?
Áhugaverð störf í hvetjandi
umhverfi
Störfin í álverinu eru fjölbreytt og örugg.
Vinnustaðurinn er hannaður með það í huga
að öll störf henti jafnt konum sem körlum.
Unnið er í teymum og mikið er lagt upp úr
góðum starfsanda. Starfsumhverfið býður
víðtæka þjálfun, meðal annars á ýmiss konar
farartæki og tölvubúnað. Tækifæri til
símenntunar og starfsþróunar eru óvíða fleiri.
Góð laun og gott
vinnufyrirkomulag
Byrjunarlaun framleiðslustarfsmanns eru frá
3.739.000 kr. á ári, miðað 1 5 tólf tíma vaktir á
mánuði og 1 5% árangursávinning, sem jafn-
gildir 312.000 kr. á mánuði. Byrjunarlaun
iðnaðarmanns með réttindi eru frá 5.401.253
kr. á ári, miðað við 1 5 tólf tíma vaktir á mánuði
og 1 5% árangursávinning. Það jafngildir
433.000 kr. á mánuði fýrir 40 stunda vinnu-
viku að meðaltali. Vaktafyrirkomulagið veitir
góða möguleika á aukavöktum og viðbótar-
tekjum fyrir þá sem óska þess.
Fríar ferðir, fæði og klæði
Fjarðaál býður upp á rútuferðir frá Reyðar-
firði, Eskifirði, Norðfirði, Fáskrúðsfirði,
Stöðvarfirði og Egilsstöðum. Starfsmenn
fá hollar og góðar máltíðir í glæsilegu
capacenb
RAÐNINGAR
www.alcoa.is
mötuneyti. Fyrirtækið útvegar og þvær
allan vinnufatnað starfsmönnum að
kostnaðarlausu.
Heilbrigði og velferð
Fjarðaál greiðir hverjum starfsmanni 12.000
kr. líkamsræktarstyrk árlega og leigir tvo tíma
á viku fyrir starfsmenn í Fjarðabyggðarhöll-
inni. Iðjuþjálfi leiðbeinir um rétta líkams-
beitingu og nuddari heimsækir vinnustaðinn
tvisvar sinnumí viku. Starfsmenn hafa greiðan
aðgang að öflugri velferðarþjónustu sem nær
meðal annars til læknisþjónustu og ráðgjafar
á ýmsum sviðum.
Kostnaðarlaus og auðveldur
flutningur inn á svæðið
Þurfi starfsmaður að flytja inn á svæðið úr
meira en 100 km fjarlægð frá vinnustaðnum
greiðir Fjarðaál kostnað við kaup og sölu
fasteigna, svo sem sölulaun, lántökugjald og
stimpilgjöld. Fyrirtækið sér um að pakka
búslóð, flytja hana og koma fyrir á nýju
heimili. Með fyrsta launaseðli fær starfsmaður
200.000 kr. greiðslu til að koma sér fyrir á
svæðinu. Fyrirtækið aðstoðar einnig nýja íbúa
á svæðinu við að leigja húsnæði. Starfsmenn
fá jafnframt tiltekinn fjölda flugmiða með
Flugfélagi íslands á mjög hagstæðum kjörum.
Ef þú hefur áhuga á þessu tækifæri ættir þú hiklaust að hafa samband við
Sigurlaugu Þorsteinsdóttur hjá Capacent (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is
eða í síma 540-71 1 7) eða skrá umsókn þína á www.capacent.is og haft verður
samband við þig.
Alcoa Fjarðaál 0
ALCOA